23.3.10

In the Valley of Elah

Þetta er nafn á kvikmynd eftir Paul Haggis, en hann samdi handrit og leikstýrði. Myndin var gerð árið 2007 og með aðalhlutverk fara Tommy Lee Jones, Charlize Theron og Susan Sarandon. Nafnið vísar á dalinn þar sem Davíð og Golíat börðust. 
Myndin er sögð byggja á raunverulegum atburðum og byggir á grein sem birtist í Playboy eftir Mark Boal og hún hét Death and Dishonor.
Sagan fjallar um föður sem leitar skýringa á dauða sonar síns, innan hersins en í raun um stríðið í Írak, misþyrmingu fanga og streitu eftir stríðsþátttöku (post-traumatic stress disorder (PTSD)). 
Myndin lýsir því hvernig leitin heltekur föðurinn (Tommy Lee Jones), raskar sambandi hans og eiginkonunnar (Susan Sarandon) og brýtur niður trú hans á Bandaríkjunum og hernum. Sonurinn (Jonathan Tucker) týnist fljótlega eftir heimkomu frá Írak og honum til aðstoðar er lögreglukona (Charlize Theron) sem smám saman blandast í málið.
Lík sonarins finnst, limlest og brennt og herinn hindrar rannsóknina ítrekað. 
Förum ekki lengra með söguna en Jones, sem trúir fyrst engu illu á herinn verður að endurmeta stöðuna. Fram kemur að þegar her hengi fána sinn upp á hvolfi þá sé öllu lokið. Þessi hugsun hefur mikið að segja í myndinni.
Í myndinni er byggt á sambærilegri atburðarás frá 2003. Grein Boal kveikti áhuga Haggis á málinu. Raunar hefur málið vakið athygli fleiri aðila.
Myndin var ekki dýr (kostaði $23 milljónir) og rétt rúmlega halaði inn fyrir því þrátt fyrir mjög jákvæða dóma. Time magazie valdi hana sem eina af tíu bestu myndum ársins 2007. Sérlega hefur hlutur Jones vakið athygli en einnig hörð gagnrýni á stríðsreksturinn og tilgangsleysi hans, eftirmál og vandamál heima og erlendis. 
Í myndinni er engin virðing sýnd hernum, þjóðerninu eða stríðinu. Mér fannst hún góð og ég man að ég sat eins og laminn í lokaatriðinu. Ég hvet alla sem hafa áhuga á stríðs- og friðarmálum að skoða hana.

1 ummæli:

  1. Vid sáum thessa mynd fyrir nokkru sídan, einhverra hluta vegna. Ekki týpíusk mynd fyrir okkur ad taka. En hún var mjög gód.

    SvaraEyða