7.9.11

Svakalega öflugir

FH var að koma frá Ísrael þar sem þeir léku í Evrópuforkeppni um sæti í Meistaradeildinni annars vegar og Evrópubikar hins vegar.
Mér er spurn hvort menn hafi áttað sig á styrk þessa liðs?
Þeir léku við norska liðið Haslum HK sem hefur ítrekað spilað í Evrópukeppni og er titlað atvinnumannalið á vef sínum sem og Maccabi Srugo Rishon Lezion sem skv. vef ehf hefur spilað á ymsum stigum Evrópukeppni á hverju ári síðustu ár.
Og lið FH?
Af fjórtán leikmönnum eru fjórir aðkomumenn, þar af tveir sem hafa verið í Krikanum um nokkurt skeið.
Sá fimmti aðkomni telst uppalinn FH-ingur þó hann hafi verið hjá Fram um hríð.
Það eru tíu uppaldir leikmenn  í þessu liði FH. Andri er er aldursforseti þeirra, svo kemur Ari en allir hinna eru fæddir 1989 eða síðar. Danni og Óli 1989, Sigurðarnir tveir, Kalli og Dóri 1990, Ísak og Magnús 1992.
Að auki eru Örn Ingi og Raggi fæddir 1990. Sem sé 10 af 14 eru rétt liðlega tvítugir eða yngri.
Þeir eru ríkir FH-ngar því svo er nóg af fólki á leiðinni.
Vel gert!

Engin ummæli:

Skrifa ummæli