Sýnir færslur með efnisorðinu skil ekki. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu skil ekki. Sýna allar færslur

20.8.17

Hver á að græða?

Ég heyrði á dögunum af því að Íslandsbanki tæki hlut af áheitum hlaupastyrkur.is (vegna Reykjavíkurmaraþons) í að standa undir kostnaði við þann vef og umsýslu alla. Í fyrra hefðu farið 5,08% í þetta. Nú má ætla að þessi prósenta lækki í takti við það hversu miklu meira safnast ár frá ári.
Nú hef ég skilning á því að fólki finnist þetta blóðugt. Í fyrra hafa þá runnið tæpar fimm millur til bankans.
Hins vegar er ég líka sannfærður um að þessi umgjörð er mun betri en ef félögin sem safna áheitum gera þetta sjálf. Og hvað skyldi það nú kosta? Nú eða ef einhver setur á laggirnar slíkt apparat fyrir slíka söfnun utan bankans.
Það er reyndar gríðarlegt rannsóknarefni að skoða hvað þetta ævintýri kostar og hverjir, ef einhverjir græða.
Til dæmis:
  • Menn auglýsa grimmt (kostnaður),
  • útbúa boli og gögn (kostnaður),
  • gera samninga við önnur fyrirtæki (t.d. EXPO) (tekjur/kostnaður),
  • innheimta skráningargjöld (tekjur),
  • eru með mikinn mannafla í þessu (sjálfboðaliðar??? launafólk??? - kostnaður) o.s.frv.

Ég veit ekki.
Mér finnst ólíklegt að þessi magnaði atburður verði haldinn án þess að eitthvert stórt apparat haldi utan um það og það þarf að reka sig einhvern veginn.

Það er hins vegar annað, bankatengt, sem ég hef velt vöngum yfir miklu meir.

Hverjir eiga bankana?

Spurningin kemur til vegna þess að eftir því sem ég finn á vefnum mikla þá á ríkið tvo banka. Íslandsbanka og Landsbankann. Svo eru einhverjir einkabankar sem ég ætla ekki að gera að umræðuefni hér.

Þegar ég nefni þessa ríkisbanka tvo og arðsemi þeirra þá er mér iðullega svarað með því að þessir bankar verði að skila eigendum sínum arði.

Og þá hika ég.

Hverjir eiga ríkisbanka?

Er það ekki ríkið?

Hverjir stjórna ríkinu?

Eru það ekki þjóðkjörnir fulltrúar okkar?

Og er ekki ríkið þá þjóðin, svona í sjálfu sér eða eru þingmenn, ráðherrar og bankarnir búnir að aðskilja þetta?
Ef arðurinn fer til ríkisins, er hann þá ekki að fara til þjóðarinnar?

og þá spyr sá einfaldi: Væri ekki nær að ríkisbanki lækkaði kostnað sem hann leggur á viðskiptavini sína, byði lægri vexti, og lækkaði þannig arðsemiskröfur sínar þannig að fólk fengi meiri möguleika á að láta peningana sína verða að t.d. fasteignum, frekar en að láta þettta renna beint í ríkissjóð?

Í stað þess að halda uppi kostnaði við lántökur, halda niðri vöxtum á sparifé o.s.frv. væri þá ekki rétt að ríkisbankarnir bættu kjör viðskiptavina sinna og myndu þannig knýja einkabankana til að gera það sama?

Þarna eru gríðarlegir fjármagnsflutningar í gangi, oft úr vösum almennings yfir í ríkiskassann. Í ljósi þess á hvaða kjörum nýju bankarnir eignuðust gömlu bankana og skuldabréf þeirra í kjölfar hrunsins, er það virkilega til of mikils mælst að ríkisbankarnnir þjónuðu hinum raunverulegu eigendum sínum?

Ég bara spyr?

23.1.16

„...Arfurinn...“ Hugleiðingar um gildi þjóðararfsins í raun og veru.

Styttri útgáfa hér aftan við er pistill sem birtist í DV 22/1/2016.
Á undan er lengri og ítarlegri útgáfa hans.

„...Arfurinn...“
Hugleiðingar um gildi þjóðararfsins í raun og veru.

Ég velti því oft fyrir mér hvort menningararfur, þjóðrækni og þjóðernisstefna séu endilega góð fyrirbæri. Tilefnið er raunar þær fyrirmyndir sem „Arfurinn“ leggur fyrir okkur. Það er oft talað um þennan menningararf og mikilvægi þess að varðveita hann og þar með tunguna.

Ég legg á það áherslu að íslenska og íslensk þjóð eru mér hugleikin fyrirbæri en ég velti fyrir mér þeim fyrirmyndum sem fyrir mig voru lagðar í uppeldi mínu og á þroskaskeiði mínu á árum fyrr.

Sögufals?

Einn af öflugri stöpum þess skeiðs voru bækur sem ég var látinn læra um íslenska sögu. Þetta voru bækur eftir Jónas Jónasson frá Hriflu. Þær komu fyrst út árin 1915 til 1917. Ég las þær fimmtíu árum síðar og mér vitanlega voru þær víða í notkun fram yfir 1980.

Mér er það óskiljanlegt að slíkar bækur væru notaðar í áratugi, jafn mörg ósannindi og þar var að finna. Ég minnist þess að þegar ég var í barnaskóla þá vorum við m.a. látin þylja upp kafla hennar, standandi við borðið. Maður gat endursagt kaflann eða lært hann utanbókar, sem í raun var einfaldara. Þar kynntumst við ýmsum hetjum sögunnar og iðullega voru þær hetjur okkur til lítils sóma þegar betur er að gáð.

Meðal þessara var Árni Oddsson.

Árni var sonur Odds biskups og voru þeir feðgar á ferðinni sérlega á 17. öld. Þegar saga þeirra er skoðuð þá sést að þeir voru duglegir að hygla að ættmennum sínum góðum embættum. Æðsti embættismaður Dana stóð í hárinu á þeim og þeir fóru í  mál við hann sem þeir unnu. Jónas gerir nokkuð úr þeirri sögu að Árni hafi verið fastur í Kaupinhafn með konungsbréf. Kaupmenn hafi neitað að flytja hann að fyrirmælum Herluf Daa, danska illmennisins. Heim komst hann og kom til landi í Vopnafirði. Sú saga og sagan af heljarreið Árna frá Vopnafirði til Þingvalla er æsileg og þeir feðgar þjóðhetjur fyrir að sigra þann danska og gera hann eigna- og ærulausann. Lítt fer fyrir þeim sannleika að um var að ræða eiginhagsmunasemi þeirra feðga og hafði því næsta lítil áhrif á sjálfið í sjálfstæðisbaráttunni annað en efla völd þeirra. Hins vegar var alltaf betra að vinna danskinn, þó óheiðarlega væri. Fyrir það urðu menn þjóðhetjur.

Síðar varð Árni Oddsson lögmaður og lýsir Jónas því í dramatískri sögu hvernig Árni þráaðist við að skrifa undir einveldishyllinguna þrátt fyrir hótanir danskra og felldi hetjan tár þegar hann gaf eftir að lokum. Litlu er eytt í þá staðreynd að það sem Árni grét var að völd hans og annarra íslenskra valdamanna yrðu skert. Tárin voru til að knýja það fram að slíkt gerðist ekki strax. Aftur var ljóst að íslensk alþýða og menning voru ekki í huga Árna.

Fleiri hetjur Jónasar má nefna. Þar er t.d. kristnitökuhetjan Þorgeir Ljósvetningagoði sem fékk Aþingi til að samþykkja það að taka upp Kristni, út á það að heimila frávik s.s. útburð barna, - meðan ekki kæmist upp um menn. Þetta situr í þjóðarsál okkar og er grópað þar inn. Það er sem sé að margra mati í lagi að brjóta reglur, ef viðkomandi kemst upp með það. Ef ekki þá fær sá sér lögfræðing og þrætir. Við erum þar með ekki að hugsa um orð Sókratesar sem er mun virtari lögspekingur á heimsvísu. Hann sagði að ef maður er ósáttur við lögin, þá ætti að fylgja lögunum eftir en knýja á breytingar. Það ætti aldrei að brjóta lög.

Enn önnur hetjan var Einar Þveræingur sem beitti sér fyrir því á 11. öld að vorir landar gerðu ekki sáttmála við Noregskonung. Rökin voru þau að þó að menn teldu þáverandi Noregskonung góðan þá væri ekki á vísan að róa með þann næsta. Með þetta að vopni hafa skoðanabræður Þveræingsins haldið aftur af okkur með að gera alþjóðasamninga. Einnig tryggt að við færum inn í slík samtök með það að augnmiði einu að tryggja hvað við fáum út úr því. Ekki hvað við getum lagt fram og þar með bætt heiminn. Ekki eingöngu okkar litla samfélag.

Svona má halda áfram með útúrsnúninga Íslandssögunnar hans Jónasar. Hún er barn síns tíma en það versta var að kynslóð fram af kynslóð var fólk stríðalið á henni, eins og hún væri rétt útgáfa Íslandssögunnar. Hún sagði sögu góðra íslenskra karla sem voru hetjur, konur komu varla við sögu og útlend yfirvöld voru náttúrulega bara til vansa.

Hagsmunahyggja í verki

Við sjáum dæmin um þetta sama mynstur t.d. í því að yfirvöld á Íslandi hröktu fólk vestur um haf til Kanada, frekar en bæta hag manna hér á landi. Eitt af því sem hefði getað komið í veg fyrir þá mannflutninga var að afnema Vistarbandið svokallaða sem bannaði fólki að búa í þéttbýli. Það var ekki fyrr en danska þingið og Danakóngur hótuðu Alþingi því á 9. áratug 19. aldar að kóngur myndi standa að slíku afnámi sjálfur, að Alþingi samþykkti afnám þess og færði landið aðeins nær nútímanum.

Annað var t.d. að Jón Sigurðsson mun nánast hafa horft út um gluggann á skrifstofu sinni yfir í fangelsisgarða þar sem íslenskir menn og konur voru geymd fram til þess tíma að Hegningarhúsið við Skólavörðustíg var byggt. Aldrei vísaði Jón til þessa fólks og ekki man ég mörg dæmi þess að hugtakið mannréttindi hafi verið honum ofarlega í huga. Nema kannski í skólamálum. Svona til að halda því til haga. Fangarnir voru hins vegar oft þarna fyrir litlar sakir.

„Arfurinn...“

En það er fleira sem við höngum í af þessu tagi. Þannig er talið mikilvægt, upp á sjálfsmynd okkar og menningu, að lesa Íslendingasögur. Vissulega verð ég að segja að málfar og framsetning texta margra þeirra er til fyrirmyndar. Hins vegar er mikilvægt að lesa textann með mikla fyrirvara í huga, svo ekki sé talað um boðskap sagnanna, alla vega eins og hann virðist oftast lagður fram.

Tökum sem dæmi sögurnar af fundi Ameríku, sem þá var kölluð Vínland, og þeirri ósvinnu „Skrælingja“ (sem er þeirra daga nafn á frumbyggjum Ameríku) að gera norrænum mönnum illkleift að búa  þar. Skrælingjarnir héldu uppi stríðsrekstri og reyndu að ýta þessum góðu norrænu mönnum burtu. Óskiljanlegt.

Ein sagan af samskiptum okkar góðu forfeðra við þessa voðalegu Skrælingja er saga um frumbyggja sem lágu sofandi undir bát sínum við árbakka. Norrænu mennirnir komu að þeim og frekar en leyfa þeim bara að kúra áfram þá drápu þeir frumbyggjana. Þegar ég las þessi herlegheit þá var þetta meðal annars tekið sem dæmi um kímnigáfu höfunda frásagnanna um fund Ameríku. Kennarinn hafði lítinn áhuga á ambri mínu og fleiri nemenda um að þetta væri varla fyndið.

Það var því annski ekki skrýtið að frumbyggjunum hugnaðist illa að deila landi með þessu aríska sómafólki.

Önnur hetja er Egill Skallagrímsson, sem frá blautu barnsbeini virðist hafa verið drápsmaskína. Enn ein er Kjartan Ólafsson, ávöxtur þess að faðir hans, Ólafur Pá, skrapp til Írlands, keypti sér ambátt, rekkti hjá henni og barnaði, kom henni fyrir á næsta bæ og hélt við hana. Litlir fyrirvarar eru gerðir við þá staðreynd að maðurinn átti konu fyrir.

Hetjan sem var illmenni eða öfugt...

Nokkrir útlagar eru þekktir úr fortíð okkar. Tökum tvo til kostanna.

Annar er hetjan Gísli Súrsson, sem drap mann,í hefndarskyni og án þess að hafa sótt það fyrir rétti hvort sá maður væri sekur. Gísli var dæmdur til skóggangs, sem þýddi að hann mátti ekki vera meðal manna. Ættmenni hins myrta vildu ekki sættast við þessa niðurstöðu og áttu skv. lögum rétt á að ná Gísla og drepa. Svona rétt eins og hann væri veiðidýr.

Eyjólfur grái, var sem sé lögga þess tíma, að ná morðingja, sem sagan kynnir sem hetju.

Öllu meiri hetju finnum við í Gunnari á Hlíðarenda og þeim Njálssöguhetjum. Þar tekur nú steininn úr. Myndríkar lýsingar Njálu má túlka á marga vegu, - stundum kann að vera óvarlegt að nota nútímann sem viðmið, - en...

Mér finnst til dæmis mjög magnað þegar höfundur Njálu dregur upp sorg og reiði Hildigunnar, ekkja Höskuldar. Hún gefur Flosa blóði drifna kápu bónda síns og brýnir hann til hefnda. Hildigunnur hafði ekki rétt til að reka mál bónda síns. Hún varð að fá einhvern til þess. Með því að gefa Flosa kápuna og kalla hann níðing ef hann gerði ekkert í málinu er hún að beita nánast eina ráðinu sem kona hafði.

Höfundur Njálu – femínisti?

Það eru mörg frekar biluð dæmi í Njálu en mér þykir alltaf svolítið vænt um Hallgerði. Þjóðmenningin og arfurinn líta á hana sem illyrmi. Ég reyndar hef alltaf talið að höfundur Njálu sé að búa til kvenhetju í Hallgerði. Kona sem hefur mátt búa við rógburð og heimilisofbeldi.

Hallgerður er eins konar femme fatale, hin hættulega kona. Köld eru kvennaráð segir Flosi, reyndar við Hildigunni (sjá hér að ofan), en karlar sögunnar halda saman, gegn konum sínum. Þetta er reyndar mjög þekkt í alla vega vestrænum samfélögum. Karlar halda konum til hliðar, svipta þær völdum, kaupa og selja, berja eftir behag og smag, en loka sig af í fóstbræðralögum, leynireglum og lokuðum klúbbum.

Aftur að Hallgerði. Fyrir utan það að vera lýst sem sérlega fagurri þá er hún einnig sögð örlynd og skaphörð. Sagan þegar hún hittir Gunnar á Þingvelli er leiftrandi af kynþokka og augljós ætlun höfundar að sýna hvernig hún hefur undirtökin í því máli. Hallgerður kveikir losta Gunnars og hann á sér ekki undankomu auðið.

En Hallgerður var barin í fyrri tveimur hjónaböndum sínum og einnig í því þriðja. Gunnar löðrungaði hana og hefur þjóðinni jafnan þótt réttmætt að svo væri. Hún lét stela frá besta vini hans. Hetjan gat ekki liðið það að stolið væri frá öðlingnum vini hans svo hann barði hana.

Við vitum í nútímanum að sá sem lemur frá sér einu sinni er líklegur til að gera það oftar. Auk þess sem báðir fyrri eiginmanna höfðu barið hana. Hún var fórnarlamb heimilisofbeldis. Fólk sem losnar úr ofbeldissambandi er líklegt til að lenda í öðru ef það fær ekki hjálp.

Ég hef oft velt því fyrir mér þegar ég les kaflann um umsátrið að Hlíðarenda hverju höfundur Njálu er að ná fram.

Staðan er þessi. Gunnar er hetja og Hallgerður illyrmi fyrir að lána honum ekki hár í bogann. Vondir menn sitja um bæinn og drepa Gunnar.

En þetta er bara ekki eini skilningurinn. Hér er um fleira en eitt að ræða.

Í fyrsta lagi var Gunnar sekur maður og átti að fara úr landi. Þegar hann stökk af hesti sínum og mælti þessa frægu setningu: „Fögur er hlíðin...“ þá vissi hann hvaða áhættu hann tók. Rétt eins og Gísli Súrsson, var hann orðinn eins og veiðidýr. Gunnar hafði vegið mann, var dæmdur til útlegðar frá Íslandi og ef hann virti það ekki var hann réttdræpur af frændum mannsins sem hann drap. Með öðrum orðum – hetjan var morðingi og dæmdur morðingi að auki.

Í öðru lagi var hann líka maður sem barði. Eins og fleiri. Getur verið að Hallgerður hugsað sér að nú væri fullreynt? Allt er þá þrennt er? Eina leiðin út var að láta drepa Gunnar, sem var réttdræpur hvort eð var, komast yfir eignir og geta búið sem sjálfstæð kona, ein og ógift, laus undan ofbeldinu og óhollustunni sem makar hennar höfðu sýnt? Sem hún gerði. Hún bjó í Laugarnesi síðustu ár sín.

Í öllu falli þá velti ég því fyrir mér hvernig eigi að bera menningararfinn og söguna á borð.

Og ég kalla á endurskoðun á rangfærslum og karlægum myndum þessa án efa merka en villuboðandi menningararfs.

 Pistillinn úr DV.

„...Arfurinn...“
Hugleiðingar um gildi þjóðararfsins í raun og veru.

Ég velti því oft fyrir mér hvort menningararfur, þjóðrækni og þjóðernisstefna séu endilega góð fyrirbæri. Tilefnið er raunar þær fyrirmyndir sem „Arfurinn“ leggur fyrir okkur. Það er oft talað um þennan menningararf og mikilvægi þess að varðveita hann og þar með tunguna.

Ég legg á það áherslu að íslenska og íslensk þjóð eru mér hugleikin fyrirbæri en ég velti fyrir mér þeim fyrirmyndum sem fyrir mig voru lagðar í uppeldi mínu og á þroskaskeiði mínu á árum fyrr.

Sögufals?

Einn af öflugri stöpum þess skeiðs voru bækur sem ég var látinn læra um íslenska sögu. Þetta voru bækur eftir Jónas Jónasson frá Hriflu. Þær komu fyrst út árin 1915 til 1917. Ég las þær fimmtíu árum síðar og mér vitanlega voru þær víða í notkun fram yfir 1980.

Mér er það óskiljanlegt að slíkar bækur væru notaðar í áratugi, jafn mörg ósannindi og þar var að finna. Ég minnist þess að þegar ég var í barnaskóla þá vorum við m.a. látin þylja upp kafla hennar, standandi við borðið. Maður gat endursagt kaflann eða lært hann utanbókar, sem í raun var einfaldara. Þar kynntumst við ýmsum hetjum sögunnar og iðullega voru þær hetjur okkur til lítils sóma þegar betur er að gáð.

Þar er t.d. kristnitökuhetjan Þorgeir Ljósvetningagoði sem fékk Aþingi til að samþykkja það að taka upp Kristni, út á það að heimila frávik s.s. útburð barna, - meðan ekki kæmist upp um menn. Þetta situr í þjóðarsál okkar og er grópað þar inn. Það er sem sé að margra mati í lagi að brjóta reglur, ef viðkomandi kemst upp með það. Ef ekki þá fær sá sér lögfræðing og þrætir. Við erum þar með ekki að hugsa um orð Sókratesar sem er mun virtari lögspekingur á heimsvísu. Hann sagði að ef maður er ósáttur við lögin, þá ætti að fylgja lögunum eftir en knýja á breytingar. Það ætti aldrei að brjóta lög.

Enn önnur hetjan var Einar Þveræingur sem beitti sér fyrir því á 11. öld að vorir landar gerðu ekki sáttmála við Noregskonung. Rökin voru þau að þó að menn teldu þáverandi Noregskonung góðan þá væri ekki á vísan að róa með þann næsta. Með þetta að vopni hafa skoðanabræður Þveræingsins haldið aftur af okkur með að gera alþjóðasamninga. Einnig tryggt að við færum inn í slík samtök með það að augnmiði einu að tryggja hvað við fáum út úr því. Ekki hvað við getum lagt fram og þar með bætt heiminn. Ekki eingöngu okkar litla samfélag.

Svona má halda áfram með útúrsnúninga Íslandssögunnar hans Jónasar. Hún er barn síns tíma en það versta var að kynslóð fram af kynslóð var fólk stríðalið á henni, eins og hún væri rétt útgáfa Íslandssögunnar. Hún sagði sögu góðra íslenskra karla sem voru hetjur, konur komu varla við sögu og útlend yfirvöld voru náttúrulega bara til vansa.

Í öllu falli þá velti ég því fyrir mér hvernig eigi að bera menningararfinn og söguna á borð.

Og ég kalla á endurskoðun á rangfærslum og karlægum myndum þessa án efa merka en villuboðandi menningararfs.




23.5.15

Svarið getur verið rétt en spurningin var það örugglega ekki

Þegar ég var í Melaskóla, tólf ára, á leið í Hagaskóla, kvaddi kennarinn okkur með þeim orðum að við skyldum passa okkur á Bítlunum því annars yrðum við eiturlyfjaneytendurog kynvillingar.
Við vissum held ég fæst hvað þetta tvennt þýddi og hlustuðum á Bítlana og margt verra og hættulegra réttrúnaði og köldu stríði sem þá ríkti.

Mér dettur þetta nú í hug þegar ég, rétt eftir útskrift í Flensborg, rekst á umfjöllun Fréttablaðsins um snjallsíma í breskum skólum. Það er raunar mun mikilvægari frétt par opnum framar sem er viðtal við Dr. Sigrúnu Harðardóttur um hið raunverulega innbyggða óréttlæti íslensks skólakerfis sem mér finnst samfélagið leiða hjá sér með öllu.

En umfjöllunin sem ég á við er tilvitnanir í breska fjölmiðla um rannsókn þeirra Beland og Murpys um farsímanotkun í skólum.

Eins og oft áður snýst stóra spurningin um spurninguna. Um hvað er verið að spyrja. Því ef maður les vandlega, oft harla furðulegar, umfjallanir breskra dagblaða þá er á ferðinni fordómafull og þröngsýn umræða af þeim kalíber sem t.d. einkenndi viðhorf ofangreinds kennara.

Það kemur fram í fréttinni t.d. að einkunnir hafi hækkað um 6,4% við það að banna símanotkun nemenda. Þetta hlýtur að hafa verið fyllilega samanburðarhæfur hópur nemenda að taka fyllilega sambærilegt próf við fyllilega sambærilegar aðstæður.

Og 6,4% eru ekki mikið.

Ímyndum okkur hver árangurinn hefði getað orðið ef nemendur hefðu t.d. getað notað símana við að leysa prófið?

Þessi umræða endurspeglar ótta okkar skólafólksins við þessa nýju tækni. Ég lét orð falla í skólaslitaræðu að þetta minnti mig á umræðuna um kúlupenna þegar ég var að byrja í skóla.
Ég átti að mæta með blýant. Og þegar ég átti að vera búinn að ná vissri skriffærni (sem ég hef enn ekki náð) átti mamma eða þá pabbi, að kaupa lindarpenna. Blekpenna. EKKI kúlupenna. Það var bannað.

Ég eignaðist nú samt kúlupenna - forláta Papermate penna sem gat skrifað upp í loft - en hann lá bara ónotaður í veskinu mínu.

Seinna var bannað að vera með skrúfblýanta.

Og hvers vegna í ósköpunum?

En sem sé - það eru til rannsóknir á rannsóknir á rannsóknir ofan (og ég get haldið áfram með þennan lista) sem sýna að
1. spjöld og símar koma til móts við mismunandi námsfærni nemenda. Nemendur geta frekar farið á sínum hraða.
2. Þessi tæki veita nemendum tækifæri til vinnubragða sem blað og blýantur gera ekki.
3. Þau auðvelda samskipti - sem vissulega þarf að stýra - og opna heiminn  utan stofunnar.
4. þau auðvelda nemendum með athyglisbrest og alls kyns námserfiðleika mikið og draga úr námsleiða.

Spurningin sem Beland og Murphy settu fram er sem sé líklega vitlaus. Það á vitaskuld ekki að leyfa nemendum að vera með símana á lofti til að taka selfies eða myndir af bekkjarfélögum o.s.frv. Hins vegar er hrein firra að ætla að láta eins og þetta séu einhver tæki úr neðra sem ógni nútímanum og séu "the end of civilisation as we know it."

Það er vonlaust að banna svona hluti og hefur alltaf verið. En það er hægt að átta sig á tækifærunum sem þarna er að finna.

Maður skyldi alla vega ætla það.

5.8.12

Blessaðri kreppunni lokið?

Já og jæja
Steingrímur J er eiginlega búinn að gefa það út.
Kreppan er búin á Íslandi.
Annað en í Evrópu.
Enda kominn tími til!
Fjögur ár í haust!

Opinber starfsmaður eins og ég er náttúrulega jafnvel settur hvort sem er kreppa eða ekki.
Svo ég fór í gögn Hagstofunnar og skattframtölin mín hjá skattur.is.

Frá janúar 2007 til janúar 2012 sýnist mér að neysluvísitölur hafi hækkað um 36% sem þýðir að ég þarf 136.000 kr. til að geta keypt það sama og ég fékk fyrir 100.000 kr. 2007. Og til að þéna 100.000 kall í dag þarf ég um 150 þús. (til að fá 100 þús kall í vasann þegar búið er að draga frá skatta og önnur gjöld).

Lánskjaravísitalan hefur hækkað um 37% sem þýðir að fyrir hvern 100.000 kall sem ég skuldaði 2007 skulda ég (og allir þeir sem skulda) 137.000 kr. í dag.

En þetta er nú allt í lagi því launin hafa hækkað - launavísitalan hefur farið upp um 19%! sem þýðir að fólkk hefur fengið 19 þúsund kall í launahækkun fyrir hvern hundraðþúsundkall sem það var  með  í laun.

Mín laun hafa hækkað um 9% á sama tíma en ég gleðst með þeim sem fengu meira í prósentvís en ég. Ætli þeim veiti af!

En stoltastur er ég af sköttunum mínum. Ég trúi því að það hafi nú aldeilis reddað Ríkissjóði.
Ég keyri á jeppa þó svo bensínið hafi hækkað.
Svo eru allir neysluskattarnir (tollar, vaskur og allt það) en þegar ég skoða hvað ég fékk í laun frá Ríkissjóði 2007, hvað ég greiddi í skatt og hvað ég átti eftir í samanburði við árið 2011 þá held ég eftir minna af níu prósentum hærri árslaunum mínum 2011 en ég gerði 2007.

Mikið er nú gott að finna að kreppunni er lokið og sjá jafnframt HÉR

10.4.12

Who´s to bless and who´s to blame

In history you sometimes get indications of people missing old tyrants. After the fall of Communism in Russia there were rallies where people called for the security of Communism. Even the Zar. Indeed when the revolution of 1917 was in full blast a lot of people had good reason to miss the Zar. Not that he was generally loved while alive.
In Germany people missed the stability and glory that was Hitler and I am sure many Libyans miss Gaddafi now that their country is struck with civil strife.
It is a bit like that in Iceland these days and I am reminded of my youth in Reykjavik. We had a playground and we would build houses (pile up I suppose), make roads, even create rivers to cross and so on. Then some of the cool crowd would mock us and even destroy our hard work so we would have to rebuild our ruins.
Then as kids grew up, a lot of them joined the cool crowd, forgetting their bitterness and joining in with kids that wanted all for nothing, didn´t hesitate to break down what others were doing and so on.
Icelandic politics are a bit like that at the moment.
Unfortunately our spirits have been low and our leaders have done nothing to lift it.
Capacent - a polling firm - have done research on how much faith people have in various bodies. These are not neccesarily comparable. You have the Central bank and the Banking system, the state prosecutor and the judicial system and so on. However - on top are the police and coast guard (90% and 83% respectively) and "The" university (probably the university of Iceland) with 77%.  The judicial system ranks in at 38% (ninth out of fifteen), the state church, 28% number 10, Central bank at 16%, Reykjavik council at 15%, financial system at 12%, the financial supervisory authority at 12%, the legislature at 10% and the banking system at 7%.
So at the moment society as such appears to blame the present government for the reccession and many I know crave for the Indpendance party and the progressive party, who´s lack of all sorts of things may have tributed greatly to the recession.
Which leaves me rather confused once again.

Btw - the title is nicked from a Kris Kristofferson album. A lot of good vibes on it.

16.3.12

Þar kom að því

Það er ekki sama hver er.
Mörg undanfarin ár hafa ýmsir í kringum mig kvartað  undan þessum útlendingum sem hingað streyma. Þetta er, að sögn, óþarfa lið, stelur af okkur vinnu sem við viljum ekki vinna og margt fleira. Þetta beitir öllum ráðum til að komast hingað skilst mér.
Ég er svo grænn ég skil þetta ekki.
Mér finnst þetta prýðisfólk sem ég hef kynnst og sumt betra en íslenska meðaltalið.
En svona er þetta bara og ég ræð ekki við það.

Ég fæ oft innilokunarkennd hérna í þessum sælureit. Ekki síst þegar verðlagsólin er að hengja mig og ég heyri rætt um höft, höft og aftur höft. Þessa óþurftaraðila sem eru að reyna að smygla gjaldmiðlum í gegnum haftakerfið og fleira.

Sem ég reyndar skil ekki.
Ef þetta fólk á ekki þessa peninga,- er það þá ekki að stela og ber þá ekki að refsa því?
Ef það á þessa peninga, af hverju er því nánast lýst sem þjófum og glæpamönnum?
Svo man ég að þetta eru líklega útlendingar.

En svo tók steininn úr. Í DV má lesa frétt um alveg kolbilaðan útlending. Hann reyndi að smygla sér um borð í skip og komast FRÁ Íslandi. Hvað er fólk að hugsa? Hann var vitanlega fluttur í böndum í land og verður án efa látinn dúsa einhversstaðar innilokaður þar til hann skilur að frá sæluríkinu, Shangri La norðursins, uppáhaldi Alþjóða gjaldeyrissjóðsins, laumast maður ekki.
Maður tekur flugvél til Noregs.

Það sem fólki dettur í hug.

23.2.12

Vafningar vegna BB?

Heldur hafa Vafningsmál gengið niður að undanförnu.
Ég veit um tvo hópa sem gleðjast. Stuðningsmenn formanns Sjálfstæðisflokksins sem telja að málinu sé lokið og andstæðinga sem vona að flokkurinn þjappi sér um formanninn og fái makleg málagjöld fyrir.
Í mínum huga snýr þetta að því sem ég hef svo oft nefnt - þ.e.. hvenær hagsmunir verða svo miklir að sekt eða sakleysi skiptir engu máli. En það er ekki íslenska hefðin. Meðal fárra sem hafa skilið þetta var varaformaður fyrrgreinds flokks sem var þó ekki sjálf undir smásjá. Stórmannlega gert.

Hins vegar vefst þessi vafningur fyrir mér - ekki síst eftir Kastljós.
Sko.
Ef ég skil rétt þá skrifaði lögmaður undir pappíra þar sem dagsetningu var hagrætt til að svo liti út að undirritun hefði farið fyrr fram en hún gerði.
Þetta gerði hann að beiðni sameigenda sinna og tilgangur að reyna að bjarga rekstri fyrirtækis sem vonlaust var að bjarga.
Og samkvæmt því sem skrifað er auk þess sem hann segir þá á annað tveggja við:
a. Pappírarnir voru falsaðir og hann vissi hvorki um fléttuna eða  fölsunina. Hann var því saklaust peð í málinu eða jafnvel viljalaust verkfæri í höndum samstarfsmanna sinna.
b. Pappírarnir voru falsaðir og hann vissi um fléttuna og fölsunina. Hann tók þar með fullan þátt í verknaðinum.

Hvorn viljum við hafa í forystu þjóðarinnar? a eða b?