Sýnir færslur með efnisorðinu friðarvon. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu friðarvon. Sýna allar færslur

24.7.14

Smá pæling

Þetta blessaða fólk i Palestínu og Ísrael sem býr við það frá degi til dags að vita eki hvar detta  niður flugskeyti á alla mína samúð. Var að horfa á matreiðsluþátt þar sem kokkurinn fór á milli araba og ísraela og tengdi matarhefðir saman. Og það gekk bara vel og maturinn virtist bara jafnætur hvort sem hann var gyðinglegur eða arabískur.
En um leið og ég skil að ég er ekki í þessu miðju heldur bara í blautum friði hér heima (rigningarfriði?) þá skil ég samt ekki fólk sem er með einhverskonar halda með dæmi - það er að halda með Ísrael eða Palestínu. Ég held með þeim sem þarna lifa og starfa og vilja frið í PalestínuÍsrael eða hvað þetta ætti nú að heita.
Íslendingar halda með Palestínu...
Þetta er ekki einhver kappleikur á HM.
Fjandakornið.

Hins vegar verður það að segjast að öfgahópar beggja vegna dansa væntanlega af hatri og ólund (sem þeir telja væntanlega gleði) því þetta ástand þjónar hatri. Við sjáum hvert hatrið getur leitt með Malaysísku flugvélinni sem var full af líknandi læknum. Og skotin niður til hvers?

Hins vegar skorar Ísraelsríki ekki stigin hjá mér þegar þeir skjóta á starfsstöðvar og skóla, sjúkrahús og flóttamannaskýli sem jafnvel eru undir vernd Sameinuðu þjóðanna. Hvernig á að telja slíkt réttlætanlegt?

Og það skal enginn segja mér að þeir viti ekki nákvæmlega hvar hver einasti hlutur er á Gaza. Ég hugsa að þeir geti aðstoðað við að endurinnrétta húsin sem þeir hafa sprengt.

En þeir sem ráðast á skóla þar sem eru börn, á sjúkraskýli og starfsstöðvar SÞ eru væntanlega einungis að tryggja það að þeir verði ekki virtir viðlits. Og ég er sannfærður um að það er ekki það sem Hebrear vilja almennt. Eru þessir forystumenn búnir að gleyma meðferðinni sem gyðingar hlutu fyrir um 70-75 árum?
Og hverjir halda að það að ala á gyðingahatri eða arabahatri eða hvaða hatri sem er leysi vanda þessa heims?
Það er tillaga mín að landsins bestu synir og dætur fari þarna niður eftir með leiðtogann mikla í fararbroddi og leiti þar leiða til að leysa þetta mál.


Á meðan getum við kannski reynt að koma í veg fyrir endurreisn Íslands og fengið Nýtt Ísland í staðinn.

26.12.13

Friðarganga 2013


Jólahald og jólasiðir fjölskyldna verða oft kreddufastari en leiðsögn trúarbragðanna sem að baki búa. Það sama gildir hjá mér án efa. Í minni fjölskyldu er mikið kapp lagt á samveru stærri og minni eininga. Þá eru ræktuð gildi s.s. samstaða, stuðningur, kærleikur og vinátta. Við borðum saman, tölum mikið, spilum og fyrst og síðast erum saman.

Meðal kreddanna í mínum huga er að horfa á salinn í skólanum mínum færast í jólabúning. Þá set ég eitthvað jólalegt í jakkaboðunginn. Síðan færast jólin nær, t.d. með tónleikum, ekki síst kórsins í skólanum en líka öðrum slíkum. Það eru nokkur Heims um bólin tekin. Loks er farið á Hlemmtorg á Þorláksmessu til að fara í Friðargönguna. Þar mætast við hjónin og þau börnin okkar sem geta. Við hittum fjölmarga vini í göngunni og það eru mörg faðmlögin á leiðinni niður Laugaveg í átt að, árið 2013, Austurvelli.

Friðargangan var farin í 35 sinn á þessu ári að ég held. Ég hef verið með síðustu 26-27 árin að einu frátöldu. Engin pest og engin veðurspá hefur haldið mér heima. Friðargangan er skipulögð af nokkrum mjög ólíkum samtökum frá pólítískum til stéttarfélaga til trúfélaga. Þessi samtök hafa því ólíka sýn á tilgang göngunnar. Sumir vilja ágenga ræðumenn sem skella fram stuðandi upplýsingum og vekja fólk til umhugsunar um þau vandamál sem við búum við á þessari plánetu. Og er sosum af nógu að taka. Aðrir vilja barátturæður, tendra eld í hjörtum og enn aðrir vilja hugleiðingar um frið, lausnarmiðaðar, friðarstillandi og íhugandi. Ekkert eitt þessara sjónarmiða er rétt í sjálfu sér.

Til eru þeir friðarunnendur sem tilbúnir eru til að beita jafnvel sömu aðferðum og þeir sem þeir berjast gegn. Þeir myndu vera tilbúnir til að fórna heilsu og lífi í baráttu sinni.

Það er því órabil milli minnar sýnar á gönguna og þessara aðila, þó svo ég treysti mér ekki til að segja til um hvor hafi réttar fyrir sér. Ég fer á staðinn til að reka lokahnút á jólaundirbúninginn að vissu leiti, njóta samvista við mína nánustu og leita friðar með sjálfum mér. Friðarins sem hjartað þarf að finna til að geta miðlað friði áfram því mitt mat er að friður færi frið. Ég vil líka vinna gegn fordómum og hatri, gegn því að flokkað sé eftir kynhneigð, trúarhópum, þjóðerni eða sveitarfélögum. Einhvernveginn er það svo að þegar bein finnast í jörðu þá veit enginn hvaða tungumál sá maður talaði sem beinin átti. Það er heldur ekki auðsætt hver húðlitur hans var, trúarskoðanir eða pólítík. Það sem meira er að við hlægjum öll á sama hátt, brosum eða gleðjumst.

Það er t.d. afar yndislegt að vera á flugvelli og sjá ættingja hittast eða bara vera á Laugaveginum á Þorláksmessu og sjá vini og kunningja fagna hver öðrum. Kærleikurinn er annar hluti friðar og margir minnast þess að þegar flugvélarnar sem stefnt var gegn Bandaríkjunum 11/9 þá hringdi fólkið sem í vélunum var, eða sat fast í turnunum, í ástvini til að tjá þeim kærleika sinn. Ekki fréttist af neinum sem hringdi til að hafa  í heitingum við fólk.

Lærdómurinn sem ég dreg af þessu öllu er sá að það skiptir mestu í baráttu fyrir friði að vera sáttur við sjálfan sig, að skilja að við erum öll af sama meiði og að öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir. Við eigum að rækta það góða í okkur, miðla því til annarra og vinna að þess konar þjóðarsátt sem kallar fram þolinmæði og skilning frekar en hatur og fordóma.

Með þetta í huga sendi ég öllum sem þetta lesa óskir um frið á jólum og í raun frið alla daga.

7.1.12

Friðarræðan í heild sinni.


Það er afar sérstakur heiður að fá að ávarpa þessa samkomu, við lok þrítugustu og annarrar friðargöngunnar. Hún hefur verið mikilvægur hluti jólahalds fjölskyldu minnar í næstum þrjátíu ár og eina skiptið sem við voru erlendis á Þorláksmessu þá fórum við okkar eigin friðargöngu þar sem við bjuggum þau jólin.
Friður er orð sem við skiljum öll en ekki endilega á sama hátt. Þannig var friði náð í Evrópu í lok blóðugrar fyrri heimstyrjaldar með því að skella allri skuldinni á einn aðila, lofa afvopnun sem enginn stóð við og skilja eitt öflugasta ríki Evrópu eftir í sárum sem ekki gátu gróið. Menn tryggðu frið en ekki sátt. Ófriður á hinn bóginn, er ekki endilega styrjöld eða ofbeldi. Það má leiða líkur að því að á Íslandi ríki ófriður. Samt berum við ekki vopn og við sem stöndum hér eigum ekki von á því að á okkur verði ráðist með vopnum, hvað þá heldur að okkur verði bannað að koma hér saman. Við lítum svo á að okkur sé frjálst að tjá okkur, frjálst að trúa á það sem við viljum. Frjálst að hafa skoðanir  hvort sem þær snerta skipuleg trúarbrögð, stjórnmál eða heimspekikenningar. Og við erum hér vegna þess að við viljum frið, sum undir merkjum samtaka sem kenna sig við trúarbrögð, önnur í nafni samtaka sem kenna sig við mannréttindi og einnig  tengd stéttarfélagi. Flest jafnvel á eigin vegum. En það eru friðurinn og óskin um frið sem kalla okkur saman.
Frá örófi alda virðist, af fornleifarannsóknum og rituðum heimildum, sem maðurinn hafi leitað að kjarna lífsins, tilgangi lífsins, grunni tilverunnar. Á þessu hef ég lengi haft áhuga og mér virðist sem fjöldi trúar- og heimspekileiðtoga hafi allir leitað að kjarnanum hjá manninum sjálfum, í gerðum hans og því sem hann skilur eftir sig. Mér sýnist, að með einföldum hætti, megi segja að lykilhugtökin séu leit, friður, kærleikur og sátt. Búddha leitaði innri friðar, hvatti fólk til þess að spyrja og efast og lagði áherslu á virðingu fyrir lífinu. Akhenaten, egypskur faraó, boðaði eingyðistrú en kjarni hennar var að sólinni fylgdi birta og líf. Hann vildi leiða fólk sitt úr myrkri í birtu og hann lagði áherslu á að þessi guð hans elskaði lífið. Annar trúarleiðtogi fornaldar, Zaraþústra, lagði kapp á að menn berðust fyrir sannleika, kærleika og því að berjast gegn hinu illa. Út frá kenningum hans varð til trúarkerfi sem var vinsælt meðal hermanna fornaldar og var kennt við guðinn Miþras. Miþras boðaði líf eftir dauðann, lagði kapp á baráttuna við hið illa og kærleika milli manna. Víða má finna fornar minjar hofa Miþrasar og viti menn, þar eru vísbendingar um að kristnir menn hafi stundað trú sína í sömu hofum. Og hver var kjarninn í boðskap Kristninnar ef ekki kærleikur og friður. Sú hugsun er svo nátengd mannkyninu að hún finnst nær alls staðar. Ghandi, sem var Hindúi, lagði áherslu á friðsamlega baráttu gegn óréttlæti. Martin Luther King gerði það líka og kannski er Nelson Mandela magnaðasta dæmið. Hann hafði setið í fangelsi lunga ævi sinnar vegna skoðanna sinna. Þegar hann var frjáls, og vann ásamt stuðningsmönnum sínum leið til valda í Suður Afríku, þá leitaði hann sátta, ekki hefnda eins og sumir hefðu gert.
Einföld niðurstaða mín er sú að öll helstu trúarkerfi mannkyns, allar helstu mannkenningar, ganga út á það að leita sátta, leita friðar og kærleika en kannski mest út á það að ná sátt við sjálfan sig, leita innri friðar og sýna kærleika. Og hér á þessu torgi erum við saman komin, eins og fyrr sagði, stór hópur fólks sem kallar eftir friði í heiminum, án tillits til stjórnmálaskoðana, trúarbragða eða annarra merkimiða sem á okkur hanga.
Eina leiðin til að ná friði er að beita friði, beita gagnkvæmri virðingu og leita sátta. Aldrei hef ég vitað að sátt náist þar sem einn aðili fær allt sitt fram en annar ekkert. Við berjumst því ekki fyrir friði. Við leitum friðar, við beitum friði. Í hindúisma segir að gæska leiði af sér gæsku en illska illsku. Þess vegna sagði Ghandi að ef menn vilji fá auga fyrir auga og tönn fyrir tönn þá endi það einvörðungu þannig að allir verði blindir.
Við eigum rétt á friði. Börnin í Palestínu eiga rétt á friði. Drengirnir sem hafa verið settir til vopna, víða í Afríku, eiga rétt á friði. Stúlkurnar sem fluttar hafa verið mannsali milli landa, börn sem þræla í verksmiðjum víða um heim  eiga rétt á friði og virðingu þeirri sem í mannréttindum felst. Og með friði eigum við líka við kærleika og sátt. Sátt við umhverfi okkar og sátt við okkur sjálf.
Mér finnast jólin yndislegur tími. Þau eiga margbrotnar trúarlegar skírskotanir. Í aldanna rás hefur fólk hækkandi sól, um allan heim, en kannski ekki allt á sama tíma. Það er sama hvort við hugsum í íslenskum trúmálum fyrir eða eftir kristnitöku. Við færum gjafir, kveikjum ljós og fögnum því að nú er daginn farið að lengja og við fögnum þessu einstaka  afmælisbarni sem er liðlega 2000 ára. Vissulega getum við látið kapítalismann og neyslusukkið fara í taugarnar á okkur en við eigum líka að muna það sem á bak við jólahaldið stendur. Við sendum vinum jólakort og kveðjur, sem eru skilaboð um að við munum eftir þeim og að okkur þykir vænt um þá. Við söfnumst saman á vinnustöðum, heima hjá okkur, söfnumst í vinahópa og fjölskyldubandalög. Við pirrum okkur hvert á öðru en munum að við viljum ekki vera án hvors annars. Jólahald fjölskyldunnar er líklega eitthvert sterkasta kærleiksafl ársins. Ungir og gamlir hittast, blanda geði, spila, rökræða, en kannski fyrst og síðast tengjast.
Og það er þessi réttur sem mér finnst kannski mest um verður. Rétturinn sem við eigum til að búa við frið, deila friði. Það sem við köllum mannréttindi, réttinn sem hvert og eitt mannsbarn á , hvar sem það fæðist, á Íslandi, á Austur Tímor, í Bangla Desh, í Efra Volta.
Sem kennara og skólastjórnanda finnast mér þessi réttindi barna og okkar allra mikils verð. Þegar ég horfi á unga fólkið sýna hæfileika sína í íþróttum, rökræðum, prófum, skapandi listum og skapandi hugsun svo eitthvað sé nefnt, þá get ég ekki varist þeirri hugsun að við verðum að muna að grundvallarréttindin sem okkur eru gefin í mannréttindayfirlýsingum eru ekki umsemjanleg. Við verðum að verja þau, við verðum að trúa á þau og beita okkur fyrir því að aðrir njóti þeirra líka.  Kannski hittir Páll Óskar naglann á höfuðið þegar hann syngur „Megi það byrja með mér!“
Þá vil ég lýsa þeirri ósk minni heitastri að nú á myrkasta tíma vetrarins þegar sólin er farin að hækka og framundan eru vorið og birtan þá takist okkur að rækta fræ friðar í hjörtum okkar. Ég get ekki með orðum lýst þeirri þrá sem með mér býr að þetta blessaða þjóðfélag okkar búi börnum sínum sátt og framtíð þar sem, þessi friðarfræ, fá að vaxa.
Að lokum vil ég segja ykkur frá því að nú þegar þessari ræðu minni lýkur þá hlakka ég til að fara til konu minnar, barna og allmargra vina sem hér eru og syngja með þeim og þessum glæsilegu kórum eitthvert alþjóðlegasta og fallegasta lag allra tíma, Heims um ból, eins og ég hef gert síðustu áratugi. Ég er mikið jólabarn og frá og með þessari stundu ganga jólin í garð hjá mér. Ég færi ykkur öllum óskir um gleði á jólum, farsæld á nýju ári og frið um alla tíð. Takk fyrir að gefa ykkur tíma til að hugsa um frið. Takk fyrir áheyrnina.