2.1.11

Gamall gítar

Þessi kona hét Ásta Soffía Wilhelmsdóttir, fædd á Siglufirði 1906 og lést langt um aldur fram árið 1928. Hún var dóttir Wilhelms Marzillíusar Jónssonar (1869-1938) og Ólafar Barðadóttur (1881-1973) og var systir ömmu minnar Vilhelmínu Kristínar Örum Vilhelmsdóttur (1904-1976).
Ásta Soffía heldur á gítar sem hún eignaðist og ég er með á hemili mínu. Sem smíð er þessi gítar kannski ekki merkilegur en hann  er þó merkilegur fyrir það að hann var smíðaður í Nassjö í Svíþjóð á verkstæði sem var stofnað um 1924 og Ásta dó 1928. Hann er vel spilafær enn og úr honum kemur hljómur sem er afar fallegur og ljúfur. Ég set að vísu ekki harða strengi í hann, sem væri flottast, heldur svokallaða silk and steel sem spenna hann ekki eins fast. Þar með verður hljómurinn dempaðri.
Verkstæðið í Nassjö starfaði fram að Kreppu svo þar með má ljóst vera hvenær hann var smíðaður. Eftir að Ásta Soffía dó komst hann í hendur móður minnar sem mun hafa leikið og spilað á hann enda kenndi hún mér grunnatriðin þegar ég fór að sýna áhuga. Seinna sölsaði ég hann undir mig...
Mér þykir afar vænt um þetta hljóðfæri, þessa sögu sem honum tengist og vildi óska þess að ég ætti mynd af næstu Ástu með hann að spila!

2 ummæli:

  1. Mér fannst eins og það hefði staðið að fyrirtækið hefði byrjað 1916. Einnig má nefna að þetta fyrirtæki gerði einmitt gítara fyrir Levin merkið sem var einhvern vegin tengt martin að mig minnir. Amk hvað varðaði módelin og þessháttar. Levin þótti agalega fínt amk. Því held ég að þetta hafi verið eigin útgáfa af gíturum sem líklega hefur verið aðeins ódýrari útgáfa vegna þess að merkið var annað, en að' öllum likindum hafa gæðin ekkert verið síðri (má vísa til dæmis til sambandsins milli Epiphone og Gibson með þetta) Þyrfti þó að ráðfæra mig við góðu gítarabiblíuna mína...

    SvaraEyða