22.3.10

Fawlty Towers

Einu sinni fyrir langa löngu var John Cleese ásamt Monty Python genginu á hóteli í Torquay. Eigandi þess, Donald Sinclair, sýndi aldeilis svakalega ruddalega framkomu. Hann er kveikjan að sjónvarpsþáttaröð sem hefur verið kölluð besta grínþáttaröð allra tíma. Hún er einungis tólf þættir og Cleese vildi helst ekki einu sinni gera nema sex.
John Cleese, sem þá hafði tekið sér frí frá Monty Python var beðinn um skemmtiþætti og settist yfir það, með þáverandi konu sinni, Connie Booth, að vinna úr reynslunni frá Torquay. Þetta var árið1973 og hversu sem Cleese þráaðist við kom enginn nema hann til greina sem Basil Fawlty.
Það var svo árið 1975 sem fyrstu þættirnir birtust.
Þættirnir hafa fengið gríðarlega margar viðurkenningar. Samt sló serían ekki í gegn í fyrstu. Daily Mirror sagði: ,,Long John, Short On Jokes." Eftir því sem leið á fyrstu sex þættina var ljóst að áhuginn jókst og BBC endursýndi þættina snemma árs 1976. Nú tóku Bretar við sér og Cleese og Booth bættu sex þáttum við (1979). Þegar við hjónin bjuggum úti í Englandi 1977-80 þótti frumsýning seinni raðarinnar heimsviðburður þar í landi.
Cleese lék hóteleigandann, Prunella Scales fer á kostum sen eiginkonan, Connie Booth sem sæta þjónustustúlkan og Andrew Sachs sem óborganlegi spænski þjónninn Manuel, sem kannski er frægastur allra.  Af öðrum frægum er Majórinn og hinar heyrnarlitlu fröken Tibbs og fröken Gatsby.

Þættirnir eru 12 og má lesa um þá hér.
Hér er svo eins konar A til Ö um þættina.

Það er erfitt að gera upp á milli þátta en frægastir eru Gourmet Night og The Germans. Aðrir algjörir klassar eru Communication Problems og The Psychiatrist. En þeir eru allir snilld!

Engin ummæli:

Skrifa ummæli