Sýnir færslur með efnisorðinu Stjórnmál. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Stjórnmál. Sýna allar færslur

20.8.17

Hver á að græða?

Ég heyrði á dögunum af því að Íslandsbanki tæki hlut af áheitum hlaupastyrkur.is (vegna Reykjavíkurmaraþons) í að standa undir kostnaði við þann vef og umsýslu alla. Í fyrra hefðu farið 5,08% í þetta. Nú má ætla að þessi prósenta lækki í takti við það hversu miklu meira safnast ár frá ári.
Nú hef ég skilning á því að fólki finnist þetta blóðugt. Í fyrra hafa þá runnið tæpar fimm millur til bankans.
Hins vegar er ég líka sannfærður um að þessi umgjörð er mun betri en ef félögin sem safna áheitum gera þetta sjálf. Og hvað skyldi það nú kosta? Nú eða ef einhver setur á laggirnar slíkt apparat fyrir slíka söfnun utan bankans.
Það er reyndar gríðarlegt rannsóknarefni að skoða hvað þetta ævintýri kostar og hverjir, ef einhverjir græða.
Til dæmis:
  • Menn auglýsa grimmt (kostnaður),
  • útbúa boli og gögn (kostnaður),
  • gera samninga við önnur fyrirtæki (t.d. EXPO) (tekjur/kostnaður),
  • innheimta skráningargjöld (tekjur),
  • eru með mikinn mannafla í þessu (sjálfboðaliðar??? launafólk??? - kostnaður) o.s.frv.

Ég veit ekki.
Mér finnst ólíklegt að þessi magnaði atburður verði haldinn án þess að eitthvert stórt apparat haldi utan um það og það þarf að reka sig einhvern veginn.

Það er hins vegar annað, bankatengt, sem ég hef velt vöngum yfir miklu meir.

Hverjir eiga bankana?

Spurningin kemur til vegna þess að eftir því sem ég finn á vefnum mikla þá á ríkið tvo banka. Íslandsbanka og Landsbankann. Svo eru einhverjir einkabankar sem ég ætla ekki að gera að umræðuefni hér.

Þegar ég nefni þessa ríkisbanka tvo og arðsemi þeirra þá er mér iðullega svarað með því að þessir bankar verði að skila eigendum sínum arði.

Og þá hika ég.

Hverjir eiga ríkisbanka?

Er það ekki ríkið?

Hverjir stjórna ríkinu?

Eru það ekki þjóðkjörnir fulltrúar okkar?

Og er ekki ríkið þá þjóðin, svona í sjálfu sér eða eru þingmenn, ráðherrar og bankarnir búnir að aðskilja þetta?
Ef arðurinn fer til ríkisins, er hann þá ekki að fara til þjóðarinnar?

og þá spyr sá einfaldi: Væri ekki nær að ríkisbanki lækkaði kostnað sem hann leggur á viðskiptavini sína, byði lægri vexti, og lækkaði þannig arðsemiskröfur sínar þannig að fólk fengi meiri möguleika á að láta peningana sína verða að t.d. fasteignum, frekar en að láta þettta renna beint í ríkissjóð?

Í stað þess að halda uppi kostnaði við lántökur, halda niðri vöxtum á sparifé o.s.frv. væri þá ekki rétt að ríkisbankarnir bættu kjör viðskiptavina sinna og myndu þannig knýja einkabankana til að gera það sama?

Þarna eru gríðarlegir fjármagnsflutningar í gangi, oft úr vösum almennings yfir í ríkiskassann. Í ljósi þess á hvaða kjörum nýju bankarnir eignuðust gömlu bankana og skuldabréf þeirra í kjölfar hrunsins, er það virkilega til of mikils mælst að ríkisbankarnnir þjónuðu hinum raunverulegu eigendum sínum?

Ég bara spyr?

22.6.12

Stjórnmál - og svo hættur!

Þessi blessuðu stjornmál.
Nú er ég hættur að fjalla um þau.
Minna mig á lónið við Hvaleyrarvöll, þar sem húsin speglast á kyrrlátum morgni. Allt á hvolfi.
En ég var orðinn svo pirraður að ég tók mér hlé og nú kemur stuttur pistill og svo röð af slíkum um allt aðra hluti!

Sko. Nú síðast var Jóhanna dæmd fyrir að brjóta eigin lög um jafnréttismál...
Steingrímur lét kosningahagsmuni ganga fyrir vegna Vaðlaheiðarganga.
Minnihlutinn kúgaði meirihlutann í þinglokamálinu.
Forsetinn telur sig ofar öllu og geti því tekið mál af þinginu ef honum sýnist svo.
Þingið er búið að tvítapa í þjóðaratkvæðagreiðslu og situr enn.
Fjöldi þingmanna er umboðslaus vegna flokkaflakks.
Og meira að segja Besti flokkurinn féll á hagsmunaprófinu þegar WOW sagði wow...

Ég segi eins og Billy Joel í laginu góða - I can't take it anymore!

21.6.12

Um forsetamál

Mikið er magnað að fylgjast með þessari kosningabaráttu sexmenninganna. Sérlega hvað þau þrjú, sem varla komast á blað, eru keik! Vel gert.
Einhvern veginn óttast ég að sitjandi sitji áfram og þar hlýtur lýðræðið að ráða. En mér finnst tími kominn á karlinn og vil fá nýjan forseta. Þess vegna mun ég kjósa þann sem skást stendur hinna fimm.
En ég verð að segja að það að kvótakóngar, Evrópuandstæðingar, bændur, framsóknar- og sjálfstæðismenn, ritstjórn MBL og virðulegt eldra fólk sem nefndi varla karlinn á nafn í eina tíð, - nema sveija, ætli að treysta á sitjandi, það finnst mér merkilegt.
En svona er áfallahjálpin.
Bendi á kosnningavef DV.
Over and out.

22.4.12

Mikilvæg opinber fréttatilkynning

Það tilkynnist hér með að ég ætla ekki að bjóða mig fram til forseta sumarið 2012. Þetta er til þess að tryggja það að enginn fari að gera sér væntingar um að slíkt standi til, - þó reyndar enginn hafi viðrað slíkt við mig.
Ég ætla heldur ekki að stofna stjórnmálaflokk vegna Alþingiskosninga, né ganga í gamlan flokk.
Ég mun hins vegar ekki kjósa karlmann sem forseta eins og sakir standa, bara velja manneskju undir 50 ára aldri og í Alþingiskosningum mun ég líklega kjósa þann flokk sem skiptir út nánast öllum frambjóðendum sínum,  - en þó ekki Framsókn og alls ekki meðan núverandi formaður er við stjórn.
Þetta tilkynnist hér með.
Magnús Þorkelsson,
kjósandi.

For the World press (transalation)
I feel that it is my obligation, so that the suspense can be calmed, to inform the international media that I have no intention to run, walk or crawl for presidency in Iceland. This is despite the fact that noone has approached me and tried to talk me out of running, but then again, no one has said I should!
Nor will I run for Parliament.
I do however have every intention of trying to hope that the Icelandic people will elect a president of a new generation, promoting the idea that we should not renovate MP's but replace them at the next election. Please leave MP´s and make room for new ones.
Magnus Thorkelsson, votist (voter? Whatever)





18.4.12

Verðtryggingin og ábyrgðarlaus hagstjórn


 
Ég hef oft leyft mér að hafa þá skoðun að verðtryggingin á Íslandi sé vítahringur sem ekki eigi sér nokkra réttlætingu. Ástæðurnar (m.a.)?
1. Ef ríkið hækkar laun opinberra starfsmanna, eykur álögur á tóbak eða bensín o.s.frv. þá fer vísitalan upp, lánin hækka o.s.frv.
2. Þetta er fölsk tilfærsla eigna. Betra væri að stunda ábyrga hagstjórn og standa vörð um verðmæti landsins en búa til falska öryggistilfinningu og lakari gjaldmiðil.
3. Sveiflur krónunnar þýða alltaf tap eða hagnað sem er falshugmynd. Ef krónan er sterk, þá ,,tapa" útflutningsgreinar en innflytjendur standa vel, verðlag er lægra en krónan verðmætari. Ef krónan er veik þá græða útflytjendur því þeir fá svo margar krónur per t.d. dollar. Að vísu ónýtar krónur en fleiri. Þá fer verðbólgan á flakk, neysluverð hækkar og almenningur líður fyrir.
Ég hef oftar en einu sinni sýnt það á þessu bloggi hversu óstjórnlega vitlaus gjaldmiðill krónan er. Hún þjónar þröngum hagsmunum en ekki almenningi.
En fyrst. Hagstofan upplýsir að verðtrygging, í núverandi formi, hafi verið tekin upp árið 1979 en þá ,,reiknaði Seðlabanki Íslands út samsetta lánskjaravísitölu sem reist var á þágildandi framfærsluvísitölu og byggingarvísitölu. Þessari aðferð var breytt árið 1989 er launavísitölu var bætt við. Árið 1995 voru sett lög um vísitölu neysluverðs, nr. 12/1995 og leysti hún vísitölu framfærslukostnaðar af hólmi. Þá var jafnframt ákveðið með lögum um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001, að nota vísitölu neysluverðs eina til verðtryggingar."hagstofa.is
Landsbankinn bætir um betur á vef sínum en þar segir: ,,Segja má að verðtrygging eigi sér aldalanga sögu hér á landi. Áður fyrr var oft talað um kýrverð eða lambsverð sem er n.k. verðtrygging. Fyrstu verðtryggðu lánin samkvæmt nútímaskilningi komu hins vegar fram á Íslandi árið 1955.
Árið 1979 voru sett lög um verðtryggingu sem nefnd eru Ólafslög í daglegu tali, eftir Ólafi Jóhannessyni sem þá var forsætisráðherra. Með þessum lögum varð verðtrygging almennari þar sem almenningur gat lagt inn á verðtryggða reikninga og á móti voru veitt verðtryggð lán.

Töluverðar breytingar hafa orðið á því við hvaða vísitölu er miðað þegar fjárhæð er verðtryggð:

Samkvæmt lögum um verðtryggingu (38/2001) má einungis nota vísitölu neysluverðs (sem áður kallaðist framfærsluvísitala) til verðtryggingar lánsfjár eða sparifjár. Fram til 1. apríl 1995 var verðtrygging peninga hins vegar oftast miðuð við svokallaða lánskjaravísitölu, sem var samsett úr þrem vísitölum: Framfærsluvísitölu, byggingarvísitölu og launavísitölu. Vægi þeirra í lánskjaravísitölunni var jafnt. Þetta var sá grunnur sem gilti frá 1. janúar 1989 til 31. mars 1995. Enn áður var grunnurinn sá að framfærsluvísitalan gilti 2/3 á móti 1/3 byggingarvísitölu.

Vegna eldri samninga sem enn eru í gildi og fylgdu lánskjaravísitölu er hún notuð, en frá og með apríl 1995 hefur hún tekið sömu hlutfallsbreytingum og vísitala neysluverðs." landsbanki.is 
En hver hefur þróunin verið?
Hér koma þrjár myndir - unnar af vef Hagstofunnar og ekkert átt við þessar tölur nema þær voru settar í hlutföll. 
 Þessi fyrsta, sem mun sjást betur hér að neðan sýnir verðlagsþróun á saltfiski, mjólk, eggjum og kaffi frá 1914 til 1979.
Samkvæmt henni virðist allt hafa verið mjög stabílt til um 1965 þegar allt fer upp og lóðrétt frá 1970.


Þessi (betri gerð neðar) sýnir að þróunin er skörp áfram frá 1980 til 2011. Halli línanna þýðir rýrnandi krónu. Ljósbláa línan efsta er kaupmáttarvísitala en hún er á hægri ásnum en hitt á þeim vinstri. Þar er miðað við hveiti, Kóka kóla, sígarettur og bensín.


Ég hef áður sýnt fram á hrun krónunnar.





Það er ákveðið fals samt í þessu dæmi..  
Á árunum frá fyrra stríði til loka þess síðara komu tvö mjög alvarleg verðbólguskot. Þau sjást á þessari mynd hér. Við sjáum að skotið í fyrra stríðinu var minna en í því síðara. 
Í kjölfar þessa var verðtryggingu komið á af alvöru, segir Landsbankinn, árið 1955. En að fullu 1979.



Og þá fyrst varð fjandinn laus. Þegar skoðuð eru árin frá 1950 til 1979 má sjá að tímabilið frá 1950-65 var bara farsæld og fjólur en var það vitaskuld ekki. Sama gilti um árin frá 1914-1950 eins og áður er sýnt. Miklar verðsveiflur en verðsveiflurnar voru bara litlar miðað við næstu hamfarir.


Sem eru hér. Þess var líka ofar.

Og hér er öldin aftur til 1979. Og því spyr ég mig í fáfræði mnni rétt eina ferðina - hvað græðum við á krónunni, á verðtryggingunni og hagsmunapotinu?
Ég leit á þessa síðu og sá að Bandaríkjadalur hefur líka rýrnað. Kaupmáttur dollarans frá 1774 er jafnvirði fjögurra centa en það þýðir að kaupmáttur nútíma dollarans er 4% af því sem hann var. Ef við miðum við árið 1920 þá er verðgildi nútíma dollara 4 cent en þá var hann 39 cent af dollara frá 1774. Það þýðir að nútíma dollar vegur 10% af dollara fra 1920.
Íslenska krónan er á sama tíma um 0,045% af krónunni frá 1920. Hún hefur rýrnað margfalt meira en dollari. Sem sé: 10% versus 0,045%.
Eins og ég segi stundum. Do the math.