27.3.16

Central Park, ekki Perk og fleiri sögur!

Held ég þá áfram fyrri sögu minni.
Ferðin á bátnum var ævintýri líkust. Báturinn siglir frá bryggju 83 við 42. stræti og 12. breiðgötu.
Allt alveg þrælskipulagt eins og venja er hér.
Við sigldum út á Hudson ánna og milli New Jersey og Manhattan, niður með eyjunni, fram hjá fjármálahverfinu, Frelsisstyttunni, Ellis eyju og suður fyrir odda Manhattan, upp með Brooklyn og undir brýrnar stóru, - Manhattan bridge og Brooklyn bridge. Þar er snúið við og siglt til baka. Lengst er tafið á bakaleiðinni við Frelsisstyttuna, lónað þar dágóða stund.
Ferðin tekur um tvo tíma og það má alveg mæla með svokölluðum VIP miðum, aðeins dýrari en miklu betri ef maður er að taka myndir.
Við komum að landi um kl. 21 og röltum tilbaka 42. stræti. Þar gekk Sigga fram á huggulegt hús sem heitir Westbank cafe. Ljómandi matur, andrúmsloft og þjónusta.
Þaðan var skrölt heim á hótelið.
 
Laugardagsmorgunn rann upp fagur. Við fórum (rólega) upp sjöttu breiðgötu og upp í Central Park. Þar leigðum við hjól og fórum í góðan hjólatúr.
 
Garðurinn er afar skemmtilegur og mannhafið mikið. Maður hjólar hring um garðinn sem er 6,2 mílur, sem reiknast vera 9,97783 km. eða tíu kílómetrar. Á leiðinn getur maður stokkið af og reitt hjólið upp göngustíga og skoðað m.a. gosbrunn úr Friends og fleira.
Þarna er forn obeliska, mikið af fallegum gróðri, stórt uppistöðulón kennt við við Jackie Onassis (Kennedy).
Með fallegri himinmigu (það segir til um aldur að skilja þennann).
 
Þegar komið er nyrst í garðinn er maður við  Harlem hverfið.
Við fórum upp með austurhlið garðsins en það er afar fínt hverfi og þar má m.a. sjá Guggenheimsafnið og flott íbúðarhverfi kringum það. Norðan við er Harlem og vestan við tekur við annað fínt hverfi, Upper West side, þar sem m.a. má finna Dakoda bygginguna þar sem þau Lennon og Ono bjuggu en Yoko býr enn. Þar utan við húsið var Lennon skotinn til bana.
Inni í garðinum þar við er líklega fjölsóttasti staðurinn í garðinum, minnismerkið Strawberry Fields, en það er mosaíkhringur sem inni í stendur ImagineFólk sest á minnismerkið og teknar eru myndir. Og í ljósi þess að stór hluti þeirra sem þarna setjast voru ekki einu sinni fæddir þegar Lennon var myrtur má leiða líkur að því að einhverja töfra megi finna í tónlist hans. Þetta segi ég nú eingöngu vegna þess að oft er talað um rokk- og popptónllist af vissri lítillækkun.
Við skiluðum hjólunum tímanlega og röltum svo áleiðis niður að 36. stræti. Það verður að segjast eins og er að í huganum fór fram svona samtal:
Ég: Sigga hægðu á þér.
S: Allt í lagi ástin mín.
Ég: Sigga hægar manneskja!
S: er ekki ætlunin að ná heim fyrr eða síðar?
Ég: Sigga ég get ekki gengið svona hratt!
Sigga: Hratt? Þetta er nánast aftur á bak!
Ég: Taxiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii!
Við settumst inn á Keen Steakhouse og klukkan var að nálgast átta.
No sir. borð fyrst kl. 22. Þið getið kannað hvort sé laust á barnum..
Ég held að blessuð stúlkan hafi séð örvæntingu mína og vonbrigði Siggu minnar yfir að þurfa að dragnast með mig heim og aftur út. Skyndilega var laust borð og það á fínum stað.
Maturinn? Meiriháttar. Ég er viss um að Tbeinið var um hálft kíló. Það var svo gott að rétt þessa stundina eru framsóknarpöddur að berjast um heilann í mér.
And I couldnt care less.
Núna er Sigga að klára að pakka og ég að klára að blogga og svo er það sængin mjúka!
Uppfærð statistsík!
Dags.
skref
metrar
tími
klst
mín
18.3.2016
7500
4700
388
6
28
360
19.3.2016
12100
8400
402
6
42
360
20.3.2016
9500
6400
300
5
0
300
21.3.2016
7400
4900
300
5
300
22.3.2016
8000
5160
360
6
360
23.3.2016
10200
7300
300
5
300
24.3.2016
14700
10200
365
6
5
360
25.3.2016
13334
10200
305
5
5
300
26.3.2016
12048
8400
360
6
360
94782
65660
3080
50
80
3000
 
 
 

Engin ummæli:

Skrifa ummæli