19.3.10

Athyglisverð deyfð?

Ég var á fundi Heimilis og skóla um innritunarmál í Versló í kvöld. Greinilegt var að áhugamenn um VÍ voru þarna en auk þeirra voru örfáir skólastjórnendur, þrír unglingar og formaður FF. Sem sé sárafáir.
Erindi mitt er hér. Alla vega glærurnar.
Mér fannst erindi stúlku úr 10. bekk öflugt en hún er hafnfirsk og heitir Katrín Ósk Ásgeirsdóttir. Auk okkar töluðu Þórir Ólafsson úr mennta- og menningarmálaráðueytinu, sá mikli öðlingur, Ingi Ólafs skólastjóri VÍ, formaður Heimilis og skóla sem heitir Sjöfn Þórðardóttir og Pawel Bartoszek, aðjúnkt úr HR.
Þetta var mjög friðsæl umræða og klofnaði svolítið í þrennt, - um hagsmuni nemenda og foreldra, um hagsmuni skóla og kennara og hagsmuni stjórnvalda. Hún náðist samt aldrei á flug en Þórir var öflugur og beinskeyttur undir lokin.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli