Ég fór, ásamt fleirum, í Hörpu að sjá Hárið, sönleik þeirra Rado og Ragni, (og McDermot) sem var fyrst frumsýndur ,,Off Broadway" eins og það heitir, árið 1967. Rado mun hafa verið tónskáld með einhverskonar Rogers og Hammerstein væntingar en Ragni var maður tilraunaleikhússins. Þeir munu hafa kynnst nokkrum árum fyrr og sögðu síðar að það hafi verið stemmingin á götum The village í New York og í Central park sem þeir vildu koma á framfæri.
Félagi minn og vinur, sem var tilefni ferðarinnar, átti plötu sem var líklega Broadway upptakan frá 1967/8.
Á hana hlustuðum við grimmt enda allskonar vafasöm ensk orð sem við lærðum af því.
Ég hef hins vegar aldrei séð þetta á sviði en hef oft horft á og hlustað á útgáfu Milos Forman af verkinu frá 1979. Mér hefur alltaf fundist hann gera tónlistinni góð skil, þó mörg lög vanti, en fundist söguþráðurinn eitthvað brogaður sem og skilaboðin um hópinn.
Þessi íslenska gerð Silfurtunglsins er frábær.
Leikstjórinn, Jón Gunnar Þórðarson, hefur leyst feyknalega margt vel og leikmyndin sem Mekkín Ragnarsdóttir gerir er einföld og gerir áhorfendur að hluta sýningarinnar.
Eyþór Ingi Gunnlaugsson, sem leikur Berger er hreint frábær alla sýninguna í gegn sem og Matthías Matthíasson, sem leikur Claude. Jóhannes Haukur Jóhannesson fer einnig á kostum og á m.a. eitt frábærasta atriðið á móti Ernu Hrönn Ólafsdóttur þar sem þau syngja um mannfórnir styrjalda. Jana María Guðmundsdóttir syngur Sheilu, en hún er kannski jarðtenging hópsins. Jana er frábær frá fyrstu mínútu og syngur eins og engill. Hún á hvert sólóið á fætur öðru. Sama gildir um Ólöfu Jöru Skagfjörð. Þegar hún og Jana syngja Good morning sunshine þá fór um mig. Þetta er fallegasta útgáfa þesss lags sem ég hef heyrt.
Voffi eða Pétur Örn Guðmundsson er flottur bæði sem leikari/söngvari og hljómborðsleikari en steinninn í kórónunni var hann Ívar Helgason. Hann kemur mér alltaf á óvart. Fram að hléi leikur hann karakter sem er útúrdópaður og syndandi og ég þekkti hann ekki strax. Svo birtist hann sem virðuleg frú í hléinu, atast á áhorfendum og syngur frábærlega, en í seinni hlutanum leikur hann að minnsta kosti tvö stór hlutverk til viðbótar. Útgeislun Ívars er svo mikil að hann er bara frábær.
En sem sé - svo er hljómeyki. Á gítar Hallgrímur Ingvi Jónasson, gjörsamlega frábær, á bassa Stefán Gunnarsson, mjög þéttur sem og trommarinn Valgarður Óli Ómarsson, alveg frábærir allir þrír.
Vel gert Silfurtungl og Takk Harpa að gefa þessu pláss.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli