Þegar ég var í Melaskóla, tólf ára, á leið í Hagaskóla, kvaddi kennarinn okkur með þeim orðum að við skyldum passa okkur á Bítlunum því annars yrðum við eiturlyfjaneytendurog kynvillingar.
Við vissum held ég fæst hvað þetta tvennt þýddi og hlustuðum á Bítlana og margt verra og hættulegra réttrúnaði og köldu stríði sem þá ríkti.
Mér dettur þetta nú í hug þegar ég, rétt eftir útskrift í Flensborg, rekst á umfjöllun Fréttablaðsins um snjallsíma í breskum skólum. Það er raunar mun mikilvægari frétt par opnum framar sem er viðtal við Dr. Sigrúnu Harðardóttur um hið raunverulega innbyggða óréttlæti íslensks skólakerfis sem mér finnst samfélagið leiða hjá sér með öllu.
En umfjöllunin sem ég á við er tilvitnanir í breska fjölmiðla um rannsókn þeirra Beland og Murpys um farsímanotkun í skólum.
Eins og oft áður snýst stóra spurningin um spurninguna. Um hvað er verið að spyrja. Því ef maður les vandlega, oft harla furðulegar, umfjallanir breskra dagblaða þá er á ferðinni fordómafull og þröngsýn umræða af þeim kalíber sem t.d. einkenndi viðhorf ofangreinds kennara.
Það kemur fram í fréttinni t.d. að einkunnir hafi hækkað um 6,4% við það að banna símanotkun nemenda. Þetta hlýtur að hafa verið fyllilega samanburðarhæfur hópur nemenda að taka fyllilega sambærilegt próf við fyllilega sambærilegar aðstæður.
Og 6,4% eru ekki mikið.
Ímyndum okkur hver árangurinn hefði getað orðið ef nemendur hefðu t.d. getað notað símana við að leysa prófið?
Þessi umræða endurspeglar ótta okkar skólafólksins við þessa nýju tækni. Ég lét orð falla í skólaslitaræðu að þetta minnti mig á umræðuna um kúlupenna þegar ég var að byrja í skóla.
Ég átti að mæta með blýant. Og þegar ég átti að vera búinn að ná vissri skriffærni (sem ég hef enn ekki náð) átti mamma eða þá pabbi, að kaupa lindarpenna. Blekpenna. EKKI kúlupenna. Það var bannað.
Ég eignaðist nú samt kúlupenna - forláta Papermate penna sem gat skrifað upp í loft - en hann lá bara ónotaður í veskinu mínu.
Seinna var bannað að vera með skrúfblýanta.
Og hvers vegna í ósköpunum?
En sem sé - það eru til rannsóknir á rannsóknir á rannsóknir ofan (og ég get haldið áfram með þennan lista) sem sýna að
1. spjöld og símar koma til móts við mismunandi námsfærni nemenda. Nemendur geta frekar farið á sínum hraða.
2. Þessi tæki veita nemendum tækifæri til vinnubragða sem blað og blýantur gera ekki.
3. Þau auðvelda samskipti - sem vissulega þarf að stýra - og opna heiminn utan stofunnar.
4. þau auðvelda nemendum með athyglisbrest og alls kyns námserfiðleika mikið og draga úr námsleiða.
Spurningin sem Beland og Murphy settu fram er sem sé líklega vitlaus. Það á vitaskuld ekki að leyfa nemendum að vera með símana á lofti til að taka selfies eða myndir af bekkjarfélögum o.s.frv. Hins vegar er hrein firra að ætla að láta eins og þetta séu einhver tæki úr neðra sem ógni nútímanum og séu "the end of civilisation as we know it."
Það er vonlaust að banna svona hluti og hefur alltaf verið. En það er hægt að átta sig á tækifærunum sem þarna er að finna.
Maður skyldi alla vega ætla það.
Magnús Þorkelsson er skólameistari Flensborgarskólans og íbúi í Hafnarfirði. Hann er hamingjusamlega giftur þriggja barna faðir og AFI sem er óskaplega merkilegt.
Sýnir færslur með efnisorðinu skóla. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu skóla. Sýna allar færslur
7.4.15
Styttingin eina ferðina enn
Ég er enn að reyna að skilja umræðuna um styttingu náms til
stúdentsprófs.
Þessa dagana sérlega þar sem sumir virðast halda að þetta sé
einhver ný dilla sem verið sé að troða í gegn, með hraði og þvert á vilja
skólanna sem slíkra.
Meira að segja háskólarektorsframbjóðendur virtust telja í
þættinum Vikulokin að þetta væri enn á hugmyndastigi (sjá sarp RÚV 4/4 2015).
Þá töluðu þeir um að rýra gildi stúdentsprófsins og aðeins einn þeirra virtist
vita um aðgangskröfur skólanna sem gera nú í fæstum tilvikum kröfur um það nám
sem hefur verið í gangi síðustu ár.
Það er sem sé eitt og annað sem vantar í umræðuna.
Menn gefa sér að núverandi kerfi sé gott. Nú ætla ég ekki að
fullyrða að svo sé ekki en bendi á að það er næsta fátt til sem segir af eða á
um það. Kerfið hefur ekki verið rannsakað sem slíkt. Auk þess sem núverandi
kerfi er eiginlega ekki kerfi. Á þetta hefur margoft verið bent.
Þá tala menn eins og þessi styttingarumræða sé einhver
bráðasýki núverandi menntamálaráðherra.
Loks miðar umræðan við einhverja mynd af skólakerfi sem er
bara alls ekki til.
Let me put it like this:
1.
Á dögunum hlýddi ég á samtal þar sem kvartað var
yfir því að HÍ væri að innleiða aðgangspróf (APH) vegna styttingarinnar. Þetta
er ekki rétt. Aðgangsprófin og umræðan um þau kom í kjölfar laganna frá 1996 og
hafa þau verið í umræðu um langt skeið. Þau eru framkvæmd á grunni núverandi
kerfis, en ekki þess nýja. Raunar mætti halda því fram að ef háskólastigið
hefði fallist á samræmd stúdentspróf sem reynt var að halda í upphafi 21. aldarinnar
þá væri ekki þörf fyrir APH.
2.
Aðgangskröfur háskólanna eins og þær birtast á
vefjum t.d. HÍ, FSu og FMos eru síðan afar fróðlegar og kalla á verulega fækkun
námsgreina. Þannig er lagadeildin nánast eina deildin sem kallar á dönsku.
Þriðja mál er nær aldrei nefnt, hvað þá fjórða mál. Sagan sjaldan og
félagsfræðin og þannig má lengi telja. Með öðrum orðum háskólar gera varla
kröfu um það stúdentspróf sem í boði er.
3.
Svo má spyrja hvað er stúdentspróf?
a.
Tveggja ára kerfi Menntaskólans Hraðbrautar
(vottað af MRN)?
b.
Þriggja ára kerfi Kvennaskólans, FMos, FSnæ og
MTröll (vottað af MRN)?
c.
Fjögurra ára kerfið skv. námskrá frá 1999
(vottað af MRN)?
d.
Próf úr Sumarskóla FB (vottað af MRN)?
e.
Próf úr öldungadeild eða fjarnámi (vottað af
MRN)?
f.
Próf úr háskólabrúm (vottað af MRN)?
g.
Próf úr ríkisskólum eða einkaskólum eða
áfangakerfi eða bekkjarkerfi (vottað af MRN)?
h.
Minnt er á að í áfangaskóla geta nemendur verið
2,5 ár eða fleiri að ljúka fjögurra ára kerfinu!
i. Og
svona rétt til að kóróna vitleysuna má benda á fjölmargar „ytri úttektir“ á
vegum Mennta- og menningarmálaráðuneytisins (MRN) sem nær aldrei fjalla um
kennslu og nám… hvers virði sem það nú kann að vera.
Sem sé
- um hvaða kerfi er verið að standa vörð?
4.
Loks er mjög mikilvægt að menn skilgreini hvers
vegna duglegir íslenskir nemendur ættu að sitja þetta nám í fjögur ár? Það
þekkist varla á Vesturlöndum að nemendur séu að taka aðgangspróf að háskóla 20
ára gamlir. (sjá hvítbók).
5.
Eitt enn – heimurinn breytist. Skólinn er fyrir
nemendur. Gleymum því ekki.
a.
Umræðan um lengd náms til stúdentsprófs er
ævagömul. Þegar MR var stofnaður á 19. öld var hann sex ára skóli. Árið 1949
voru tveir bekkir teknir af og í umbrotum áranna 1960-1970 var rætt um þriggja
ára nám en sæst á sveigjanlegan námstíma.
b.
Umræðan um lengd náms til stúdentsprófs hófst
aftur í lok 20. aldar og ekki að undra því skólaárum grunn- og framhaldsskóla
var breytt (sjá neðar). Hún fór á flug í upphafi þeirrar 21. og birtist í
frekar uppblásnum og yfirspiluðum mótmælum 2003.
c.
EN tökum eftir því að frá 1996 hefur grunnskólaárið
lengst um alla vega tíu daga og einu ári verið bætt við grunnskólann. Að auki
var öðrum tíu dögum bætt við skólaár framhaldsskólans. Þetta eru eitt ár og 140
dagar (en skólaárið er 180 dagar í grunnskóla og 175 í framhaldsskóla) og
lengist um fimm daga næsta haust í framhaldsskólum (og hefur þegar lengst í
sumum hvort sem er á grunni gamla kerfisins eða nýja). Sem sé námstími frá
upphafi skólaskyldu og til stúdentsprófs hefur frá 1996 lengst um tæp tvö
skólaár í dögum talið en það hefur engin áhrif á námstíma til stúdentsprófs.
Sem sé meðan erlend ungmenni t.d. í Danmörku og Bretlandi geta eðlilega lokið
stúdentsprófi 18 ára (og hafa gert það í áratugi) þá ljúka íslensk ungmenni því
20 ára og á sama tíma búið að lauma tveimur námsárum inn án þess að það hafi
áhrif á námskrár og skipulag skólanna.
Með öðrum orðum:
1.
Aðgangspróf háskóla tengjast ekki styttingunni.
2.
Aðgangskröfur háskólanna gera varla kröfu um það
stúdentspróf sem í boði er.
3.
Um hvaða stúdentspróf vilja menn standa vörð?
4.
Hvers vegna eiga íslenskir nemendur ættu að
sitja þetta nám í fjögur ár, nánast einir Vesturlandabúa?
5.
Hvers vegna er kerfið óbreytt þrátt fyrir að
námsár lengist og þeim fjölgi?
Það sem mér finnst einkenna umræðuna er að andstæðingar
styttingar slá fram hræðsluáróðri og sleggjudómum sem oft eru ekki byggðir
neinu nema óljósum slagorðum um skerðingu náms og ekki eigi að hrapa að málum.
Málið er svolítið eins og fleiri hér á landi, knúið af hagsmunum og er eins og
frosið á sama stað. Illugi á ekki þetta mál. Þetta er búið að vera á höndum
allra ráðherra menntamála frá aldamótum. Hversu margir hafa þeir verið? Það að
allir eru að flýta sér núna er vegna þess að skólarnir og starfslið þeirra hafa
dregið lappirnar og látið eins og þetta væri vondur hausverkur. Hann hljóti að
líða hjá.
Og því er nú verr að fæstir horfa á heildarmyndina. Það var
því fagnaðarefni að það gekk svo fram af þáttastjórnanda Vikuloka RÚV 4/4 sl.
að hann benti háskólarektorsframbjóðendum á að styttingin væri ekki hugmynd
heldur að hún væri að koma til framkvæmda haustið 2015. Það er næsta haust.
Eins og einhver sagði: „Wake up and smell the coffee.“
19.3.12
16.2.12
Verknám til hjálpar?
Fimmtánda febrúar 2012, var umræða á þingi um skólamál. Margt verra gert þar.
Skúli Helgason, góður drengur sem eitt sinn lék Jens í leikriti um tennur, hóf máls á skýrslu OECD um brottfall.
Í umræðunni var talað um m.a. aga, sveigjanleika, verknám, samhengi og vinnuskipulag, samspili skólastiga o.fl. Góðir punktar, þó sumir séu frasakenndir.
Þorgerður Katrín, sú góða þingkona fór í pontu og taldi sig vera að upplifa kvikmyndina Groundhog day, en hún fjallar um mann sem vaknar alltaf til sama dags, aftur og aftur, og veit svo vel undir lokin, hverju hann á von á að hann hindrar slysin áður en þau nálgast. Þetta er mynd um vel heppnaðar forvarnir..
Aðeins að fjalla um þetta mál - sérlega hvers vegna Verknkám er ekki svarið sem menn sveifla í svona umræðu.
Eins og Þorgerður sagði var þessi verknámsáhersla á lofti í aðdraganda laganna 2008 (sjá t.d. starfsnámsskýrslu). Þetta var líka í lagavinnunni sem hófst 1991 og lauk 1996. Einnig í vinnunni sem birtist 1991 eða sem kölluð er stefnumótun Svavars Gestssonar. Þetta var rætt i aðdraganda laganna 1988, - í raun alveg frá því skýrsla Jóhanns Hannessonar um sameinaðan framhaldsskóla birtist 1971.
Þannig. ef það hefur verið mikilvægt að leggja áherslu á verknám frá 1971 - hvers vegna hefur ekkert (lítið) verið gert?
Ég ætla enn lengra.
Þetta er ævaforn umræða. En algengt að samfélaginu hafi námslega verið skipt í tvennt. Jón Sigurðsson (Um skóla á Íslandi - Ný félagsrit 1842) talaði um þrjá hópa og segir á bls. 72-3 að byggja þurfi skóla sem þjóni þremur hópum (karla):
Hann segir að það séu ,,þeir sem hafa líkamliga vinnu til abal-athafnar...er vér köllum almúga....þeir sem
með handiðnum og listum eða annarri kunnáttu starfa...í þessum flokki eru helztir handiðnamenn og kaupmenn... meðalstétt" og loks ,,þeir eiginIigu vísindamenn,.."
Kannski er það veikleiki að við hugsum einvörðungu um seinni tvo flokkana og leggjum áherslu á að sem flestir fari þann seinasta.
Leggjum áherslu á? Sjá neðar.
Umræðan um verknám er svolítið sú að þeir sem geti ekki lært á bók ættu að fara í verknám.
Sem hefur m.a. leitt til þess að nám til sveinsprófa var, til að styrkja virðingu þess, gert jafnlangt stúdentsprófi og sem hluti af grunninum eru sömu grunnáfangar á þeim brautum og á bóknkámsbrautm.
Annað er að margar starfsnámsgreinar sem áður voru á framhaldsskólastigi eru nú á háskólastigi, sérlega greinar sem konur sækja í og því ekki skrýtið að konur stefni á stúdentspróf.
Það þýðir að verknám er ekki starfsþjálfun á vettvangi heldur nám á skólabekk og að sömu greinarnar sem ýta stórum hluta bóknámsnemenda út á fyrstu einni til þremur önnunum gera það sama í verknámi. Ein þeirra greina er stærðfræði en sá grunnur sem þar er kenndur skv. námskrá er stærðfræði sem byggð var upp fyrir verðandi verkfræðinga sem lásu til stúdentsprófs í MR. Um þetta hefur Kristín Bjarnadóttir fjallað.
Þannig að verknám er ekkert sérlega spennandi. Auk þess eru margar iðngreinar orðnar afar vélvæddar þannig að þeir sem þar starfa þurfa heilmikla forritunarþekkingu. Þá er minni þörf fyrir mannafla á mörgum sviðum og atvinnuleysishætta í iðnstörfum mikil í því sveiflukennda samfélagi sem við búum í.
Sumar greinar hafa lagst af, aðrar eru harla lokaðar s.s. ljósmyndaiðn.
Síðast en ekki síst eru sumar ofsalega stórir pakkar, s.s. húsasmíði, en þar er ekki hægt að sérhæfa sig t.d. í þaksmíði o.s.frv. Ef við ímyndum okkur að um sé að ræða skólafælinn hóp þá gerir þetta kerfi ekkert til að hjálpa. Eða fyrrgreind viðhorf.
Þá eru grunnskólar sérlega bóknámsmiðaðir og gera lítið til að beina fólki annað en í bókknám. Samspil grunnskóla og framhaldsskóla þarf að skoða og leyfa fólki að flýta sér eða fara hægar þegar upp úr 7. bekk kemur.
Þetta eru allt mikilvæg atriði en að auki má benda á agann (hér er grein frá 1999). Ungt fólk fílar aga - allavega ungt tónlistarfólk og ungt íþróttafólk. Um það þarf ekki vitnana við. Í lok janúar tóku tæplega 300 ungmenni þátt í gríðarflóknum tónleikum í Hörpu. Þar vantaði ekki áhugann og ekki heldur eljuna sem er jafnvel enn mikilvægari. Þeir sem hafa elju og aga og eru tilbúnir að puða, þeim farnast vel í skóla, til lengri tíma betur en þeim sem ekkert hafa fyrir þessu. Því á að láta nemendur spila á pari eða ofar!.
Það er líka oft talað um form skólastarfs. Úr sögu í dönsku í félagsfræði í stærðfræði í íþróttir í eðlisfræði.
Svona vinnur enginn.
Loks ræddu þingmenn um sveigjanleika sem sumpart er of mikill og sumpart of lítill. Ég ætla að geyma það en enda á því sem sagt er að ofan - leggja áherslu á.
Jón Sigurðsson talaði um þrjá hópa og ég stytti kaflann að ofan - kíktu bara á timarit.is.
Við tölum um tvo. Við viljum að fólk fari til náms en þeir sem eru ekki á bókina hneigðir (geta ekki lært) eiga að fara í verknám. Þannig tölum við. Ekki gott. Og þriðji hópur Jóns (almúgi), ef ég þori að tala um hann, flýtur í dag milli skóla, fer í tvö ár í framhaldsskóla, hangir þar til 18 ára aldurs eða skemur og tekur þá að sér að verða brottfall.
En sem sé. Hvernig stendur á því að þessi vel menntaða þjóð og metnaðarfulla hefur talað um þetta í 40 ár (minnst) án þess að skýra út hvernig hún vilji leysa það? Viljinn er allt sem þarf - en hann vantar maske.
Þetta er svona NATO - No action, talk only.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)