23.3.16

Af Virgli latínuskáldi og fleir


http://fairnessfoundation.org/wp-content/uploads/2015/12/happy-birthday-in-many-languages-happy-birthday-in-many-languages.jpg

Dagurinn í dag var dagur verslunarinnar og reyndar afmælisdagur Þorra okkar!
Smelltu á myndina Þorri!



Við sem sé fórum út úr bænum, til norðurs, upp eftir þangað sem heitir New valley.
Þar er svona verslunarmiðstöð sem heitir Woodbury Common og er það sem heitir outlet eða factory shops.

Þar uppgötvaði ég hversu stórfættur ég er - rétt eina ferðina og líka að fatasmekkur minn er alveg hræðilegur því mér leist á frekar fátt.
Okkur tókst nú samt að koma einhverju fjármagni í skjól og verð að segja að Levis búðin stóð sig vel sem og Underarmour! Nema hvað.
Leiðirnar uppeftir og tilbaka voru fróðlegar. Við lærðum eitt og annað um umferðarmál en þó toppaði allt þegar blessaður bílstjórinn (sem var frábær) bauð okkur að fara út á horni 36st og 5th av - það er á fimmta, frekar en aka hringinn (niður á 35st - upp 6th av og inn 36th st. sem hefði tekið hálftíma. Tvær að ganga. Svo við stukkum út, tæmdum skottið og það voru engin læti á annars annasamri stundu, - bílalega séð.

Þegar við höfðum pústað svolítið var komið að kveldmat. Við klæddum okkur upp (smá) og röltum 6th av. til norðurs, upp að Bryant Park og þar niður 44th st.
Þar er staður sem maður dagsins diggar.  Staðurinn heitir Virgils, og ég efa reyndar að það sé í höfuð skáldsins rómverska en það er aldrei að vita.
Þarna var Sigga orðin sextug að íslenskum tíma, ekki USA!
Þar var tekið á móti okkur með kostum og kynjum og bornir fram óhóflega stórir skammtar af afbragðs mat. Eina sem ég fann að þessu öllu var að ég var of saddur í milkshake en ein útgáfan var sérlega spennandi, vanilluís, áfengi, súkkulaði, áfengi o.s.frv.
Þegar þjónninn sem snérist í kringum okkur hafði gert allt sem við vildum (hann heitir Elvis by the way) þá hurfum við út í nóttina.
Varla reyndar hægt að tala um nóttina. Við fórum niður á sjöunda breiðstræti, Broadway, og Times square og þar var allt upplýst með auglýsingaskiltum og marnnmergð á götunum.
Yndislegt.
Þarna voru líka iðnaðar- og verkamenn að hamast, löggur, leikarar, heimamenn, útlendingar og svo framvegis.
Þvílík borg. Eins og Frank sagði: I want to wake up in a city that never sleeps.
og það á við New York New York.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli