Og ekki spillti veðrið fyrir. Þessi mynd var tekin við Tjörnina um kl. 9 um morguninn.
og þessi líka. Þær eru báðar teknar á símann minn svo gæðin eru ekki til að hrópa húrra yfir.
Þarna er hópurinn fyrir framan mig...
og þessi voru fyrir aftan mig!
Hér erum við komin út á Fríkirkjuveg. Röðin er komin upp Skothúsveg. Þetta eru um 4000 manns!
Og hér er ég að horfa upp Skothúsveginn.
Hérna er ég kominn út á Norðurströnd og var búinn að týna frúnni en hafið þið séð bugtina svona?
Þessir þrír voru hluti af amerísku Boot camp gengi og skemmtu sér stórvel með allskonar æfingum á leiðinni.
Þetta er önnur af bugtinni.
Hér er makríll að skemmta sér í yfirborðinu.
Fáninn á Iðnó hékk en blakti aðeins þegar ég tók myndina. Þarna fann ég frúnna og fleiri til en það eru vitni að því að ég valhoppaði síðustu metrana!
Ég síðan tek ofan fyrir þeim foreldrum, sem hlupu um morguninn, en fóru samt með krakkana sína í Latabæjarhlaup síðdegis. Á næstu mynd er hópurinn að safnast saman í Sóleyjargötu, - eða hluti hans.
Í öllu falli var dagurinn frábær og ég efa ekki að menningarnótt var frábær þar á eftir þar, til fylleríið á landanum hófst. Þá var ég feginn að vera heima. En enn og aftur kærar þakkir!
Þið eruð snillingar. Til hamingju með árangurinn og söfnunina.
SvaraEyðaDáist nú að þér að ná að grípa myndefni á hlaupum og smella af - þó það sé nú bara á símann!!
Kveðja með aðdáun í augum :D
Helga Dröfn
svakalega er ég stoltur af ykkur! Það er gott og gaman að eiga foreldra sem eru svona dugleg að gera frábæra hluti saman! Mér og Söru þykir svo svakalega leiðinlegt að hafa misst af valhoppinu! það fer víst í sögubækurnar :)
SvaraEyðaykkar Kalli :*