2.3.11

Munurinn á Steingrími og Maríu Antoinette...

Mannkynssagan minnist Maríu Antoinette, Frakklandsdrottningar, helst vegna ummælanna um fátæklingana sem áttu ekki fyrir brauði. Sagnfræðingar staðhæfa að vísu að konan hafi aldrei sagt þetta.
Steingrímur J. var spurður um eldsneytisverð á dögunum á þingi og ég heyrði í öðrum hvorum sjónvarpsfréttatímanum að hann sagði réttilega að nú væri vitaskuld tækifæri til að skipta úr mengandi eldsneyti í umhverfisvænt. Sem er rétt nema kannski
  • Steingrímur gleymir því kannski að launafólk hefur horft á bensín hækka um liðlega 100% á stuttum tíma sem eykur útgjöld og hækkar verð sem þýðir að tekjur rýrna.
  • Hann kannski man ekki að laun hafa almennt rýrnað um tugi prósenta
  • Hann var kannski ekki með í huga skuldsett heimili og atvinnuleysi.
  • Hann gleymdi kannski að bílar eru kannski ekki besta söluvaran, allra síst þeir sem á að úrelda. Hann  heldur kannski að ég geti hent bensínbílnum mínum og keypt mér nýjan?
Ummæli Steingríms minna á kökurnar fyrrgreindu. Munurinn á Steingrími og Maríu er sá að hann sagði þetta. Ekki hún.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli