Sýnir færslur með efnisorðinu I'm going slightly mad. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu I'm going slightly mad. Sýna allar færslur

23.4.15

Fordómar, hatur, þröngsýni. Eða hvað?

Þessi pistill átti að vera svona útúrsnúningur og fyndni en eftir að hafa hlustað á upptöku af umræðum hjá Pétri Gunnlaugssyni á Útvarpi sögu þá snéri ég við blaðinu. Meðan ég hlustaði á þáttinn bjóst ég við að allt í einu kæmi fram að fólkið sem hringdi inn væri úr leikhópi sem væri með svona síðaprílgabb.

En svo rann upp fyrir mér að þetta var fólk úti í bæ. Sannfært um að hommar og lesbíur myndu kenna börnum í grunnskóla verklega kynlífsfræðslu.

Mér komu í hug nokkrir snillingar sem sögðu meðal annars "ef þú vilt breyta heiminum þá er menntun málið" (Nelson Mandela) eða "ef ykkur finnst menntakerfið dýrt þá ættuð þið að kanna kostnaðinn af fáfræði" (rektor Yale háskólans í Boston).

Ég er gjörsamlega búinn að fá upp í kok af hatursumræðu, hótunum og dónaskap. Mér finnst ekki sæmandi að fólk leyfi sér að tala eins og það gerði í téðum þætti. Það má hafa sínar skoðanir. Það væri ekki verra að það orðaði þær kurteisislega og hlýddi jafnvel á þá sem eru á öndverðum meiði.
 Eða læsi sig til um málið áður en það færi að halda því fram sem það gerði um Hafnarfjörð  og hinseginfræðslu.

Það er eitt að tjá sig og annað að tjá sig. Það er t.d. lágmarkskrafa að fólk sem veður í símann og hringir í Pétur Gunnlaugsson eða aðra ámóta umræðustjórnendur sé kannski búið að kynna sér málið.
Ég er stoltur af Páli Óskari og listsköpun hans, mannréttindabaráttu og siðsamlegum málflutningi. Sama gildir um Hörð Torfason og marga listamenn. Og mér er slétt sama hvort þeir eru sam- eða gagnkynhneigðir.

Ég er stoltur af góðu fólki sem hefur kærleiksríkt hugarþel og leggur sig fram um að bæta heiminn.
Frekar en dreifa um hann vondum straumum og brennandi hatri.

Og ég er stoltur af bæjaryfirvöldum í Hafnarfirði vegna þessa máls því það fjallar um baráttuna við fordóma og fáfræði.

Ég reikna með að fá einhverjar eiturgusur vegna þessa pistils.

En efast um að þeir verstu komist svo langt að lesa töluna sem ég set hér.

Töluna 42.

Og vita hvað hún merkir!

24.7.14

Smá pæling

Þetta blessaða fólk i Palestínu og Ísrael sem býr við það frá degi til dags að vita eki hvar detta  niður flugskeyti á alla mína samúð. Var að horfa á matreiðsluþátt þar sem kokkurinn fór á milli araba og ísraela og tengdi matarhefðir saman. Og það gekk bara vel og maturinn virtist bara jafnætur hvort sem hann var gyðinglegur eða arabískur.
En um leið og ég skil að ég er ekki í þessu miðju heldur bara í blautum friði hér heima (rigningarfriði?) þá skil ég samt ekki fólk sem er með einhverskonar halda með dæmi - það er að halda með Ísrael eða Palestínu. Ég held með þeim sem þarna lifa og starfa og vilja frið í PalestínuÍsrael eða hvað þetta ætti nú að heita.
Íslendingar halda með Palestínu...
Þetta er ekki einhver kappleikur á HM.
Fjandakornið.

Hins vegar verður það að segjast að öfgahópar beggja vegna dansa væntanlega af hatri og ólund (sem þeir telja væntanlega gleði) því þetta ástand þjónar hatri. Við sjáum hvert hatrið getur leitt með Malaysísku flugvélinni sem var full af líknandi læknum. Og skotin niður til hvers?

Hins vegar skorar Ísraelsríki ekki stigin hjá mér þegar þeir skjóta á starfsstöðvar og skóla, sjúkrahús og flóttamannaskýli sem jafnvel eru undir vernd Sameinuðu þjóðanna. Hvernig á að telja slíkt réttlætanlegt?

Og það skal enginn segja mér að þeir viti ekki nákvæmlega hvar hver einasti hlutur er á Gaza. Ég hugsa að þeir geti aðstoðað við að endurinnrétta húsin sem þeir hafa sprengt.

En þeir sem ráðast á skóla þar sem eru börn, á sjúkraskýli og starfsstöðvar SÞ eru væntanlega einungis að tryggja það að þeir verði ekki virtir viðlits. Og ég er sannfærður um að það er ekki það sem Hebrear vilja almennt. Eru þessir forystumenn búnir að gleyma meðferðinni sem gyðingar hlutu fyrir um 70-75 árum?
Og hverjir halda að það að ala á gyðingahatri eða arabahatri eða hvaða hatri sem er leysi vanda þessa heims?
Það er tillaga mín að landsins bestu synir og dætur fari þarna niður eftir með leiðtogann mikla í fararbroddi og leiti þar leiða til að leysa þetta mál.


Á meðan getum við kannski reynt að koma í veg fyrir endurreisn Íslands og fengið Nýtt Ísland í staðinn.

13.6.13

Tímabundnir flutningar

Heil og sæl
Ég ætla að prufa, núna um hríð, að blogga á vef DV. Ég mun setja myndir inn hér og fleira hugsanlega frá ferðum okkar hjóna í sumar. En í bili blogga ég hér - http://www.dv.is/blogg/ og þar eru sem stendur þrír pistlar eða blogg -
Þetta, þetta og þetta!

5.8.12

Blessaðri kreppunni lokið?

Já og jæja
Steingrímur J er eiginlega búinn að gefa það út.
Kreppan er búin á Íslandi.
Annað en í Evrópu.
Enda kominn tími til!
Fjögur ár í haust!

Opinber starfsmaður eins og ég er náttúrulega jafnvel settur hvort sem er kreppa eða ekki.
Svo ég fór í gögn Hagstofunnar og skattframtölin mín hjá skattur.is.

Frá janúar 2007 til janúar 2012 sýnist mér að neysluvísitölur hafi hækkað um 36% sem þýðir að ég þarf 136.000 kr. til að geta keypt það sama og ég fékk fyrir 100.000 kr. 2007. Og til að þéna 100.000 kall í dag þarf ég um 150 þús. (til að fá 100 þús kall í vasann þegar búið er að draga frá skatta og önnur gjöld).

Lánskjaravísitalan hefur hækkað um 37% sem þýðir að fyrir hvern 100.000 kall sem ég skuldaði 2007 skulda ég (og allir þeir sem skulda) 137.000 kr. í dag.

En þetta er nú allt í lagi því launin hafa hækkað - launavísitalan hefur farið upp um 19%! sem þýðir að fólkk hefur fengið 19 þúsund kall í launahækkun fyrir hvern hundraðþúsundkall sem það var  með  í laun.

Mín laun hafa hækkað um 9% á sama tíma en ég gleðst með þeim sem fengu meira í prósentvís en ég. Ætli þeim veiti af!

En stoltastur er ég af sköttunum mínum. Ég trúi því að það hafi nú aldeilis reddað Ríkissjóði.
Ég keyri á jeppa þó svo bensínið hafi hækkað.
Svo eru allir neysluskattarnir (tollar, vaskur og allt það) en þegar ég skoða hvað ég fékk í laun frá Ríkissjóði 2007, hvað ég greiddi í skatt og hvað ég átti eftir í samanburði við árið 2011 þá held ég eftir minna af níu prósentum hærri árslaunum mínum 2011 en ég gerði 2007.

Mikið er nú gott að finna að kreppunni er lokið og sjá jafnframt HÉR

18.4.12

Verðtryggingin og ábyrgðarlaus hagstjórn


 
Ég hef oft leyft mér að hafa þá skoðun að verðtryggingin á Íslandi sé vítahringur sem ekki eigi sér nokkra réttlætingu. Ástæðurnar (m.a.)?
1. Ef ríkið hækkar laun opinberra starfsmanna, eykur álögur á tóbak eða bensín o.s.frv. þá fer vísitalan upp, lánin hækka o.s.frv.
2. Þetta er fölsk tilfærsla eigna. Betra væri að stunda ábyrga hagstjórn og standa vörð um verðmæti landsins en búa til falska öryggistilfinningu og lakari gjaldmiðil.
3. Sveiflur krónunnar þýða alltaf tap eða hagnað sem er falshugmynd. Ef krónan er sterk, þá ,,tapa" útflutningsgreinar en innflytjendur standa vel, verðlag er lægra en krónan verðmætari. Ef krónan er veik þá græða útflytjendur því þeir fá svo margar krónur per t.d. dollar. Að vísu ónýtar krónur en fleiri. Þá fer verðbólgan á flakk, neysluverð hækkar og almenningur líður fyrir.
Ég hef oftar en einu sinni sýnt það á þessu bloggi hversu óstjórnlega vitlaus gjaldmiðill krónan er. Hún þjónar þröngum hagsmunum en ekki almenningi.
En fyrst. Hagstofan upplýsir að verðtrygging, í núverandi formi, hafi verið tekin upp árið 1979 en þá ,,reiknaði Seðlabanki Íslands út samsetta lánskjaravísitölu sem reist var á þágildandi framfærsluvísitölu og byggingarvísitölu. Þessari aðferð var breytt árið 1989 er launavísitölu var bætt við. Árið 1995 voru sett lög um vísitölu neysluverðs, nr. 12/1995 og leysti hún vísitölu framfærslukostnaðar af hólmi. Þá var jafnframt ákveðið með lögum um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001, að nota vísitölu neysluverðs eina til verðtryggingar."hagstofa.is
Landsbankinn bætir um betur á vef sínum en þar segir: ,,Segja má að verðtrygging eigi sér aldalanga sögu hér á landi. Áður fyrr var oft talað um kýrverð eða lambsverð sem er n.k. verðtrygging. Fyrstu verðtryggðu lánin samkvæmt nútímaskilningi komu hins vegar fram á Íslandi árið 1955.
Árið 1979 voru sett lög um verðtryggingu sem nefnd eru Ólafslög í daglegu tali, eftir Ólafi Jóhannessyni sem þá var forsætisráðherra. Með þessum lögum varð verðtrygging almennari þar sem almenningur gat lagt inn á verðtryggða reikninga og á móti voru veitt verðtryggð lán.

Töluverðar breytingar hafa orðið á því við hvaða vísitölu er miðað þegar fjárhæð er verðtryggð:

Samkvæmt lögum um verðtryggingu (38/2001) má einungis nota vísitölu neysluverðs (sem áður kallaðist framfærsluvísitala) til verðtryggingar lánsfjár eða sparifjár. Fram til 1. apríl 1995 var verðtrygging peninga hins vegar oftast miðuð við svokallaða lánskjaravísitölu, sem var samsett úr þrem vísitölum: Framfærsluvísitölu, byggingarvísitölu og launavísitölu. Vægi þeirra í lánskjaravísitölunni var jafnt. Þetta var sá grunnur sem gilti frá 1. janúar 1989 til 31. mars 1995. Enn áður var grunnurinn sá að framfærsluvísitalan gilti 2/3 á móti 1/3 byggingarvísitölu.

Vegna eldri samninga sem enn eru í gildi og fylgdu lánskjaravísitölu er hún notuð, en frá og með apríl 1995 hefur hún tekið sömu hlutfallsbreytingum og vísitala neysluverðs." landsbanki.is 
En hver hefur þróunin verið?
Hér koma þrjár myndir - unnar af vef Hagstofunnar og ekkert átt við þessar tölur nema þær voru settar í hlutföll. 
 Þessi fyrsta, sem mun sjást betur hér að neðan sýnir verðlagsþróun á saltfiski, mjólk, eggjum og kaffi frá 1914 til 1979.
Samkvæmt henni virðist allt hafa verið mjög stabílt til um 1965 þegar allt fer upp og lóðrétt frá 1970.


Þessi (betri gerð neðar) sýnir að þróunin er skörp áfram frá 1980 til 2011. Halli línanna þýðir rýrnandi krónu. Ljósbláa línan efsta er kaupmáttarvísitala en hún er á hægri ásnum en hitt á þeim vinstri. Þar er miðað við hveiti, Kóka kóla, sígarettur og bensín.


Ég hef áður sýnt fram á hrun krónunnar.





Það er ákveðið fals samt í þessu dæmi..  
Á árunum frá fyrra stríði til loka þess síðara komu tvö mjög alvarleg verðbólguskot. Þau sjást á þessari mynd hér. Við sjáum að skotið í fyrra stríðinu var minna en í því síðara. 
Í kjölfar þessa var verðtryggingu komið á af alvöru, segir Landsbankinn, árið 1955. En að fullu 1979.



Og þá fyrst varð fjandinn laus. Þegar skoðuð eru árin frá 1950 til 1979 má sjá að tímabilið frá 1950-65 var bara farsæld og fjólur en var það vitaskuld ekki. Sama gilti um árin frá 1914-1950 eins og áður er sýnt. Miklar verðsveiflur en verðsveiflurnar voru bara litlar miðað við næstu hamfarir.


Sem eru hér. Þess var líka ofar.

Og hér er öldin aftur til 1979. Og því spyr ég mig í fáfræði mnni rétt eina ferðina - hvað græðum við á krónunni, á verðtryggingunni og hagsmunapotinu?
Ég leit á þessa síðu og sá að Bandaríkjadalur hefur líka rýrnað. Kaupmáttur dollarans frá 1774 er jafnvirði fjögurra centa en það þýðir að kaupmáttur nútíma dollarans er 4% af því sem hann var. Ef við miðum við árið 1920 þá er verðgildi nútíma dollara 4 cent en þá var hann 39 cent af dollara frá 1774. Það þýðir að nútíma dollar vegur 10% af dollara fra 1920.
Íslenska krónan er á sama tíma um 0,045% af krónunni frá 1920. Hún hefur rýrnað margfalt meira en dollari. Sem sé: 10% versus 0,045%.
Eins og ég segi stundum. Do the math.