
Hann og strákarnnir fæddir 1990 hafa verið í handbolta frá 6 ára aldri flestir. Þeir og hinir og þjálfararnir hafa unnið þrotlaust að þessu markmiði. Bak við þá hafa verið unglingaráð og nú stjórn handboltadeildar sem hafa unnið sem einn maður. Hvaða félag á þul eins og FH?
Bak við þá hafa verið foreldrar sem hafa lagt sig alla fram um að vinna saman, staðið fyrir utanlandsferðum, veislum, morgunverðarboðum, mat fyrir leiki - meira að segja aðstaða Fríkirkjunnar var lögð undir þetta.
Þetta kann að virðast hafa verið auðvelt. Um og yfir 20-30 titlar hjá Óla og félögum á síðustu árum. Íslandsmeistarar, Norðurlandameistarar, Evrópumeistarar. Þeir eru góðir, þeir eru flottir, þeir eru agaðir. En þeir æfa og æfa og æfa og æfa. Þetta er vinna og vinna og vinna og þannig vinna þeir leiki og mót. Og þeir vita að tölfræðin er bara til gamans. Það er hver leikur sem skiptir máli og að halda haus.
Þetta er vinnan þeirra sem er möguleg vegna góðra þjálfara, félagsforystu, góðs baklands og svo koma stuðningsmenn og fylla húsið! Þvílík stemming!
Myndin er af Óla og Kalla en myndskeiðið af myndatökunni!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli