Sýnir færslur með efnisorðinu Malta. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Malta. Sýna allar færslur

14.11.14

Fimmtudagur, ferðalag og fleira

Þessi var í London reyndar og fjallar um netelti!

Í dag var farið í skólaheimsóknir. Við ókum frá Sliema sem leið liggur með ströndinni, oft fallegum baðströndum, að flóa Páls postula en hann mun hafa orðið skipreika og bjargaðist fyrir kraftaverk. Hann kristnaði þar með íbúa Möltu.

Við flóann stendur m.a. barnaskóli og er honum stýrt af konu. Það vakti athygli sumra að hún var á ofurháum eiturbláum platform skóm.
 
 
 
Það vakti enn meiri athygli að hlusta á hana því þarna fór skólakona og fór mikinn en á afar hógværan hátt.
Þetta eru slagorðin skólans! (myndavélin biluð).
 
 
Skólinn hefur stækkað gríðarlega á stuttum tíma og þar er um helmingur barnanna innflytjendur. Það kemur nánast barn á dag sagði skólastýran og þess vegna kennum við á ensku (annað af opinberum málum eyjarinnar) frekar en maltnesku.
 
 
Skólinn er fyrir leikskóla (fjögurra ára) upp í 9 ára sýndist mér. Hann var vinalegur og litríkur, á hurðum kennslurýma voru spjöld sem sögðu nafn kennaranna (oftast tveir í bekk) og buðu fólk velkomið. Það var vel tekið á móti okkur og á einum stað var ég sóttur af hópstjóranum því nokkur barnanna höfðu fengið mig til ráðgjafar við púsluspil og ég bara gleymdi mér.






Næst var Mosta drengjaskólinn í Mosta en þar eru drengir frá 10 ára og upp í 15 ára. Hér var verið að sýna okkur að verið væri að þróa val fyrir unglingadeildir sem tengdist starfsnámi. Skólanum á að breyta í blandaðan skóla og hefst það ferli á næsta ári. Mótttökur góðar og aftur mjög mikill metnaður og  kraftur.
Ekki fornleifagröftur heldur verið að undirbúa nám í garðyrkjufræðum - sem hefst líklega næsta ár. Allt tilbúið!
 
 
 
 
Gagnvirkar töflur mjög víða
Skólastjórinn sagði mér að yfirstjórnina skipuðu fimm kennarar og var verkaskipting ekki ósvipuð og hjá okkur í Flensborg. Kennararnira fara í þessi verkefni fulltime  og var hann sá sjötti í hópnum. Um helmingur nemenda var innflytjendur og aftur – kennt á ensku vegna aðstæðna.



Eftir smá kaffisnarl var farið í menntaskóla sem undibýr fólk undir háskóla auk þess að vera með aðra valkosti fyrir þá sem illa gengur. Aftur mjög flott en skólaímyndin alveg gríðarlega föst.

Og loks var farið í MCAST (Malta College of Arts, Sciences and technology.) sem er verið að byggja upp. Þetta er 10.000 – já tíu þúsund nemenda skóli með starfsnám svipað og IH eða TÍ en ak þess er verið að pota honum upp á háskólastig með BS gráðum í vélafræði og fleiru. Aftur að kafna úr metnaði og verulega þreyttur hópur sem komst á hótelið seint og um síðir.
Einn af þessum leiftrandi metnaðarfullu og skemmtilegu gestgjöfum!
 
 
 
 
 
Rafmagnsfræði - eins og ofar sátu nemendur í hring og horfðu á meistarann.
 
 
 
 
Myndin er úr tölvustofu og takið eftir krossinum yfir töflunni!





Lexía dagsins: Maltverjar eru svolítið vissir um að þeir séu búnir að redda þessu brotthvarfsmáli. Þeir eru að gera fjöldamargt og þar sem við komum geislaði allt af metnaði og krafti.

Svo sat ég í kvöld með skólastjóra frá Möltu og fékk hlið átaka og spennu, óvissu og sannarlega hlið sem ég skildi vel.
Enn og aftur - þetta var svo hlaðinn dagur og fróðlegur!

Hugleiðing
Maltverjar eiga, segja þeir, sól, sand og meiri sól. Þá vantar vatn og orku. Í landinu voru tvö orkuver, olíuknúin og nú er eitt. Það á að stinga í samband við Evrópska orkunetið til að fá stabilla rafmagn en nú er. Þá vantar vatn. Vatnið neðanjarðar er uppsafnað regnvatn og verið að móta stefnu um notkun þess. Margir eru með tanka neðanjarðar.
Magnað.

Fundir og flott ferð

Dagurinn í dag varð að þoku því það var svo margt um að tala og á að hlusta.Flestir voru að fara yfir kerfislega hluti. Og segja okkur af því framfaraskrefi að opna strákaskóla fyriri stelpum og að velta vöngum yfir nemendum með væga eða tæplega meðal mikla fötlun. Fötlunin asmi og svoleiðis falla í þennan flokk. Þær Sigga og Eva sem eru hér líka og erum við svolítið hissa. Þrír stóðu upp úr. Einn fjallaði um svona endurreisnar braut sem væri ígildi framhaldsskólabrautarinnar. Svo kom Joanne Grima og ræddi um leiðsagnarmat og tilraunir til að breyta skólastarfi með slíku mati. Hún gat þess að allir bekkir skólans sættu samræmdri prófakönnun tvisvar á ári frá 4 ári. Þriðji (Michael Bondini) var fagmaður úr suðurhlutanum sem notar sitthvað til að lífga upp á skólann og opnaði hjarta sitt með það. Ef ég vildi hitta einhvern af þessum aftur þá væri það hún Joanne Gríma. Eða hann Michael Bondini. Þau voru ekta fólk og með hjartað á réttum stað á þann hátt sem maður finnur stundum.

Síðan var okkur ekið í fjöllin í miðju landsins en þar eru  borgirnar Rabat og Mdina sem eru fornar höfuðborgir Möltu. Upphaflega ein borg sem hét Melíta eða Hunang sem var ein aðalframleiðsluvara Maltverja í þá daga (auk þess sem eyjan er hunangslituð segja þeir). Gangur sögunnar var sá að Maltverjar hafa búið við ok og yfirráð Grikkja, Karþagómanna, Rómverja, Germanna, Araba, hnna og þessara og síðast Breta. Þegar Arabar réðu þá skiptu þeir Melíta borg í tvær – Rabat og hina víggirtu Medina en það eru margar Medínur í arabaheiminum. Í dag heitir Medína Mdina. Við fórum sem sé til Mdina. Aksturinn tók óratíma enda eru skilstl mér allir Möltubúar á eigin bílum og á vissum tímum sólarhringsins eru þessir allir úti að aka. Við vorumí rútu og það var ógnvænlegt að sjá henni sveiflað um göturnar. Það væri ráð að kanna rýmisgreind rútubílstjóra.

Alla vega. Mdina er líka kölluoð borgin þögla því hún var vígi araba og þar var lítið um annað en virkið og hallir þeirra að ræða. Skemmtanahald fór fram annars staðar. Fyrir utan mannvirki og spor araba þá voru þarna að flækjast (eftir daga araba) Frakkar og Ítalir og áfram hélst sú stefna að þarna eru hallir og trúarmiðstöðvar og varnarvirki en borgin að mestu þögul.

Þarna var gaman að fara um og mikið var veitingstaðurinn góður. Þar voru bornir fram sjö forréttir á hlaðborð, sjö aðalréttir og átta eftirréttir.

Enn og aftur var stolt þessa fólks mikið og það svo sannarlega vildi gera vel við okkur.
Svo var okkur ekið til baka og klukkutímaferðin tók 15 mín. I rest my case! Hér þarf að tolla bíla, hækka bensínverð og lækka í strætó!

12.11.14

Malta - gamaldags og notaleg

Það er alltaf spennandi að leggja í ferðalag og þegar maður stefnir á nýja staði þá er fiðringurinn meiri. Ég fer ekki utan samferða Siggu heldur með Siggu sem er starfsmaður borgarinnar og vinnur með m.a. brottfall í tíundabekk.
Flugið gekk vel og þegar maður gekk upp rampinn á Heathrow fékk maður smá heimkomutilfinningu. Samferðafólk mitt vildi fara í búðir smá stund svo við fórum til Hounslow. Ég skellti mér á The Bell og fékk mér bitter............mmmmmmmmm................
Svo þvældist ég um Hounslow og keypti eitthvað af lista Siggu minnar. Dagurinn leið og þegar kvöldaði var Heathrow aftur vettvangurinn og nú fjórði terminalinn. Hann er svakalega fallegur og vel skipulagður.
Um borð og af stað – vélinn fór frá flugstöðinni 5-10 mín of snemma – allir komnir – sæti þröng, þjónusta góð, svolítið Icelandair 1990 (skringilegur heitur flugvélamatur í álformum). Sessunauturinn mér til vinstri var skrafhreyfinn Ítali (Napólí), starfandi í Bretlandi (London) þar sem hann rekur hótel en geymir familíuna á Möltu. Ég fékk langa yfirferð um vandann frá Brussell, sögu Íalíu sem er móðir allrar menningar, vaxandi getu karlaliðsins í knattspyrnu og meðvitaður um árangur kvennaliðsins (en margar þeirra hafa verið í besta skóla landsins).
Samferðakona mín svaf vel og mig langaði oft en kunni ekki vði að sýna manninum dónaskap ef ég kæmist hjá því. Þegar allt kemur til alls þá kemur lagið við Amma Húlar frá Napólí. Skyldu Napólíbúar kunna eitthvert íslenskt lag?
Það var hlýtt þegar við komumst út úr vélinni og hnén mín fegin að missa sambandið við sætisbakið fyrir framan mig. Ungur maður tók á móti okkur og ók okkur um brattar og holóttar götur á bíl sem var með fasta dempara og líklega engin demparagúmmí. Hann hjó svolítið en vandaði sig afskaplega.
Herbergi 204 er ok. Aftur svolítið breskt 1990 en snoturt. Myndirnar eru pínulítið fallegri... Húsin í götunni virka lotleg og höfnin er greinilega hér rétt við.
Ætlaði aldrei að sofna en einhvern tíma gerðist það því síminn vakti mig. Úti sól og blíða, falleg höfn.
Kem að ráðstefnunni á eftir. Nágrenni hótelsins er spes. Hér virðist allt frekar lúið. Bilið mikið. Embættismenn í jakkalakkafötum. Við erum í borgarhluta sem heitir Sliema og er við vog. Þar út liggur túristaskipið Captain Morgan og blár bátastrætó sem auglýsir The Point sem er Kringla.
Maltverjar eru eyjabúar og fámenn þjóð með eigið mál. Þeir búa í fjöllóttu smáríki sem er um 320 ferkílómetrar að flatarmáli (Ísland er um 100 þús. ferkm.) en íbúarnir eru liðlega 400 þús.
Þéttbýlasta ríki Evrópu sagði sessunauturinn í gær.
Ég hef verið svolítiði á rölti í kaffi- og matartíma og Sliema er alla vega þröngar götur og kósýheit. Hlakka til að skoða meira.
Maltverjar virðast stoltir af eyjunni sinni og þjóðerni. Þeir eru viðkvæmir fyrir athugasemdum. Í dag var afskaplega flottur fyrirlesari sem heitir Joanne Grima. Það leiftraði augnaráðið þegar hún lýsti flottu verkefni. Í lokin var spjallað enda var erindið gefandi og hvetjandi en ekki svæfandi. Ég lýsti því m.a. að mér finnist svolítið horft á það að þeir sem "ekki geti lært á bókina" ættu að fara í starfs- eða verknám og að þetta væri trenda í Evrópu.
Næsti fyrirlesari vildi aldeilis leiðrétta þetta og horfði á mig þungum augum meðan hann leiðrétti þetta. á meðan misstu nær allir áhugann á erindinu og menntafólk frá 20 löndum varð eins og ókyrr nemendahópur.
Meira síðar

Værvarsel for Sliema (Malta): I dag, onsdag 12.11.2014 kl. 16–19  20° léttskýjað  kl 19–01     20° heiður himinn.