Sýnir færslur með efnisorðinu education. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu education. Sýna allar færslur

28.7.17

Enn ein tölvu- og skólastarfsgreinin


Rétt eina ferðina birtist grein um tölvur og skólastarf. Hún birtist í Scientific American, virtu visindatímariti og er frekar dæmigerð fyrir það festuhugarfar sem skólastarf situr í að mörgu leyti.

Í greininni er réttilega bent á að fartölvur og netaðgangur geti afvegaleitt athygli nemenda og valdið því að þeir nái ekki háum einkunnum. Þetta á að vísu mest við nemendur sem leiðist, að sögn höfunda, sem játa að slíkir nemendur séu raunar líklegir til að fá lægri einkunnir en þeir gætu náð ef þeir einbeittu sér. En þeir benda á að góðir nemendur sem falla í sömu gildru lækki einnig í einkunn.

Þannig heldur greinin áfram og kemur pínulítið upp um festuna í tilvitnun þar sem segir „related research shows that taking notes by hand is more effective than doing so with a laptop.“

Vandinn við greinina er sá sami og var við umfjöllun í Bretlandi sem gekk heilmikið á Facebook á síðasta skólaári. Þar var fullyrt að einkunnir batni þegar snjallsímar séu bannaðir (ein slík hér úr Time). Einkunnir fóru upp um 6%. En því ekki meira? Hversu hátt hefðu þær farið ef nemandinn hefði átt að nota snjallsímann við verkefni eða próf?

Og hér er komið að aldagömlum vanda skólastarfs.

Í árdaga háskóla voru engar bækur til. Nema handskrifaðar. Þá urðu nemendur að hlýða á endursögn kennara og setja í minnispunkta (ef þeir áttu pappir og penna) eða festa þá í höfði sér.

Prentarar björguðu miklu með list sinni og með þeirra fagmennsku var hægt að fá mun meira af efni í bókum, m.a. fyrirlestra meistaranna eða hugleiðingar þeirra.

Þegar krítartöflur voru bornar inn í skóla á líklega 18. öld fyrst þá var eitt vandamálið það að í fámennum skólum voru allir árgangar saman, hver að fást við sitt eftir aldri. Ef menn voru í stærri skólum þar sem nemendum var raðað í bekki eftir aldri og/eða getu og allir voru samstíga þá var krítartaflann draumur í dós. Þegar útvarp hóf útsendingar sínar þá töldu menn það myndi leysa af skóla. Sama þegar menn fóru að gera heimildakvikmyndir og þegar sjónvarpið kom var málið ratljóst. En það gekk ekki eftir og útvarpið, kvikmyndir og sjónvarp urðu mun öflugri frétta- og afþreyingarmiðlar en kennslumiðlar.

Það sama gildir orðið um tölvurnar (fartölvur/spjöld/bretti/snjallsíma). Skólar á Íslandi, almennt séð (veit að það eru dæmi um annað og að þeim fjölgar), hafa, eins og víðar, ekki náð tökum á því að gera nemendum grein fyrir því að ofurtölvan sem þeir eru með í vasanum er lykill að kjarna alheimsins. Bara ef þeir ná að líta upp úr Facebook og Youtube o.s.frv.

Það eru nokkur mál sem þarf að skoða.

1, Af hverju leiðist nemendum í skóla?

2. Af hverju læra þau betur af glósum, handskrifuðum en að nota dótið (fartölvur/ spjöld/ bretti/ snjallsíma)?

Hvernig má það vera að sex ára börnin sem streyma inn í skólana á hverju haust, full af væntingum, útskrifist úr tíunda bekk með vott af námsleiða sem sest í höfuð sumra þeirra eins og myllusteinn þegar komið er upp í framhaldsskóla?

Skólinn er ekki ómögulegur, segir Ingvi Hrannar Ómarsson. Hann gerir nákvæmlega það sem honum er ætlað. Vandinn er bara sá, segir Ingvi Hrannar, að hann er úreltur.

Byrjum hér. Stærsti hluti íslenskra framhaldsskóla er með fjölbreyttan hóp. Námshópar eru mjög blandaðir. Þar af leiðandi er fyrirlestur sem hannaður í kringum getumiðjuna í raun óskiljanlegt tæki.



Verklagið hlýtur að þurfa að breytast. Nálgunin líka.

Hugsaðu þér hversu frábærlega mætti nota tölvutækni mun meira og á fjölbreyttari hátt í getuskiptum hópi, meira en einstefnukennslu alla vega (og ég veit að það eru valkostir milli þessara tveggja öfga).

Við eigum ekki að taka (suma) kennaraforfeður okkur of mikið til fyrirmyndar. Rannsóknin í Scientific American segir mér ekkert annað en að lykilspurning hafi gleymst.

Það er: Hvernig breytum við verklagi okkar og nýtum þessa tækni?

Eða viljum við gera eins og Xerxes fyrsti Persakeisari sem reyndi að leggja hafið í járn því það var svo mikill öldugangur? Þetta var Sæviðarsund sem hann vildi hlekkja (Bosporussund í Istanbul).

Einu sinni, sem oftar, var okkur Melskælingum smalað á sal til að horfa á bíó. Miklar væntingar. Vorum á bilinu 10-12 ára.

Spólan fyrsta fór af stað og fjallaði um fólk sem bjó við svo harðbýl skilyrði að það var allt flutt í burtu úr viðkomandi sveit. Hræðileg tónlist leikin undir á fiðlu.

Svo var mynd um eldsmíði.

Loks var mynd um fráfærur.

Við horfðum misagndofa á þetta. Ég var áhugamaður um dýr, sveitasælu, tónlist og ónothæfar upplýsingar og fannst þetta fróðlegt. Ég rakti þetta fyrir mömmu þegar ég kom heim.

Ég sá þessar myndir a.m.k. þrívegis í Melaskólanum og alla vega einu sinni í Hagaskóla.

Ég hef oft velt því fyrir mér hver tilgangurinn var því ég minnist þess ekki að þetta hafi verið rætt. Sem sé nýrri hugmynd troðið inn í gamalt form. Og hver var tilgangurinn nema að halda okkur uppteknum í smátíma?

Eða ættum við að horfa fram á veginn, með gróskuhugarfar að vopni og kenna þessum börnum að dótið (fartölvur/spjöld/bretti/snjallsíma) eru svo miklu meira en heilasefjandi, félagseyðandi, afþreying og glymskrattar (jukebox)?

7.2.16

Hvor er nú betri brúnn eða rauður?

Ármann Halldórsson er ofsalega flottur kennari í VÍ. Mér finnst gaman að lesa hann og ég held að hann sé með flottari skólamönnum vefsins.
Hann birti blog um áfangakerfi versus bekkjarkerfi sem er hressandi pistill.
Mig langar samt að svara honum.
Hans pistill er hér:

Forláttu mér menntamannsi þó ég blandi mér í þessa umræðu lítillega.

Mér finnst mikilvægt að svona umræða taki tillit til allra þátta sem skipta máli. Þannig þarf maður að tengja punktana og sjá hvað kemur út.

Það eru næsta fáar rannsóknir sem ég þekki sem gera út á það að kerfi skipti máli. Þvert á móti á ég einhversstaðar OECD bók þar sem fullyrt er að menntakerfi stilli sig einfaldlega saman. HÍ kann að vilja tvítuga stúdenta en Oxford vill þá átján ára o.s.frv. Svo eru sum menntakerfi (t.d. það íslenska og það norska) byggð upp á að nemendur fái innsýn í margar greinar. Önnur, t.d það danska og það enska byggja á að nemendur fækki greinum og sérhæfi sig. Í öllum menntakerfum telja menn að breytingar á þeim muni kollsteypa háskólum landanna.

Fyrsta ályktunin er að kerfi skipta ekki máli, t.d. hvað varðar almenn próf versus sérhæfð, eða hvort nemendur hefja háskólanám 18, 19 eða 20 ára.

Hvað þá með bekkjarkerfi versus áfangakerfi?

T.d. nemendur sækja í bóknám og bekkjarkerfisskóla, að bekkjarkerfisskólar skili fleiri góðum nemendum í háskóla og að þar sé minna brottfall.

Sko.

Í fyrsta lagi er ekki skrýtið að nemendur úr 10. bekk sæki í bekkjarkerfi. Þeir eru að koma úr tíu ára bekkjarkerfi og skólakerfi sem er að langstærstum hluta bóknámskerfi.

Í öðru lagi er ekki skrýtið að bóknámsskólar skili hlutfallsega fleiri góðum nemendum til háskóla. Skárra væri það nú. VÍ og MR tóku nemendur með yfir 9,0 að meðaltali. Bekkjarskólar tóku skv. skýrslu MRN nemendur með 8 eða hærra í meðaleinkunn.

Ef slíkir skólar skila ekki háu hlutfalli nemenda í háskóla eða eru með lítið brotthvarf þá þyrfti nú heldur betur að taka til hendi þar.

Með öðrum orðum, þetta er ekki mælikvarði á kerfið.

Aukinheldur má minna á að kennslumálanefnd HÍ skoðaði árangur nemenda í skólanum út frá árangri þeirra á samræmdum prófum 10. bekkjar ef ég man rétt. Fyrst var skoðað námsgengi með hliðsjón af einkunn nemenda úr grunnskóla. Svo var skoðað eftir framhaldsskólum. Niðurstaðan var prýdd með fyrirsögninni „Framhaldsskólar skipta ekki máli“ sem særði marga.

Staðreyndin var sú að nemendur með t.d. 9 í grunnskólaeinkunn stóðu sig vel í HÍ, án tillits til þess úr hvaða framhaldsskóla þeir komu.

Annað sem nefna má en það er goðsögnin um hvaða skólar eru vinsælastir. Hún byggir á lista yfir hvaða skóla nemendur settu í fyrsta sæti þegar þeir völdu skóla að loknu grunnskólanámi. Ef við tökum hins vegar alla sem sóttu um framhaldsskóla eitthvert árið þá færist efsta sætið til Tækniskólans, en svo koma VMA, MK og FÁ svo nokkuð sé nefnt.

Þannig má segja að ég sé að segja að þessar fyrstu goðsagnir umræðunnar séu einfaldlega rangar.

Sú umkvörtun vegna þeirrar rangsleitni að allt skipulag framhaldsskólakerfisins byggi á áfangakerfi frekar en bekkjunum þá er það vegna þess að:

1.      Þegar framhaldsskólakerfið var að mótast voru nánast engar innihaldslýsingar til í bekkjarkerfisskólum. Áfanga-/fjölbrautaskólarnir tóku völdin með útgáfu námsvísa sem stjórnvöld tóku síðar upp. Sem sé skipuleg undirbúningsvinna þeirra sem leiddu framhaldsskólabyltinguna varð til þess að áfangakerfið sigraði.

2.      Sigraði? Hvað eru margir framhaldsskólar á Íslandi? Venjulega er talað um 30-34 eftir skilgreiningum. Segjum 31-35 með nýstofnuðum menntaskóla á Ásbrú. Hvað finnst þér að eigi að ráða?

a.      Af þeim eru hve margir bekkjarkerfisskólar? MR, Kvennó (skv. skilgreiningu), MS, VÍ, ML, MA. Eru þeir fleiri? Sem sagt fimmtungur lægstu tölu og sjöttungur hæstu tölu.

3.      En hvað stýrir umræðunni? Vandræðastand þeirra skóla sem handvelja nemendur með háar einkunnir. Sem sé lúxusvandamál. Á meðan eru ekki margir að hafa áhyggjur af fjórum fimmtu eða fimm sjöttu skólanna sem taka alla hina. Háar einkunnir, lágar einkunnir, fötlun, námserfiðleikar, snilligáfa. Þessir skólar eru alltaf látnir líta út sem þeir séu annars flokks. Ekki er horft til þess að frá þessum skólum koma oft prýðisnemendur sem fara á seiglu og þrautseigju og fara í háskóla og ljúka BA/BS námi, MA/MS o.s.frv. Þeir voru ekki endilega með 9 á grunnskólaprófi. Þeir voru með allt niður í fjóra.

a.      Og hvor skyldi vera skárri spítalinn – sá sem tekur aðeins þá sem ekki eru veikir eða hinn sem tekur alla?

Það er ekki kerfið sem ræður. Það er ekki skólinn sem ræður. Það er fjöldi nemenda sem ætti að fara langt en fer það ekki, þrátt fyrir að hafa komið úr elítuskóla. Og það er fjöldi nemenda sem fer alla leið þrátt fyrir hrakspár.

Það er sérlega tvennt sem ræður árangri nemenda (en það má telja margt til viðbótar).

Kennarinn er annar þátturinn. Kennari getur brotið og kennari getur byggt. Það sem kennari getur gefið krakkanum sem hefur allt í fangið (námserfiðleika, félagslega erfiðleika o.s.frv.) er ómetanlegt.

Nemandinn er hinn þátturinn. Nemandinn getur kosið að sigla í gegn á eigin vélarafli og bætt litlu við sig. Nemandinn getur líka haft sýn, markmið og haft hvatningu til að gera vel. Hann getur opnað eða lokað. Hann einn skerðir nám sitt eða eykur virðisauka sinn.

Þetta örstutta ágrip get ég byggt undir með heimildum.

Rétt meðan ég hamra þetta nöldur á skjáinn hugsa ég til allra nemendanna sem þjást af námsleiða. Ekki skólaleiða – þau elska skólann. Og á sama tíma sé ég rætt við flóttamenn sem þrá að komst í nám, því þeir trúa að nám geti bætt líf þeirra og lífsskilyrði.

OECD er á sama máli.

Við eigum haug af rannsóknum á framhaldsskólum, hérlendskar og útlendskar.

Vð þurfum bara að tengja þær saman og lesa samhengi þeirra.

En takk fyrir hugleiðingar þínar.

23.1.16

„...Arfurinn...“ Hugleiðingar um gildi þjóðararfsins í raun og veru.

Styttri útgáfa hér aftan við er pistill sem birtist í DV 22/1/2016.
Á undan er lengri og ítarlegri útgáfa hans.

„...Arfurinn...“
Hugleiðingar um gildi þjóðararfsins í raun og veru.

Ég velti því oft fyrir mér hvort menningararfur, þjóðrækni og þjóðernisstefna séu endilega góð fyrirbæri. Tilefnið er raunar þær fyrirmyndir sem „Arfurinn“ leggur fyrir okkur. Það er oft talað um þennan menningararf og mikilvægi þess að varðveita hann og þar með tunguna.

Ég legg á það áherslu að íslenska og íslensk þjóð eru mér hugleikin fyrirbæri en ég velti fyrir mér þeim fyrirmyndum sem fyrir mig voru lagðar í uppeldi mínu og á þroskaskeiði mínu á árum fyrr.

Sögufals?

Einn af öflugri stöpum þess skeiðs voru bækur sem ég var látinn læra um íslenska sögu. Þetta voru bækur eftir Jónas Jónasson frá Hriflu. Þær komu fyrst út árin 1915 til 1917. Ég las þær fimmtíu árum síðar og mér vitanlega voru þær víða í notkun fram yfir 1980.

Mér er það óskiljanlegt að slíkar bækur væru notaðar í áratugi, jafn mörg ósannindi og þar var að finna. Ég minnist þess að þegar ég var í barnaskóla þá vorum við m.a. látin þylja upp kafla hennar, standandi við borðið. Maður gat endursagt kaflann eða lært hann utanbókar, sem í raun var einfaldara. Þar kynntumst við ýmsum hetjum sögunnar og iðullega voru þær hetjur okkur til lítils sóma þegar betur er að gáð.

Meðal þessara var Árni Oddsson.

Árni var sonur Odds biskups og voru þeir feðgar á ferðinni sérlega á 17. öld. Þegar saga þeirra er skoðuð þá sést að þeir voru duglegir að hygla að ættmennum sínum góðum embættum. Æðsti embættismaður Dana stóð í hárinu á þeim og þeir fóru í  mál við hann sem þeir unnu. Jónas gerir nokkuð úr þeirri sögu að Árni hafi verið fastur í Kaupinhafn með konungsbréf. Kaupmenn hafi neitað að flytja hann að fyrirmælum Herluf Daa, danska illmennisins. Heim komst hann og kom til landi í Vopnafirði. Sú saga og sagan af heljarreið Árna frá Vopnafirði til Þingvalla er æsileg og þeir feðgar þjóðhetjur fyrir að sigra þann danska og gera hann eigna- og ærulausann. Lítt fer fyrir þeim sannleika að um var að ræða eiginhagsmunasemi þeirra feðga og hafði því næsta lítil áhrif á sjálfið í sjálfstæðisbaráttunni annað en efla völd þeirra. Hins vegar var alltaf betra að vinna danskinn, þó óheiðarlega væri. Fyrir það urðu menn þjóðhetjur.

Síðar varð Árni Oddsson lögmaður og lýsir Jónas því í dramatískri sögu hvernig Árni þráaðist við að skrifa undir einveldishyllinguna þrátt fyrir hótanir danskra og felldi hetjan tár þegar hann gaf eftir að lokum. Litlu er eytt í þá staðreynd að það sem Árni grét var að völd hans og annarra íslenskra valdamanna yrðu skert. Tárin voru til að knýja það fram að slíkt gerðist ekki strax. Aftur var ljóst að íslensk alþýða og menning voru ekki í huga Árna.

Fleiri hetjur Jónasar má nefna. Þar er t.d. kristnitökuhetjan Þorgeir Ljósvetningagoði sem fékk Aþingi til að samþykkja það að taka upp Kristni, út á það að heimila frávik s.s. útburð barna, - meðan ekki kæmist upp um menn. Þetta situr í þjóðarsál okkar og er grópað þar inn. Það er sem sé að margra mati í lagi að brjóta reglur, ef viðkomandi kemst upp með það. Ef ekki þá fær sá sér lögfræðing og þrætir. Við erum þar með ekki að hugsa um orð Sókratesar sem er mun virtari lögspekingur á heimsvísu. Hann sagði að ef maður er ósáttur við lögin, þá ætti að fylgja lögunum eftir en knýja á breytingar. Það ætti aldrei að brjóta lög.

Enn önnur hetjan var Einar Þveræingur sem beitti sér fyrir því á 11. öld að vorir landar gerðu ekki sáttmála við Noregskonung. Rökin voru þau að þó að menn teldu þáverandi Noregskonung góðan þá væri ekki á vísan að róa með þann næsta. Með þetta að vopni hafa skoðanabræður Þveræingsins haldið aftur af okkur með að gera alþjóðasamninga. Einnig tryggt að við færum inn í slík samtök með það að augnmiði einu að tryggja hvað við fáum út úr því. Ekki hvað við getum lagt fram og þar með bætt heiminn. Ekki eingöngu okkar litla samfélag.

Svona má halda áfram með útúrsnúninga Íslandssögunnar hans Jónasar. Hún er barn síns tíma en það versta var að kynslóð fram af kynslóð var fólk stríðalið á henni, eins og hún væri rétt útgáfa Íslandssögunnar. Hún sagði sögu góðra íslenskra karla sem voru hetjur, konur komu varla við sögu og útlend yfirvöld voru náttúrulega bara til vansa.

Hagsmunahyggja í verki

Við sjáum dæmin um þetta sama mynstur t.d. í því að yfirvöld á Íslandi hröktu fólk vestur um haf til Kanada, frekar en bæta hag manna hér á landi. Eitt af því sem hefði getað komið í veg fyrir þá mannflutninga var að afnema Vistarbandið svokallaða sem bannaði fólki að búa í þéttbýli. Það var ekki fyrr en danska þingið og Danakóngur hótuðu Alþingi því á 9. áratug 19. aldar að kóngur myndi standa að slíku afnámi sjálfur, að Alþingi samþykkti afnám þess og færði landið aðeins nær nútímanum.

Annað var t.d. að Jón Sigurðsson mun nánast hafa horft út um gluggann á skrifstofu sinni yfir í fangelsisgarða þar sem íslenskir menn og konur voru geymd fram til þess tíma að Hegningarhúsið við Skólavörðustíg var byggt. Aldrei vísaði Jón til þessa fólks og ekki man ég mörg dæmi þess að hugtakið mannréttindi hafi verið honum ofarlega í huga. Nema kannski í skólamálum. Svona til að halda því til haga. Fangarnir voru hins vegar oft þarna fyrir litlar sakir.

„Arfurinn...“

En það er fleira sem við höngum í af þessu tagi. Þannig er talið mikilvægt, upp á sjálfsmynd okkar og menningu, að lesa Íslendingasögur. Vissulega verð ég að segja að málfar og framsetning texta margra þeirra er til fyrirmyndar. Hins vegar er mikilvægt að lesa textann með mikla fyrirvara í huga, svo ekki sé talað um boðskap sagnanna, alla vega eins og hann virðist oftast lagður fram.

Tökum sem dæmi sögurnar af fundi Ameríku, sem þá var kölluð Vínland, og þeirri ósvinnu „Skrælingja“ (sem er þeirra daga nafn á frumbyggjum Ameríku) að gera norrænum mönnum illkleift að búa  þar. Skrælingjarnir héldu uppi stríðsrekstri og reyndu að ýta þessum góðu norrænu mönnum burtu. Óskiljanlegt.

Ein sagan af samskiptum okkar góðu forfeðra við þessa voðalegu Skrælingja er saga um frumbyggja sem lágu sofandi undir bát sínum við árbakka. Norrænu mennirnir komu að þeim og frekar en leyfa þeim bara að kúra áfram þá drápu þeir frumbyggjana. Þegar ég las þessi herlegheit þá var þetta meðal annars tekið sem dæmi um kímnigáfu höfunda frásagnanna um fund Ameríku. Kennarinn hafði lítinn áhuga á ambri mínu og fleiri nemenda um að þetta væri varla fyndið.

Það var því annski ekki skrýtið að frumbyggjunum hugnaðist illa að deila landi með þessu aríska sómafólki.

Önnur hetja er Egill Skallagrímsson, sem frá blautu barnsbeini virðist hafa verið drápsmaskína. Enn ein er Kjartan Ólafsson, ávöxtur þess að faðir hans, Ólafur Pá, skrapp til Írlands, keypti sér ambátt, rekkti hjá henni og barnaði, kom henni fyrir á næsta bæ og hélt við hana. Litlir fyrirvarar eru gerðir við þá staðreynd að maðurinn átti konu fyrir.

Hetjan sem var illmenni eða öfugt...

Nokkrir útlagar eru þekktir úr fortíð okkar. Tökum tvo til kostanna.

Annar er hetjan Gísli Súrsson, sem drap mann,í hefndarskyni og án þess að hafa sótt það fyrir rétti hvort sá maður væri sekur. Gísli var dæmdur til skóggangs, sem þýddi að hann mátti ekki vera meðal manna. Ættmenni hins myrta vildu ekki sættast við þessa niðurstöðu og áttu skv. lögum rétt á að ná Gísla og drepa. Svona rétt eins og hann væri veiðidýr.

Eyjólfur grái, var sem sé lögga þess tíma, að ná morðingja, sem sagan kynnir sem hetju.

Öllu meiri hetju finnum við í Gunnari á Hlíðarenda og þeim Njálssöguhetjum. Þar tekur nú steininn úr. Myndríkar lýsingar Njálu má túlka á marga vegu, - stundum kann að vera óvarlegt að nota nútímann sem viðmið, - en...

Mér finnst til dæmis mjög magnað þegar höfundur Njálu dregur upp sorg og reiði Hildigunnar, ekkja Höskuldar. Hún gefur Flosa blóði drifna kápu bónda síns og brýnir hann til hefnda. Hildigunnur hafði ekki rétt til að reka mál bónda síns. Hún varð að fá einhvern til þess. Með því að gefa Flosa kápuna og kalla hann níðing ef hann gerði ekkert í málinu er hún að beita nánast eina ráðinu sem kona hafði.

Höfundur Njálu – femínisti?

Það eru mörg frekar biluð dæmi í Njálu en mér þykir alltaf svolítið vænt um Hallgerði. Þjóðmenningin og arfurinn líta á hana sem illyrmi. Ég reyndar hef alltaf talið að höfundur Njálu sé að búa til kvenhetju í Hallgerði. Kona sem hefur mátt búa við rógburð og heimilisofbeldi.

Hallgerður er eins konar femme fatale, hin hættulega kona. Köld eru kvennaráð segir Flosi, reyndar við Hildigunni (sjá hér að ofan), en karlar sögunnar halda saman, gegn konum sínum. Þetta er reyndar mjög þekkt í alla vega vestrænum samfélögum. Karlar halda konum til hliðar, svipta þær völdum, kaupa og selja, berja eftir behag og smag, en loka sig af í fóstbræðralögum, leynireglum og lokuðum klúbbum.

Aftur að Hallgerði. Fyrir utan það að vera lýst sem sérlega fagurri þá er hún einnig sögð örlynd og skaphörð. Sagan þegar hún hittir Gunnar á Þingvelli er leiftrandi af kynþokka og augljós ætlun höfundar að sýna hvernig hún hefur undirtökin í því máli. Hallgerður kveikir losta Gunnars og hann á sér ekki undankomu auðið.

En Hallgerður var barin í fyrri tveimur hjónaböndum sínum og einnig í því þriðja. Gunnar löðrungaði hana og hefur þjóðinni jafnan þótt réttmætt að svo væri. Hún lét stela frá besta vini hans. Hetjan gat ekki liðið það að stolið væri frá öðlingnum vini hans svo hann barði hana.

Við vitum í nútímanum að sá sem lemur frá sér einu sinni er líklegur til að gera það oftar. Auk þess sem báðir fyrri eiginmanna höfðu barið hana. Hún var fórnarlamb heimilisofbeldis. Fólk sem losnar úr ofbeldissambandi er líklegt til að lenda í öðru ef það fær ekki hjálp.

Ég hef oft velt því fyrir mér þegar ég les kaflann um umsátrið að Hlíðarenda hverju höfundur Njálu er að ná fram.

Staðan er þessi. Gunnar er hetja og Hallgerður illyrmi fyrir að lána honum ekki hár í bogann. Vondir menn sitja um bæinn og drepa Gunnar.

En þetta er bara ekki eini skilningurinn. Hér er um fleira en eitt að ræða.

Í fyrsta lagi var Gunnar sekur maður og átti að fara úr landi. Þegar hann stökk af hesti sínum og mælti þessa frægu setningu: „Fögur er hlíðin...“ þá vissi hann hvaða áhættu hann tók. Rétt eins og Gísli Súrsson, var hann orðinn eins og veiðidýr. Gunnar hafði vegið mann, var dæmdur til útlegðar frá Íslandi og ef hann virti það ekki var hann réttdræpur af frændum mannsins sem hann drap. Með öðrum orðum – hetjan var morðingi og dæmdur morðingi að auki.

Í öðru lagi var hann líka maður sem barði. Eins og fleiri. Getur verið að Hallgerður hugsað sér að nú væri fullreynt? Allt er þá þrennt er? Eina leiðin út var að láta drepa Gunnar, sem var réttdræpur hvort eð var, komast yfir eignir og geta búið sem sjálfstæð kona, ein og ógift, laus undan ofbeldinu og óhollustunni sem makar hennar höfðu sýnt? Sem hún gerði. Hún bjó í Laugarnesi síðustu ár sín.

Í öllu falli þá velti ég því fyrir mér hvernig eigi að bera menningararfinn og söguna á borð.

Og ég kalla á endurskoðun á rangfærslum og karlægum myndum þessa án efa merka en villuboðandi menningararfs.

 Pistillinn úr DV.

„...Arfurinn...“
Hugleiðingar um gildi þjóðararfsins í raun og veru.

Ég velti því oft fyrir mér hvort menningararfur, þjóðrækni og þjóðernisstefna séu endilega góð fyrirbæri. Tilefnið er raunar þær fyrirmyndir sem „Arfurinn“ leggur fyrir okkur. Það er oft talað um þennan menningararf og mikilvægi þess að varðveita hann og þar með tunguna.

Ég legg á það áherslu að íslenska og íslensk þjóð eru mér hugleikin fyrirbæri en ég velti fyrir mér þeim fyrirmyndum sem fyrir mig voru lagðar í uppeldi mínu og á þroskaskeiði mínu á árum fyrr.

Sögufals?

Einn af öflugri stöpum þess skeiðs voru bækur sem ég var látinn læra um íslenska sögu. Þetta voru bækur eftir Jónas Jónasson frá Hriflu. Þær komu fyrst út árin 1915 til 1917. Ég las þær fimmtíu árum síðar og mér vitanlega voru þær víða í notkun fram yfir 1980.

Mér er það óskiljanlegt að slíkar bækur væru notaðar í áratugi, jafn mörg ósannindi og þar var að finna. Ég minnist þess að þegar ég var í barnaskóla þá vorum við m.a. látin þylja upp kafla hennar, standandi við borðið. Maður gat endursagt kaflann eða lært hann utanbókar, sem í raun var einfaldara. Þar kynntumst við ýmsum hetjum sögunnar og iðullega voru þær hetjur okkur til lítils sóma þegar betur er að gáð.

Þar er t.d. kristnitökuhetjan Þorgeir Ljósvetningagoði sem fékk Aþingi til að samþykkja það að taka upp Kristni, út á það að heimila frávik s.s. útburð barna, - meðan ekki kæmist upp um menn. Þetta situr í þjóðarsál okkar og er grópað þar inn. Það er sem sé að margra mati í lagi að brjóta reglur, ef viðkomandi kemst upp með það. Ef ekki þá fær sá sér lögfræðing og þrætir. Við erum þar með ekki að hugsa um orð Sókratesar sem er mun virtari lögspekingur á heimsvísu. Hann sagði að ef maður er ósáttur við lögin, þá ætti að fylgja lögunum eftir en knýja á breytingar. Það ætti aldrei að brjóta lög.

Enn önnur hetjan var Einar Þveræingur sem beitti sér fyrir því á 11. öld að vorir landar gerðu ekki sáttmála við Noregskonung. Rökin voru þau að þó að menn teldu þáverandi Noregskonung góðan þá væri ekki á vísan að róa með þann næsta. Með þetta að vopni hafa skoðanabræður Þveræingsins haldið aftur af okkur með að gera alþjóðasamninga. Einnig tryggt að við færum inn í slík samtök með það að augnmiði einu að tryggja hvað við fáum út úr því. Ekki hvað við getum lagt fram og þar með bætt heiminn. Ekki eingöngu okkar litla samfélag.

Svona má halda áfram með útúrsnúninga Íslandssögunnar hans Jónasar. Hún er barn síns tíma en það versta var að kynslóð fram af kynslóð var fólk stríðalið á henni, eins og hún væri rétt útgáfa Íslandssögunnar. Hún sagði sögu góðra íslenskra karla sem voru hetjur, konur komu varla við sögu og útlend yfirvöld voru náttúrulega bara til vansa.

Í öllu falli þá velti ég því fyrir mér hvernig eigi að bera menningararfinn og söguna á borð.

Og ég kalla á endurskoðun á rangfærslum og karlægum myndum þessa án efa merka en villuboðandi menningararfs.




25.5.15

Skólaslit vorið 2015 - ávarp mitt.


Ágætu gestir, formaður skólanefndar, útskriftarefni og starfsmenn

Ennþá vermir vinabál / vinir gleðjast saman. / Frjáls við eigum eina sál, / enn er fjör og gaman.

Þessi hending er úr lengra kvæði um nemendur og kennara Flensborgarskólans. Það orti Hörður Zóphaníasson, sem lést nýverið, mætur skólamaður. Mér fannst það hæfa hér, þar sem hér eru samankomnir, meðal annarra, fyrsti hópurinn sem útskrifaðist sem stúdentar frá Flensborg, 1. júní 1975 sem og hópurinn sem mun útskrifast í dag, 40 árum síðar.

Þessi fyrsta útskriftarathöfn var hluti af byltingu sem varð mun stærri en flesta óraði fyrir. Tildrögin voru þau að á sjöunda áratug 20. aldar átti sér stað mikil umræða um skólamál á Íslandi. Fremstu skólamenn þjóðarinnar töldu að í fyrsta lagi myndi eftirspurn eftir skólaplássum aukast. Að auki myndi þurfa að endurskipuleggja mjög flókið skólakerfi og þoka því í átt til framtíðar svo, meðal annars, Ísland gæti staðið jafnfætis öðrum þjóðum.

En það var fleira. Í lagafrumvarpi sem upphaflega var lagt fram árið 1969 var grein sem greiddi götu áfangakerfisins, sem þar með var tekið upp í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Áfangakerfið hefur síðan þróast en er í dag ráðandi aðferðafræði íslenskra framhaldsskóla. Í sama frumvarpi var rætt um mikilvægi þess að taka upp annað viðurkennt próf við hlið stúdentsprófsins sem sé ætlað þeim sem ekki ætla í háskóla. Þá var rætt um nauðsyn þess að efla einstaklingsbundið nám, auka valfrelsi, þjálfa sjálfstæð vinnubrögð og að aldur útskrifaðra stúdenta þyrfti að vera lægri.

Hljómar kunnuglega hygg ég.

Nýskipaður skólameistari Flensborgarskólans, árið 1970, greip þessar hugmyndir á lofti. Kristján Bersi Ólafsson var ekki einungis maðurinn sem stýrði, ásamt einvalaliði, því að hér yrði kennt til stúdentsprófs. Hann setti sig og skólann í forystusveit sem breytti íslenska framhaldsskólakerfinu. Og við erum enn að.

Þannig tengjast þessi ungmenni sem héðan útskrifuðust fyrir fjörutíu árum þeirri þróun sem nú er í gangi og því enn er verið að móta og laga. Skóli og námskrár eru í stöðugri mótun og einmitt á þessu vori er skólinn, eins og þá, ólgandi deigla hugmynda.

Við fögnum þeim hlýhug sem þessi fyrsti hópur stúdenta sýnir okkur og við erum stolt af þeim. Þessi hópur, 30 manns, sótti fram til nýrra verka og nýrra tíma.

Flensborg 40 árum síðar er nokkuð annar skóli. Húsum hefur verið breytt, notkun þeirra og útliti. Sú sýn Kristjáns Bersa að það þyrfti meira en eingöngu menntaskóla í Hafnarfjörð hefur ræst. Í dag er hér unnið með nemendur sem ganga til stúdentsprófs, nemendur á starfsbraut og nemendur sem ætla sér í aðra átt, en þurfa grunn undir námið og leiðsögn.

Við stærum okkur af því að geta unnið með alla nemendur sem vilja stunda nám og höfum byggt upp kerfi sem styður við alla sem þurfa á aðstoð að halda. Það grundvallast á sýn stofnenda skólans, frú Þórunnar Jónsdóttur og sr. Þórarins Böðvarssonar prófasts.

En við lærum ekki fyrir aðra. Námið er það sem nemandinn stundar. Við veitum leiðsögn, kennum, vísum veginn og styðjum fólk til góðra verka. Við viljum að nemendur okkar nýti sér það.

Það er margt sem hefur breyst. Í stað þess að gera athugasemdir við miða sem gengu milli manna, þá er það símarnir í dag. Orka ungmenna finnur sér ætíð farveg og það gerir þau so skemmtileg og oft ögrandi sem viðfangsefni.

Þessi vetur hefur verið annasamur. Vonir standa til með að nú fari ófriðarástandið sem kennarar og starfsfólk framhaldsskóla hafa búið við undanfarin ár, að ganga niður. Í raun hafa verið ófriðartímar um störf kennara og starfsmanna í framhaldsskólum megnið af þessari öld. Það er kominn tími til að lægi. Við höfum verið að vinna úr kjarasamningum, vinna í námskrármálum, skipulagsmálum, s.s. stundaskrá, auk ýmissa annarra mála sem hvert um sig duga til að halda fólki uppteknu.

Námskrárvinnan hefur verið í forgangi í vetur og henni tengd, mikið markaðsstarf. Þá hafa verið í þróun ýmsar nýjungar tengdar félagslífi, ný námsgrein í lífsleikni og umsjón auk þess sem kennarar sumra greina hafa endurskipulagt uppbyggingu námsins. Nýjar áfangalýsingar streyma inn og Hildur Einarsdóttir sem leiðir þessa vinnu hamast við yfirlestur. Í þeim er talað um leiðsagnarmat, verkefnamiðað nám og fleira sem við höfum þreifað á en ekki hrint í framkvæmd.

Andinn hér innandyra hefur verið góður og þó veðrið úti hafi verið hryssingslegt á köflum þá leiddu starfsmenn slíkt hjá sér nema rétt meðan greidd voru atkvæði um kjarasamninga sem ýmist héldu eða féllu.

Við höfum líka reynt að hlúa að ýmsu í aðstöðu skólans. Eitt lítið dæmi er það að við settum til dæmis upp vinnustofu þar sem íbúð skólastjóra var, þar sem Snorri Jónsson yfirkennari bjó um hríð og köllum Snorrastofu. Við fengum hóp kennara í að vinna með spjaldtölvur og við höfum lagt kapp í að bæta margt í tölvuaðstæðum, t.d .með gríðaröflugu þráðlausu neti sem smátt og smátt er að breyta ýmsu í verklagi okkar. Spjaldtölvur og símar eiga að vera sóknarfæri í námi en ekki Þrándar i Götu. Fyrir nokkrum áratugum var kvartað yfir því að kúlupennar væru að ryðja burtu blýöntum. Það myndi setja skólastarf í uppnám. Sama gilti um sítt hár karla, útvíðar buxur og svo marga hluti sem heilla ungt fólk. En sagan sýnir annað.

Fagleg staða skólans er sterk.Við hlúum að starfi nemenda, vinnum með hugmyndina um Heilsueflandi framhaldsskóla og höfum fengið styrki til að þróa þær hugmyndir áfram. Núvitund kemur sterkt inn ásamt hugmyndum um hugarfar, styrkleika einstaklingsins, jákvætt skólastarf og vinnu með þjálfun hugans og heilans.

Með þessu stefnum við, eins og forverar okkar, að því að leiða góða skólamálaumræðu á Íslandi.

Fyrrum nemendur okkar starfa um allan heim, ekki eingöngu í hópi fyrstu stúdentanna. Við höfum séð það í umfjöllunum fjölmiðla. Vísindamenn, listafólk, skapandi einstaklingar.

Vegna íþróttaafrekssviðsins þá fáum við erlenda háskóla í heimsókn sem vilja fá okkar fólk til liðs við sig. Sumir komu oftar en einusinni í vetur.

Og þá er gott að finna hlýhug í okkar garð. Dæmi um það var forláta gjöf sem skólinn fékk en það var útskorinn stóll, gerður af Ríkharði Jónssyni. Lárus Bjarnason, skólastjóri í Flensborg frá 1931 til 1941, eða einmitt þegar hér var reist Höll á bjargi, elsta húsið okkar sem getið er um í skólasöngnum okkar. Þegar hann lét af störfum færðu samstarfsmenn hans honum þennan forláta stól. Stólinn kom til okkar frá Öddu Geirsdóttur, sem hafði varðveitt hann frá því Lárus lést árið 1956. Fyrir það erum við afskaplega þakklát.

Ekki eru miklar breytingar í starfsmannahópnum. Elsa Bessadóttir, sem starfar á bókasafninu lætur af störfum vegna aldurs. Bryndís Jóna Jónsdóttir, mannauðsstjóri, fer í launað orlof og Erla Ragnarsdóttir leysir hana af næsta ár. Dagrún Steinunn Ólafsdóttir fer einnig í launað orlof en Guðrún Hafdís Eiríksdóttir snýr aftur úr ólaunuðu leyfi. Þær kenna báðar stærðfræði.

Áslaug Þórðardóttir tekur sér launalaust leyfi til áramóta og Tinna Þuríður Sigurðardóttir, stuðningsfulltrúi hverfur til annarra starfa en ætlar sér að ganga Jakobsveginn á Spáni fyrst. Það er víst allgóður spassitúr.

Þessi upptalning verður látin duga en ég vil þó þakka öllum þeim stóra hópi starfsmanna sem leggur hér hönd á plóg daglega. Það er feyknalega öflugur hópur og ekki má heldur gleyma forkólfum nemenda. Það er sannarlega hægt að fá nýja vídd á orðatiltæki eins og þegar sagt er að Kraftaverk séu unnin samstundis en óframkvæmanlegir hlutir bíði til næsta dags.

Við viljum horfa fram á veginn, vera skrefinu á undan og það gerðum við til dæmis með hugmyndinni að Heilsueflandi framhaldsskóla, íþróttaafrekssviði og núvitund. Nú er komið að því að taka þetta á næsta stig. Það gerum við með nýrri námskrá þar sem við stofnum til Listnámssviðs og félagslífssviðs. Við gerum það líka með því að nota Snjáldru eða Facebook og hvetjum fólk til að gera hamp við nafn okkar þar – en að gera hamp er íslenska útgáfan af því að læka.

Kristján Bersi var framsýnn maður þegar hann gekk til liðs við byltingarmenn í íslensku skólastarfi fyrir liðlega fjörutíu árum. Hann sagði þó sjálfur að hann hefði alltaf séð eftir því að hafa ekki tekið eitt skref enn. Nýju skólarnir tóku nefnilega stúdentspróf bekkjarkerfisins og röðuðu því inn í áfangakerfið. Hann skrifaði í grein að það hefði verið mistök að taka málið ekki skrefinu lengra og búa til ný próf. Það er einmitt skrefið sem við viljum stíga nú. Stúdentsprófið nýja á ekki að vera fjögurra ára prófið troðið á þrjú ár. Það á að vera nýtt próf, nýjar nálganir, sannreyndar vísindalega sem undirbúa fólk undir háskólanám á nýjum forsendum.

Flensborgarskólinn er eldri en þau 40 ár sem nefnd voru í upphafi máls míns. Reyndar segi ég oft að það sé mjög ánægjulegt hvað við eigum mörg tilefni til að gleðjast þegar við viljum. Hann hefur verið kjölfesta í menntamálum frá lokum 19. aldar og hefur lifað af og leitt marga sviptivinda í menntapólítík, oft með því að raða sér fremst í hópinn. Nú þegar verið er að ræða allskonar byltingar og sameiningar í menntamálum þá skiptir okkur máli að vera vel tengd við samfélagið í kringum okkur. Það er ekki nóg að vera í samstarfi við bæinn, grunnskóla, Tónlistarskólann, íþróttafélögin svo nokkuð sé nefnt. Við þurfum líka á því að halda að vera í fremstu röð, og erum það hvað varðar Heilsueflandi framhaldsskóla, núvitund og hugarfar. Þar með erum við að vinna með styrkleika nemenda, seiglu og úthald og byggja upp væntingar og árangur.

En það er eitt til viðbótar. Það er lífsnauðsyn að Flensborgarar fyrr og síðar rétti úr bakinu og horfi framan í heiminn og muni að þeir eru hluti af hópi sem á það sammerkt að hafa stundað nám i einum elsta skóla landsins, en jafnframt skóla sem hefur ítrekað verið í forystu í skólamálum. Það er nefnilega flott að vera Flensborgari. Mjög flott.

23.5.15

Svarið getur verið rétt en spurningin var það örugglega ekki

Þegar ég var í Melaskóla, tólf ára, á leið í Hagaskóla, kvaddi kennarinn okkur með þeim orðum að við skyldum passa okkur á Bítlunum því annars yrðum við eiturlyfjaneytendurog kynvillingar.
Við vissum held ég fæst hvað þetta tvennt þýddi og hlustuðum á Bítlana og margt verra og hættulegra réttrúnaði og köldu stríði sem þá ríkti.

Mér dettur þetta nú í hug þegar ég, rétt eftir útskrift í Flensborg, rekst á umfjöllun Fréttablaðsins um snjallsíma í breskum skólum. Það er raunar mun mikilvægari frétt par opnum framar sem er viðtal við Dr. Sigrúnu Harðardóttur um hið raunverulega innbyggða óréttlæti íslensks skólakerfis sem mér finnst samfélagið leiða hjá sér með öllu.

En umfjöllunin sem ég á við er tilvitnanir í breska fjölmiðla um rannsókn þeirra Beland og Murpys um farsímanotkun í skólum.

Eins og oft áður snýst stóra spurningin um spurninguna. Um hvað er verið að spyrja. Því ef maður les vandlega, oft harla furðulegar, umfjallanir breskra dagblaða þá er á ferðinni fordómafull og þröngsýn umræða af þeim kalíber sem t.d. einkenndi viðhorf ofangreinds kennara.

Það kemur fram í fréttinni t.d. að einkunnir hafi hækkað um 6,4% við það að banna símanotkun nemenda. Þetta hlýtur að hafa verið fyllilega samanburðarhæfur hópur nemenda að taka fyllilega sambærilegt próf við fyllilega sambærilegar aðstæður.

Og 6,4% eru ekki mikið.

Ímyndum okkur hver árangurinn hefði getað orðið ef nemendur hefðu t.d. getað notað símana við að leysa prófið?

Þessi umræða endurspeglar ótta okkar skólafólksins við þessa nýju tækni. Ég lét orð falla í skólaslitaræðu að þetta minnti mig á umræðuna um kúlupenna þegar ég var að byrja í skóla.
Ég átti að mæta með blýant. Og þegar ég átti að vera búinn að ná vissri skriffærni (sem ég hef enn ekki náð) átti mamma eða þá pabbi, að kaupa lindarpenna. Blekpenna. EKKI kúlupenna. Það var bannað.

Ég eignaðist nú samt kúlupenna - forláta Papermate penna sem gat skrifað upp í loft - en hann lá bara ónotaður í veskinu mínu.

Seinna var bannað að vera með skrúfblýanta.

Og hvers vegna í ósköpunum?

En sem sé - það eru til rannsóknir á rannsóknir á rannsóknir ofan (og ég get haldið áfram með þennan lista) sem sýna að
1. spjöld og símar koma til móts við mismunandi námsfærni nemenda. Nemendur geta frekar farið á sínum hraða.
2. Þessi tæki veita nemendum tækifæri til vinnubragða sem blað og blýantur gera ekki.
3. Þau auðvelda samskipti - sem vissulega þarf að stýra - og opna heiminn  utan stofunnar.
4. þau auðvelda nemendum með athyglisbrest og alls kyns námserfiðleika mikið og draga úr námsleiða.

Spurningin sem Beland og Murphy settu fram er sem sé líklega vitlaus. Það á vitaskuld ekki að leyfa nemendum að vera með símana á lofti til að taka selfies eða myndir af bekkjarfélögum o.s.frv. Hins vegar er hrein firra að ætla að láta eins og þetta séu einhver tæki úr neðra sem ógni nútímanum og séu "the end of civilisation as we know it."

Það er vonlaust að banna svona hluti og hefur alltaf verið. En það er hægt að átta sig á tækifærunum sem þarna er að finna.

Maður skyldi alla vega ætla það.