Sýnir færslur með efnisorðinu fjölskyldan. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu fjölskyldan. Sýna allar færslur

21.1.12

21.1.1982-2012 30 ár

Ég velti oft fyrir mér, þegar fjölmiðlar birta myndir af slysum, nöfn á fórnarlömbum o.s.frv. hvort það fólk hafi gengið í gegnum það sama og fjölskylda mín gerði fyrir þrjátíu árum síðan. Það munaði að vísu því að þá var fórnarlambið ekki til staðar.
Þetta krefst líklega skýringa. Í janúar 1982 birtist þessi mynd í Mogganum þar sem verið er að breiða yfir fórnarlamb skotárásar í útöndum. Þetta snertir okkur fæst, nema við getum velt fyrir okkur hversu geðsleg svona mynd er. Margar verri hafa birst. Maðurinn sem þarna lá átti sína vini, ættingja og samstarfsmenn sem voru harmi slegnir yfir þess ótrúlega atviki. Ég hef án efa flett blaðinu og hugsað lítið um þessa forsíðu.
Tveimur dögum seinna, að morgni 21. janúar 1982 lést Kristján Karlsson Víkingsson bróðir minn. Það er ótrúlegt að sitja í fallegu veðri, við fannhvíta jörð, og hugsa til þessa dags. Hann fórst í björgunaraðgerð við Vestmannaeyjar og fannst aldrei. Það var erfitt.
Atvikið vakti gríðarlega athygli og fréttamiðlar fóru hamförum. Það voru samt einvörðungu dagblöðin og Ríkisútvarpið þá. Ég man enn eftir samtalinu sem ég átti við fréttastjóra Ríkisútvarpsins, sem lá í mér að fá að birta nafn hans í kvöldfréttum. Við vorum ekki búin að kortleggja hvort við hefðum náð í alla sem þurfti að tala við. Auk þess sem okkar nánasta fólk var sumt enn að velta fyrir sér hvort von væri til þess að hann væri týndur en ekki látinn. Það að birta nafnið var staðfesting okkar á að hann væri farinn. Sem hann var. En það að vita ekki hvar hann var fór mjög illa í okkur. Það að vita ekki hvort við gætum kvatt.
Daginn eftir birtist þessi forsíða á Mogga. Ég varð æfur. Af hverju vorum við ekki látin vita? En þegar ég talaði við Moggann þá var svarið að nafnið hefði birst í kvöldfréttum daginn áður og þar með hefði þessi mynd Sigurgeirs í Eyjum verið akkúrat það sem vantaði. Það væri ekki hægt að sinna svona í önnum dagsins.
Ég var lengi að fyrirgefa þetta.

Það var Axel frændi minn sem fékk mig til að sættast við málið. Hann sagðist líta á þessa mynd, þá síðustu sem til var af bróður mínum, sem mynd af hetju. Hetjunni sem hann var. Hann sagði mér að ég ætti að gera slíkt hið sama. Og hann átti fleiri myndir frá Sigurgeiri.

Mikið er ég þakklátur þessum góða frænda mínum fyrir leiðsögnina.
En ég hugsa enn til aðstandenda fólks, þegar nöfn eru birt. Sem betur fer er oftar farið fram af meiri rósemi en gert var þennan dag.


Þrjátíu ár. Blessuð sé minning hans.

7.1.12

Friðarræðan í heild sinni.


Það er afar sérstakur heiður að fá að ávarpa þessa samkomu, við lok þrítugustu og annarrar friðargöngunnar. Hún hefur verið mikilvægur hluti jólahalds fjölskyldu minnar í næstum þrjátíu ár og eina skiptið sem við voru erlendis á Þorláksmessu þá fórum við okkar eigin friðargöngu þar sem við bjuggum þau jólin.
Friður er orð sem við skiljum öll en ekki endilega á sama hátt. Þannig var friði náð í Evrópu í lok blóðugrar fyrri heimstyrjaldar með því að skella allri skuldinni á einn aðila, lofa afvopnun sem enginn stóð við og skilja eitt öflugasta ríki Evrópu eftir í sárum sem ekki gátu gróið. Menn tryggðu frið en ekki sátt. Ófriður á hinn bóginn, er ekki endilega styrjöld eða ofbeldi. Það má leiða líkur að því að á Íslandi ríki ófriður. Samt berum við ekki vopn og við sem stöndum hér eigum ekki von á því að á okkur verði ráðist með vopnum, hvað þá heldur að okkur verði bannað að koma hér saman. Við lítum svo á að okkur sé frjálst að tjá okkur, frjálst að trúa á það sem við viljum. Frjálst að hafa skoðanir  hvort sem þær snerta skipuleg trúarbrögð, stjórnmál eða heimspekikenningar. Og við erum hér vegna þess að við viljum frið, sum undir merkjum samtaka sem kenna sig við trúarbrögð, önnur í nafni samtaka sem kenna sig við mannréttindi og einnig  tengd stéttarfélagi. Flest jafnvel á eigin vegum. En það eru friðurinn og óskin um frið sem kalla okkur saman.
Frá örófi alda virðist, af fornleifarannsóknum og rituðum heimildum, sem maðurinn hafi leitað að kjarna lífsins, tilgangi lífsins, grunni tilverunnar. Á þessu hef ég lengi haft áhuga og mér virðist sem fjöldi trúar- og heimspekileiðtoga hafi allir leitað að kjarnanum hjá manninum sjálfum, í gerðum hans og því sem hann skilur eftir sig. Mér sýnist, að með einföldum hætti, megi segja að lykilhugtökin séu leit, friður, kærleikur og sátt. Búddha leitaði innri friðar, hvatti fólk til þess að spyrja og efast og lagði áherslu á virðingu fyrir lífinu. Akhenaten, egypskur faraó, boðaði eingyðistrú en kjarni hennar var að sólinni fylgdi birta og líf. Hann vildi leiða fólk sitt úr myrkri í birtu og hann lagði áherslu á að þessi guð hans elskaði lífið. Annar trúarleiðtogi fornaldar, Zaraþústra, lagði kapp á að menn berðust fyrir sannleika, kærleika og því að berjast gegn hinu illa. Út frá kenningum hans varð til trúarkerfi sem var vinsælt meðal hermanna fornaldar og var kennt við guðinn Miþras. Miþras boðaði líf eftir dauðann, lagði kapp á baráttuna við hið illa og kærleika milli manna. Víða má finna fornar minjar hofa Miþrasar og viti menn, þar eru vísbendingar um að kristnir menn hafi stundað trú sína í sömu hofum. Og hver var kjarninn í boðskap Kristninnar ef ekki kærleikur og friður. Sú hugsun er svo nátengd mannkyninu að hún finnst nær alls staðar. Ghandi, sem var Hindúi, lagði áherslu á friðsamlega baráttu gegn óréttlæti. Martin Luther King gerði það líka og kannski er Nelson Mandela magnaðasta dæmið. Hann hafði setið í fangelsi lunga ævi sinnar vegna skoðanna sinna. Þegar hann var frjáls, og vann ásamt stuðningsmönnum sínum leið til valda í Suður Afríku, þá leitaði hann sátta, ekki hefnda eins og sumir hefðu gert.
Einföld niðurstaða mín er sú að öll helstu trúarkerfi mannkyns, allar helstu mannkenningar, ganga út á það að leita sátta, leita friðar og kærleika en kannski mest út á það að ná sátt við sjálfan sig, leita innri friðar og sýna kærleika. Og hér á þessu torgi erum við saman komin, eins og fyrr sagði, stór hópur fólks sem kallar eftir friði í heiminum, án tillits til stjórnmálaskoðana, trúarbragða eða annarra merkimiða sem á okkur hanga.
Eina leiðin til að ná friði er að beita friði, beita gagnkvæmri virðingu og leita sátta. Aldrei hef ég vitað að sátt náist þar sem einn aðili fær allt sitt fram en annar ekkert. Við berjumst því ekki fyrir friði. Við leitum friðar, við beitum friði. Í hindúisma segir að gæska leiði af sér gæsku en illska illsku. Þess vegna sagði Ghandi að ef menn vilji fá auga fyrir auga og tönn fyrir tönn þá endi það einvörðungu þannig að allir verði blindir.
Við eigum rétt á friði. Börnin í Palestínu eiga rétt á friði. Drengirnir sem hafa verið settir til vopna, víða í Afríku, eiga rétt á friði. Stúlkurnar sem fluttar hafa verið mannsali milli landa, börn sem þræla í verksmiðjum víða um heim  eiga rétt á friði og virðingu þeirri sem í mannréttindum felst. Og með friði eigum við líka við kærleika og sátt. Sátt við umhverfi okkar og sátt við okkur sjálf.
Mér finnast jólin yndislegur tími. Þau eiga margbrotnar trúarlegar skírskotanir. Í aldanna rás hefur fólk hækkandi sól, um allan heim, en kannski ekki allt á sama tíma. Það er sama hvort við hugsum í íslenskum trúmálum fyrir eða eftir kristnitöku. Við færum gjafir, kveikjum ljós og fögnum því að nú er daginn farið að lengja og við fögnum þessu einstaka  afmælisbarni sem er liðlega 2000 ára. Vissulega getum við látið kapítalismann og neyslusukkið fara í taugarnar á okkur en við eigum líka að muna það sem á bak við jólahaldið stendur. Við sendum vinum jólakort og kveðjur, sem eru skilaboð um að við munum eftir þeim og að okkur þykir vænt um þá. Við söfnumst saman á vinnustöðum, heima hjá okkur, söfnumst í vinahópa og fjölskyldubandalög. Við pirrum okkur hvert á öðru en munum að við viljum ekki vera án hvors annars. Jólahald fjölskyldunnar er líklega eitthvert sterkasta kærleiksafl ársins. Ungir og gamlir hittast, blanda geði, spila, rökræða, en kannski fyrst og síðast tengjast.
Og það er þessi réttur sem mér finnst kannski mest um verður. Rétturinn sem við eigum til að búa við frið, deila friði. Það sem við köllum mannréttindi, réttinn sem hvert og eitt mannsbarn á , hvar sem það fæðist, á Íslandi, á Austur Tímor, í Bangla Desh, í Efra Volta.
Sem kennara og skólastjórnanda finnast mér þessi réttindi barna og okkar allra mikils verð. Þegar ég horfi á unga fólkið sýna hæfileika sína í íþróttum, rökræðum, prófum, skapandi listum og skapandi hugsun svo eitthvað sé nefnt, þá get ég ekki varist þeirri hugsun að við verðum að muna að grundvallarréttindin sem okkur eru gefin í mannréttindayfirlýsingum eru ekki umsemjanleg. Við verðum að verja þau, við verðum að trúa á þau og beita okkur fyrir því að aðrir njóti þeirra líka.  Kannski hittir Páll Óskar naglann á höfuðið þegar hann syngur „Megi það byrja með mér!“
Þá vil ég lýsa þeirri ósk minni heitastri að nú á myrkasta tíma vetrarins þegar sólin er farin að hækka og framundan eru vorið og birtan þá takist okkur að rækta fræ friðar í hjörtum okkar. Ég get ekki með orðum lýst þeirri þrá sem með mér býr að þetta blessaða þjóðfélag okkar búi börnum sínum sátt og framtíð þar sem, þessi friðarfræ, fá að vaxa.
Að lokum vil ég segja ykkur frá því að nú þegar þessari ræðu minni lýkur þá hlakka ég til að fara til konu minnar, barna og allmargra vina sem hér eru og syngja með þeim og þessum glæsilegu kórum eitthvert alþjóðlegasta og fallegasta lag allra tíma, Heims um ból, eins og ég hef gert síðustu áratugi. Ég er mikið jólabarn og frá og með þessari stundu ganga jólin í garð hjá mér. Ég færi ykkur öllum óskir um gleði á jólum, farsæld á nýju ári og frið um alla tíð. Takk fyrir að gefa ykkur tíma til að hugsa um frið. Takk fyrir áheyrnina.

21.8.11

Eintóm ánægja og smá verkir

Í fyrsta lagi. Takk allir sem studdu okkur hjónin og þar með Parkinsonsamtökin í Reykjavíkurmaraþoni 2011. Takk Íslandsbanki fyrir það að hvetja fólk til áheitasöfnunar og að standa svona vel að þessu verkefni. Það er mjög ánægjulegt að fá að vera með í þessu hlaupi, vitandi að maður fær að hafa jákvæð áhrif á góð málefni og skiptir máli.






Og ekki spillti veðrið fyrir. Þessi mynd var tekin við Tjörnina um kl. 9 um morguninn.
og þessi líka. Þær eru báðar teknar á símann minn svo gæðin eru ekki til að hrópa húrra yfir.
 Þarna er hópurinn fyrir framan mig...
 og þessi voru fyrir aftan mig!
 Hér erum við komin út á Fríkirkjuveg. Röðin er komin upp Skothúsveg. Þetta eru um 4000 manns!
 Og hér er ég að horfa upp Skothúsveginn.
 Hérna er ég kominn út á Norðurströnd og var búinn að týna frúnni en hafið þið séð bugtina svona?
Þessir þrír voru hluti af amerísku Boot camp gengi og skemmtu sér stórvel með allskonar æfingum á leiðinni.

 
 Þetta er önnur af bugtinni.










Hér er makríll að skemmta sér í yfirborðinu.

Fáninn á Iðnó hékk en blakti aðeins þegar ég tók myndina. Þarna fann ég frúnna og fleiri til en það eru vitni að því að ég valhoppaði síðustu metrana!
Ég síðan tek ofan fyrir þeim foreldrum, sem hlupu um  morguninn, en fóru samt með krakkana sína í Latabæjarhlaup síðdegis. Á næstu mynd er hópurinn að safnast saman í Sóleyjargötu, - eða hluti hans.
Í öllu falli var dagurinn frábær og ég efa ekki að menningarnótt var frábær þar á eftir þar, til fylleríið á landanum hófst. Þá var ég feginn að vera heima. En enn og aftur kærar þakkir!

5.2.11

We are snowed in - literally!

Its a bit romantic really! See here!


This is our patio table and below is my old bike rather stuck in the snow.



This chair and table are also on the patio and below is my copper beech.As I say - very romantic but then you have to get the shovel out!
There is more on my flickr!

2.1.11

Gamall gítar

Þessi kona hét Ásta Soffía Wilhelmsdóttir, fædd á Siglufirði 1906 og lést langt um aldur fram árið 1928. Hún var dóttir Wilhelms Marzillíusar Jónssonar (1869-1938) og Ólafar Barðadóttur (1881-1973) og var systir ömmu minnar Vilhelmínu Kristínar Örum Vilhelmsdóttur (1904-1976).
Ásta Soffía heldur á gítar sem hún eignaðist og ég er með á hemili mínu. Sem smíð er þessi gítar kannski ekki merkilegur en hann  er þó merkilegur fyrir það að hann var smíðaður í Nassjö í Svíþjóð á verkstæði sem var stofnað um 1924 og Ásta dó 1928. Hann er vel spilafær enn og úr honum kemur hljómur sem er afar fallegur og ljúfur. Ég set að vísu ekki harða strengi í hann, sem væri flottast, heldur svokallaða silk and steel sem spenna hann ekki eins fast. Þar með verður hljómurinn dempaðri.
Verkstæðið í Nassjö starfaði fram að Kreppu svo þar með má ljóst vera hvenær hann var smíðaður. Eftir að Ásta Soffía dó komst hann í hendur móður minnar sem mun hafa leikið og spilað á hann enda kenndi hún mér grunnatriðin þegar ég fór að sýna áhuga. Seinna sölsaði ég hann undir mig...
Mér þykir afar vænt um þetta hljóðfæri, þessa sögu sem honum tengist og vildi óska þess að ég ætti mynd af næstu Ástu með hann að spila!

27.3.10

Afmæli

Það er fullt af afmælum þessa dagana. Sigga Magga systir átti afmæli 15. mars og skreið yfir að verða hálffimmtug.Þorri mágur varð ** ára 22. mars. Sigga mín átti afmæli 23. mars og hélt upp á það á Laugum í Sælingsdal. Pabbi verður 85 ára 28. mars og Ásta María systir verður fimmtug á páskadag 4. apríl.
Þetta er gaman en ég skil samt ekki hvernig svona ungur maður eins og ég er skyndilega umhverfður svona gömlu fólki?

9.2.10


Þetta merki sendi hún Sigga mér. Það er víst einhvers konar viðurkenning og mér þykir satt að segja vænt um það. Ekki svo oft sem ég fæ svoleiðis.
Ég skil vel að hún skildi fá hana.
Þessari viðurkenningu fylgir að ég setji tengil yfir á bloggið hennar, ég á að skrifa 7 staðreyndir um sjálfan mig og senda 7 bloggurum viðurkenninguna áfram. Þeir sjö sem mér detta helst í hug hafa þegar fengið! svo ég sit bara á þessu þar til síðar en sjö staðreyndir um sjálfan mig:
  1. Ég er sérstakur áhugamaður um fjölskyldu mína.
  2. Ég er afi og elska það!
  3. Ég nýt þess að þenja gítar og/eða hlusta á tónlist. Sérstaklega lifandi tónlist.
  4. Leikhús og bíó eru æði.
  5. Matur. indverskur matur, ítalskur matur, kínverskur matur, pissan heima, maturinn hennar Siggu...
  6. Ég dýrka konuna mína.
  7. Það eru nokkrir hlutir sem ég reyni að gera:
  • passa fjölskylduna
  • mæta stundvíslega í vinnuna
  • gera ekki saklausum mein
  • tala hreint út
  • leika ekki við ljótu kallana (þessi fyrstu atriði eru fengin úr Edge of Darkness - frábær mynd)
  • ég er áhugamaður um skólamál

eru þetta sjö atriði eða tólf?

Þetta er aðlöguð mynd af Tyne fljóti - en mig langar að búa þar hjá.

23.12.09

Skrýtin aðventa

Heldur hefur mér fundist aðventan fljúga frá mér að þessu sinni. Við náðum laufabrauði hjá ömmunum en þar fyrir utan var það verkefni í aðferðafræði, rekstraráætlun, lokapróf, annarlok, jadí, jadí, jadí...

Nánar um það síðar. Eftir átakadag, mánudaginn 21. þá settist ég niður um kvöldið og sorteraði mín mál, skrifaði tvö bréf og komst að því að ég gæti að mestu farið í frí 22.

Sá dagur fór í tvo starfsmannafundi og Salómónsdóma og svo var það uppsetning á jólatrénu, hamfletting rjúpna og jólóstemming gerði vart við sig. Ásta Sigrún og Sigga voru í pökkun og svo komu Hildur Saga, Gulli og Sandra úr skötuveislu og loks Sara og þá var bara stemming.

Þetta er svona að koma...
En myndin segir margt og meira um það fljótlega!

24.10.09

Hann á afmæli í dag!

Við nutum þeirrar ánægju í dag að fara í afmælisveislu Rabba frænda/ættarmót Fálkagötu ættarinnar. Afkomendahópur Fálkagötu 14 og afa míns Magnúsar og ömmu minnar Ingibjargar er einhversstaðar á öðru hundraðinu og börn á leiðinni.
Rabbi frændi minn er Rafn Thorarensen, erkitöffari og æringi og einhver albesti frændi sem nokkur maður getur átt. Líf mitt hefði verið litlausara án hans. Hann segir stundum að það hafi verið það besta sem kom fyrir hann að hann var skilinn eftir í pössun hjá ömmu og afa tveggja ára en mér finnst gæfan ekki síður vera okkar.
Rabbi var sjötugur í dag. Hér er hann með Innu (Guðfinnu) konu sinni. Þetta eru sæmdarhjón og gjafmildi þeirra annáluð. Þegar þau eru sótt heim er vel veitt en það er ekki síður hlýjan og vináttan sem af þeim stafar.
Rabbi er einn þeirra sem hefur kennt mér muninn á að rífast af illindum og rífast af heilindum. Ég er ekki útlærður en á hverjum jólum hittumst við og tökum snúning á hverju sem er. Við erum ekki alltaf (kannski sjaldnast) sammála en það skiptir bara engu. Það er alltaf kátt á hjalla þar sem Rabbi er.

Hér er Rabbi með flugmódel á einhverju alþjóðamóti í slíku. Hann er forfallin flugáhugamaður og notar módelin sem farveg.
Rabbi og Inna komu til okkar þegar við bjuggum í Nottingham. Nottingham var ekki beinlínis í alfaraleið frá London en þau komu og það var eftirminnilegt fyrir blanka stúdenta að taka á móti þeim. Sigga nefnir ogt þegar Rabbi afhjúpaði stóran kassa af Black Magic konfekti. Honum hafði verið sagt að þetta væri gæða konfekt en beit í hvern bitann af öðrum án þess að finna það sem hann langaði í. Inna fékk mismuninn...

Fálkagata 14 var hús sem afi og amma keyptu þegar þau fluttu frá Selfossi til Reykjavíkur rétt fyrir stríð. Ég man eftir því og umhverfi þess sem stórfenglegu. Húsið var stórt, bíslagið stórt, lóðin stór og skúrinn (eða voru þeir tveir?) sem voru fullir af dótinu hans afa voru mér sannkallaður ævintýraheimur. Svo var þarna laut sem var frábær vettvangur leikja.
Myndir sýna lítið hús...
Rétt hjá var bakarí og þarna á horninu var kaupmaður. Í gráa húsinu hægra megin bjó Stefán Árnason, bróðir ömmu, sem gekk með staf og mér fannst einkar flottur karl. Húsið á Fálkagötu 14 er vinstra megin, með rauðum þakkanti.
Það eru til margar sögur af Fálkagötunni og mér var hún ævintýraheimur. Ég sá t.d. fyrir mér þegar Skúli frændi elti Rabba til að koma honum í sund og skildi sælu Rabba yfir að fá ís á eftir.
Það er ekki spurning að það að kynnast Fálkagötunni, ömmu minni og frændfólki hefur allt haft jákvæð áhrif á líf mitt og heimssýn en Rabbi frændi er stór hluti af því og mér þykir alveg sérlega vænt um hann.

12.10.09

Góður dagur

Lokadagurinn gekk vel. Við Gulli unnum hér heima og ég náði að klára að uppskrifa viðtalið við NN og byrja að greina það. Ég mátti ná í þá stuttu um hálftvö svo eg var mættur kl. 1322 og var vel fagnað á róló. Svo vel að tvær aðrar vildu fá að koma með okkur. Við vöppuðum heim og könnuðum m.a. hvort bílskúrar væru ekki örugglega læstir.
Eftir smásnarl hjá pabba var farið í bíltúr og klárað að fara í Dressmann fyrir ömmu - hana vantaði buxur - og svo var farið út að leika meðð Villemo og Silju nágrönnum Hildar Sögu. Svo var snuddast og hjalað og lesið og pakkað og loks snæddur alveg frábær matur sem Gulli eldaði.
Hann kann þetta hann Gulli og á ekki langt að sækja það.
Eftir matinn fékk afi að hátta Rósina og er bara að verða flinkur í því, ekki síst að trutta í tásur sem snarlega eru réttar upp með breiðu brosi svona ef afi gleymdi sér.
Svo stungum við okkur upp með pelann og eftir smá stund var sú litla steinsofnuð í afafangi. Háskólapróf í að svæfa var ekki til einskis.
Á morgun er svo heimferð og það verður þakklátur karl sem kannski þurrkar tár úr hvarmi sem snýr heim til Íslands af því hann heldur að Kalli og Sigga og Flensborg öll geti ekki án hans verið. En þetta bros verður greypt í huga hans og stjörnurnar sem glampa þegar afi fær knús eða truttar í tær. Og til að það gleymist örugglega ekki þá eru 71 mynd í símanum og næstum allar af lítilli Rós sem býr í Svíþjóð.
Takk fyrir mig Gulli, Sandra og Hildur Saga og takk Sæmi. Það eru forréttindi að umgangast menn eins og þig.
Í Eskilstuna er algjört ljós
Sem afakarli yljar alla daga
Hann rogginn er af sinni Rós
Rósin heitir Hildur Saga

9.10.09

Í embættiserindum!

Þeir eru fallegir haustlitirnir. Þessi er tekin í Eskilstuna þar sem ég er í embættiserindum sem afi!
Þar býr ein lítil fröken sem afa finnst gott að hitta.
Hún á óendanlega mikið af brosum og knúsum. Á leið minni hingað hitti ég félaga í Keflavík sem samsinntu því að þetta væri embættisferð.
Í gær sótti ég hana á leikskólann og við eyddum drjúgum tveimur tímum í að flandrast um róluvöll fyrir utan hjá henni. Það var vappað og spjallað, tekið í bílskúrshurðir og síminn minn var sérlega spennandi.

Meðal ævintýra var snúningur við köttinn Púka sem kom á móti okkur og þau stigu smá dans, eins og til að kanna hvort ekki væri í lagi með hvortannað.

Þessi síðasta er nú bara fyrir langömmu Sigrúnu og bara okkar á milli.

Svona rétt í blálokin. Í dag var ár liðið frá því að ég fékk að vita að ég væri með Parkinson. Eins og dagurinn í dag var þá var það afmæli auðgleymt. Hins vegar þakka ég þeim vinum og ástvinum, vinnufélögum og öðrum sem hafa myndað skjaldborg stuðnings og kærleika um mig. Sú ást og vinátta fer svo langt út fyrir allt það sem ég átti von á og taldi mig þó búa vel hvað vini og ættingja varðar. Kærar þakkir öll sem eitt en kannski efst og án þess að nokkur sé vanmetin koma kona mín og börn (tengdabörn þar talin) og litla rósin mín. Hvar væri ég án ykkar?
Takk. Svona vinátta og kærleikur gerir mann enn lífsþyrstari - og var nú nóg fyrir.

30.9.09

Andstæður

Íslensk náttúra er skoðunarefni. Andstæðurnar eru sérstæðar.

Þessi foss heitir Hengifoss og er við Lagarfljót (rennur í Lagarfljót). Þangað er nokkur ganga en vel þess virði. Hann er hvorki vatnsmikill né breiður en hann er hár. Og í gegnum árin hefur hann grafið sér leið niður bakkana. Myndina tók annað hvort okkar hjóna sumarið 2006 þegar við vitjuðum Kárahnjúka haustið sem byrjað var að fylla lónið. Þennan fallega dag fórum við vítt og breitt með fljótinu.

Þessi er aftur á móti vatnsmikill og öflugur. Hann heitir Aldeyjarfoss og er í stuðlabergsramma sem Skjálfandafljót fellur um. Jörðin titrar undir fótum manns. Fljótið rennur norður úr um Aðaldal og fellur í Skjállfanda. Það streymir frá landi eyðisanda til gróðursældar Aðaldals.


Þetta er Mýrdalsjökull, hvítur og fagur. Við horfum frá Núpabrekku að Höfðabrekkuheiði. Tindurinn er held ég Jökulshöfuð og öxlin hægra megin er Katla sjálf. Myndin er tekin sumarið 2009 á ægifögrum degri. Það sást endalaust í allar áttir.
Þarna undir jöklinum eru djúpir dalir og falleg gljúfur - og Þakgil.
Þetta er einnig Mýrdalsjökull, skriðjökull hans kenndur við Kötlu. Hann er svartur. Líklega er þar gömul aska í bland við sand sem þarna fýkur frjálslega. Þessi mynd er tekin sumarið 2009.
Sum kort kenna hann við Höfðabrekku en hann rennur frá Kötlu. Myndin er tekin við rætur Össuheiða og áin sem þarna fellur fram er Múlakvísl. Fjallið vinstra megin er líklega Hvolhöfuð.
Það er ekki skrýtið að fjallvegurinn austan Hofsjökuls sé kenndur við sand eða að menn hafi talið sig sprengja hestana að fara yfir. Hvar er gras að fá?
Nú er þarna góður vegur og mörg uppisitöðulón. Myndin var tekin 2006 á leið í Nýjadal með góðum vinum.
Rétt um það leiti sem komið er í Nýjadal birtist Eyrarrósarbreiða. Litirnir gleðja og bíla stoppa og men kíkja í kaffibrúsa og kexpakka. þetta eru falleg blóm. Aðra svona breiðu sáum við víða en m.a. í Laugarbólsdal en þar er þó gróður. Rósin breiðir úr sér um eyrarnar og aurana þar en nærri Nýjadal er hún við lítinn læk. Myndin tekin 2006.

Landmannalaugar eru enn einn staður andstæðna. Þetta eru fjöllin norðan við Jökulgil, gegnt Laugunum. Hæsti tindur heitir Barmus. Myndin er tekin annað hvort 2006 þegar við hjónin fórum eða 2007 þegar við fórum með tengdó.
Þetta er beint á móti og má sjá hraunkantinn sem skýlir svæðinu sem hitar vatnið í Laugunum.
Fjallið er Bláhnjúkar.

5.9.09

Best að byrja...

Síðasta blog var 23. júlí (svona alvörublog) svo það er af mörgu að taka. Ég ætla að reyna að rifja eitt og annað upp næstu daga og ná þannig í skottið á sjálfum mér!
Byrjum fimmtudaginn fyrir Verslunarmannahelgi en þá var lagt í ferð austur í Hrífunes í góðu kompaníi Ingu og Einars, Sigrúnar Ellu, Þórhildar, Magnúsar Inga, Siggu og litlu Ingibjargar og Guðmundar og Elísabetar, Helgu og Guðna. Við komumst klakklaust austur og komum okkur fyrir í Pottinum.


Ég ætla ekkert að hafa mörg orð um pottinn en hann er draumastaður fyrir útihátíðina okkar. Þarna eru spilað golf, kubb, knattspyrna og þess vegna yfir! Enda er þessi hópur ótrúlegur. Við bættust Ásta Sigrún, Kalli og Diddi, auk Hönnum með Martein og Jón, og gleymum ekki Ellu og Garðari
Þarna er lifað og leikið og sungið og slakað á og ferðast.
Þvílíkur staður!

Á leiðinni austur var mikið sjónarspil í skýjunum og manni leið eins og í leikmynd úr Hringadróttinssögu. Ævintýralandið í áttina að hálendinu var ótrúlega fallegt í ljósaskiptunum.
Á myndinni er horft frá þjóðvegi 1, rétt austan Víkur, á Mýrdalssandi og horft til norðvesturs. Ég held að það sé Öldufell sem glittir í þarna fyrir miðju. Darraðadans sólar og skugga var ótrúlegur og þó myndin sé falleg (Sigga tók hana) þá var þetta stórbrotnara í raun.



Á fallegum degi má horfa frá Hrífunesi, yfir sandana, eins og augað eygir og þá blasir sá stóri við, stærsti þjóðgarður í heimi! Vatnajökull, tígullegur í fjarska og afar fallegur.
Þá er þarna snotur lækur, lágvaxinn skógur og ótrúlega fallegt gil, fullt af steingerðum tröllum og kynjamyndum




Og við fórum til hans, - jökulsins og minntumst fjallsins og Múhameðs.
Á föstudeginum var farið í fallegu veðri með þeim sem fyrstir komu, austur á Breiðamerkursand að sýns Siggu G. lónið. það skartaði sínu fegursta, var fullt af ís og það andaði köldu frá þeim gamla í norðangolu. En lónið var eins og spegill, þar syntu selir, sigldu bátar sem einnig eru bílar og þar heyrði maður öll heimsins tungumál. Krían stakk sér eftir síli og jökullinn speglaði sig í lóninu,- þar sem sást í vatn! svona rétt eins og hann væri að laga einhverjar óþægilegar fellingar í skyrtunni sinni eða laga bindið.


Þegar full mæting var komin á laugardeginum var steðjað í Lakagíga sem var sérlega fróðleg ferð. Ég t.d. lærði að Laki er ekki einn gíganna heldur fjall sem gígarnir eru kenndir við!. Sagnfræðingurinn...
Ég set einungis þrjár myndir. Ein sýnir hópinn við einn gíginn, mosagróinn. Það kom mér einmitt á óvart hve gróið landið er þar sem farið er upp með Fjaðrárgljúfrum og upp til fjalla.


Önnur sýnir auðnina á gígasvæðinu. Þar heldur sandurinn gróðrinum í skefjum. Sú þriðja er tekin á leiðinni frá Blágili og upp í Lakagíga (vestari leiðin) og sýnir eina af þessum fallegu vinjum hálendinins. Þarna var sett vatn flöskur og var bragðgott svo ekki sé meira sagt.




Sunnudagskvöldið var Brekkusöngur, bálköstur og flugeldasýning (get svo Guðsvarið það). Fallegt kvöld, fallegt fólk og allt frábært.
Ferðin heim gekk vel, tregi í hjarta en þakklæti fyrir að eiga svona staði og svona vini.