Við eigum spjaldtölvu hjónin og snjallsíma. Og okkur langaði í svona penna eða prik með mjúkum enda sem má nota á skjáinn til að hann verði ekki útkámaður.
Ég á svona tréprik með gúmmíenda sem kostaði eitt þúsund krónur eða eitthvað meira og frúin á heldur dýrari penna.
Ég fór um daginn í Eymundsson og sá tiltölulega léttan og bráðómerkilegan penna með svona enda á kr. tæplega þrjú þúsund. Hljóta að vera dýrir þessir endar því sambærilegir pennar án þeirra eru á innan við þúsund kall. Kannski er það kassinn utan um hann.
Fór til Spánar og á ströndinni mátti fá svona svipaða penna. Skrifa ári vel. Og svona líka fínn gúmmí endi. Það munaði um 100% á verði þeirra milli aðila. Verðið var frá einni evru upp í tvær.
Fínir pennar.
En það skal enginn segja mér að þetta verð hérna heima sé eðlilegt.
Eða er þetta enn og einu sinni sama svarið: Það er dýrt að vera Íslendingur?
Magnús Þorkelsson er skólameistari Flensborgarskólans og íbúi í Hafnarfirði. Hann er hamingjusamlega giftur þriggja barna faðir og AFI sem er óskaplega merkilegt.
Sýnir færslur með efnisorðinu hissa. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu hissa. Sýna allar færslur
23.7.14
21.6.12
Um forsetamál
Mikið er magnað að fylgjast með þessari kosningabaráttu sexmenninganna. Sérlega hvað þau þrjú, sem varla komast á blað, eru keik! Vel gert.
Einhvern veginn óttast ég að sitjandi sitji áfram og þar hlýtur lýðræðið að ráða. En mér finnst tími kominn á karlinn og vil fá nýjan forseta. Þess vegna mun ég kjósa þann sem skást stendur hinna fimm.
En ég verð að segja að það að kvótakóngar, Evrópuandstæðingar, bændur, framsóknar- og sjálfstæðismenn, ritstjórn MBL og virðulegt eldra fólk sem nefndi varla karlinn á nafn í eina tíð, - nema sveija, ætli að treysta á sitjandi, það finnst mér merkilegt.
En svona er áfallahjálpin.
Bendi á kosnningavef DV.
Over and out.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)