Strætó nr. 25 stundvís að vanda og þegar við komum á Central Stazione um 11.30 er hitinn 35°C. I love it!
En við kunnum á strætó og höldum áfram lengra niður í gamla bæinn.
Og á Marconi breiðgötunni sést í hljóðfæraverslum og við út. Flott hljóðfæri og gaman að skoða. Svo er arkað í vestur að Sjálfstæðisbreiðstræti og það til suðurs að Piazza Maggiori og jú – þetta er allt önnur borg. Allt iðar af lífi og krafti.
Ferðinni bjargað. Hún er samt einhvern veginn ekki það sem ég vænti. Það ægir öllu saman frá ármiðöldum til nútíma og í gamla borgarhlutanum eru þröngar götur og það er lífshættulegt að vera á götunni vegna vespubrjálæðinganna.
Húsið sem páfinn lét byggja við hlið dómkirkjunnar svo hún yrði ekki stærri en Péturskirkjan í Róm |
Þá reistu menn turna sjálfum sér til dýrðar og voru (þegar mest var) 180 turnar í Bologna en eftir standa 22. Sá hæsti er um 97 metrar (Hallgrímskirkju hvað?) og var reistur á 12. öld. Hann hallar sjáanlega og segir sagan að þeir stúdentar sem klífa allar tæplega 500 tröppurnar ljúki ekki námi. Maður hlær nú að svona en rétt til öryggis ætla ég að koma hingað og fara upp þegar doktorsritgerðin liggur fyrir. Síðasta (MA) var 22 ár í smíðum. Bara svona....
Hinn aðalturninn var 60 m. en var tekinn niður um 12 m. enda halli 3 metrar og maður sér vel hversu mikið hann hallar.
En allt um það. Á leið upp sjálfstæðisgötu stingur Sigga sér inn í búð en ég held áfram. Sé þarna svona hlaupaskóbúð og ákveð að kíkja inn. Sem ég nálgast dyrnar hleypur einhver yfir tærnar á mér og eitthvað fipast ég, rek tánna í og stefni nánast láréttur á þennan líka fína kassastafla á miðju gólfi. Ég næ að vísu að ná jafnvægi og horfi í kringum mig eins og ekkert hafi í skorist. Eftir smá stund fara allir sem þarna inni voru að sýsla á ný, enda sjálfsagt erfitt að trúa því að ekki vekji athygli þegar tveggja metra maður kemur fljúgandi inn í 8 fermetra húsnæði. Krakkarnir úr Lyngbergi geta áreiðanlega séð það fyrir sér.
Ég greip næsta hlaupaskó og sagði við afgreiðslumann „Do you have big sizes?“ „But of course senior“ var svarað af lipurð. 13 eða 14 US? Bjartsýnn ég. Þegar hlátri mannsins linnti og hann áttaði sig á því að ég var ekki bara svartur í framan af sólinn sagði hann að svo stórt væri ekki til. Þegar ég gekk að hurðinni fannst mér ég heyra orðið „abnormale“ og var að hugsa um að segja gúmoren á móti. Pabbi minn sagði mér að það væri háttur óvandaðra að slást svo ég bara fór út en gætti mín á þrepinu.
Sigga vill meina að það hafi verið einkar snotur og fáklædd senjorina sem truflaði mig. Ég var hins vegar feginn að Sigga var hvergi nærri því hún hefði aldrei hætt að hlægja og líklega p****ð niður úr.
En sem sé Bologna er flott og gaman að arka þar um. Þarna söfnuðust námsmenn saman á 11. öld og skrifuðu fræðimönnum víða í Evrópu og báðu þá um leiðsögn. Ýmsir tóku því vel og fyrir vikið var fyrsti háskóli heims stofnaður. Og þannig störfuðu þeir lengi vel. Nemendur tóku sig saman og kölluðu til sín kennara. Það var svo Pétur Abelard og félagar hans í París sem snéru dæminu við og stofnuðu háskóla sem voru undir stjórn kennara. Spurning hvort er betra?
En námsmennirnir hér hafa þó tekið eitt upp sem er skrýtið og það er skipulagt veggjakrot. Hér er allt útkrotað. Gjörsamlega allt!!! Meira að segja kirkjur og helgidómar sem manni finnst nú að ættu að sleppa. Veggir, sjallusíur, hurðir, gluggar, rimlar fyrir gluggum verslana og s.frv. allt út krotað kannski er það þetta sem gerir það að verkum að manni finnst borgin sjúskuð.
Svo lokar hér allt eða því sem næst (að frátöldum börum og kaffihúsum (sjá í gær)) um 12:30/13 til 15/15:30. Meira að segja kirkjurnar!!!
Við stefnum á San Stefano torg og kirkjan lokuð svo við setjumst inn í kaffihús sem er í fallegum húsagarði og bíðum. Þegar við svo komumst að til að skoða kirkjuna þá er ferðin og biðin þess virði. Þetta er ekki ein kirkja frekar en Duomo í Verona. Alla vega sex kirkjur og tveir klausturgarðar og elsti hlutinn frá um kristnitöku á Íslandi en sögur herma að elsta kirkjan hafi verið endurskipulagt rómverskt hof.
Í þessari kirkju er (segir sagan) fonturinn sem Pontíus Pílatus laugaði hendur sínar í þegar hann þvoði af sér blóð Krists. Hann var gerður úr steini af handverksmanni í Langbarðalandi á Norður Ítalíu um 730 EFTIR Kristsburð...? Sagan eitthvað skolast til hér.
Þaðan röltum við um þröngar götur gyðingahverfisins sem er kallað Xgetto og Quadrilatero en þar eru ávaxtasalar og matvörusalar í hverju skoti.
Við eitt borðið er miði þar sem ávaxtakáfurum er hótað handarhöggi. Mig langaði að spyrja hvort þeir hefðu þurft að standa við það en Bolognabúar eru svo lélegir í ensku að ég læt vera. Þarna er margt að skoða og margt að spá.
Þannig má reika endalaust um Bologna. Við finnum að lappirnar eru lúnar þegar við setjumst á veitingahús Viktoríu rétt við lestarstöðina. Þar er maturinn ekki dýr en maður borgar 3 evrur fyrir serviettuna. Og er ekki sagt af því fyrr en maður fer, bara dásamlgt og við brosum að því.
Í dagslok, á leið heim með leið 25 sjáum við fallegt sólsetur og tunglið sem var liðlega hálft þegar við sátum í Arena er að stækka. Líklega fullt þegar við verðum í Flórens?
Ætlum að vakna snemma í fyrramálið og halda til Parma og Modena, segjum frá því á morgun. Kær kveðja til ykkar sem lesið, og góða nótt!
Skemmtilegasti partur dagsins er innlitið hingað inn. Vona að pabba hafi ekki orðið vont af byltunni og já- dóttirin pissaði næstum af hlátri líka;) Njótið vel og bið að heilsa Parma og Modena!
SvaraEyðaTakk fyrir þessar skemmtilegu bloggfærslur. Ég þakka fyrir að frú Sigríður var ekki á staðnum þe í skóbúðinni! Það er líka hægt að slaka á í svona hálfan dag! Góða ferð áfram, kv. Inga
SvaraEyða