Ég naut þeirra forréttinda á föstudag að hitta Pawel Bartoszek, höfund greinar í Frjálsri verslun þar sem reynt er að láta eins og verið sé að veita nemendum í 10. bekk leiðsögn um val á framhaldsskólum. Ég hafði hitt þennan mann áður og ber hann af sér góðan þokka.
Við hittumst hjá Margréti Marteinsdóttur og Frey Eyjólfssyni í morgunútvarpi Rásar 2. Eftir þáttinn sitja nokkur atriði í mér.
Mér finnst til dæmis að menntamálaráðherra eigi að láta auglýsa eitthvað á þessa leið: ,,Nemendur sem ætla í framhaldsskóla og vilja rétta og raunhæfa leiðsögn geta farið á vefinn Nám að loknum grunnskóla. Þar sem réttar og nothæfar upplýsingar eru."
Þá sótti þáttagerðarfólkið fast að fá að vita hvort þetta væri ekki allt í lagi og fréttakynningin ber þess merki.
Höfundurinn Pawel lét þau orð falla að fyrst ekki væri önnur gögn að hafa yrði að nota þessi sem hann nýtti.
Hann sleppti hins vegar mörgum ekki síðri keppnum s.s. á vegum KSÍ og hestamanna sem eru aðgengilegar. En mun alvarlegra er að gögn um brottfall eftir skólum má fá hjá Hagstofunni og víðar. Þá eru gögn um námsframboð vitaskuld vel aðgengileg og fleira má finna.
Annað þessu tengt er að ef gögnin manns eru ekki nothæf þá notar maður þau ekki.
Einnig er ég afar ósáttur við að búa til einn lista. Betra er að draga skólana í dilka. Bóknám sér - verknám sér. Bekkjarkerfi sér - áfangakerfi sér o.s.frv.
Loks þetta með tugþrautina sem lesa má í FV. Þetta er sem sé eins og tugþraut. Samanlagður árangur. Sko. Alvöru tugþrautarmenn vita t.d. að keppni í tugþraut fer fram í aldursflokkum og kynjum. Þá keppa allir í öllum þrautunum en ekki bara sumir. Annar vildi líkja þessu við golf. Það er samanlagður árangur. EN golfarar eru með ólíka forgjöf og þeir fá að spila allar brautir en ekki bara sumar.
Sem sé - notum nothæf gögn - notum þau rétt. Mat á skóla er aðeins huglægt ef mælikvarðarnir eru það. Veitum skólum og stjórnendum aðhald en þetta var eins og að veita togaraútgerðinni aðhald með viðmiðum byggðum á vörusölu á flóamarkaði.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli