Sýnir færslur með efnisorðinu Sportið. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Sportið. Sýna allar færslur

2.5.12

Handbolti - Æ lov itt

Ég hef alltaf haldið upp á handbolta. hann er æði!
Það er stemmingin og stuðið. Vitaskuld verða sumir orðljótir og nánast allir telja dómarana gjörsamlega skilningslausa á handknattleik. Gildir þar einu hvort maður er á áhorfendabekkjunum eða vellinum.







Leikmenn leggja hart að sér og uppskera misjafnlega aðdáum áhorfenda. En baráttan er númer eitt til hundrað og ef áhorfendur skynja það að svo sé ekki þá er baulað á bekkjunum... Sérstaklega ef þeir eru grunaðir um leikaraskap.











Svo fagna menn sigri eða fara sárir af velli. Og svoleiðis er það.











Svo eiga allir sér sína uppáhaldsleikmenn og horfa á þá, jafnvel meira en aðra!

Svo er það baráttuherinn en þetta er hann Steini (bolur númer 11) sem stýrir hvatningarhrópum FH-inga af röggsemi og hefur raðað í kringum sig efnilegum her - þetta er hinn nýji FH-her - her framtíðarinnar.
Sannkallaðir baráttujaxlar!












Hér að neðan eru nokkur (síma)vídeó sem sýna í hnotskurn stemminguna í Krikanum - FH megin! Það sést raunar að sumir hafa áhuga á öðru og auk þess að það heyrist vel í FH hernum!








21.1.12

Spörning um viðhorf

Íslenska landsliðið var ekki í góðu formi í gær og spurning hvernig þeim farnast nú þegar þeir fara áfram í milliriðil gegn Ungverjum, Spánverjum og Frökkum. Kannski hefði verið eins gott að þessi hópur færi heim um helgina fremur en eiga hugsanlega tvo eða þrjá rasskelli eftir. Fyrir mann eins og mig sem alltaf er pollrólegur á hliðarlínunni (engar athugasemdir við þetta takk) þá finnst mér þjálfarar stundum læsast inni með leikmenn í svona leik. Ekkert gengur, mistök á mistök ofan. Hví ekki að leyfa Ólunum, Oddi og fleirum að koma inn á og spreyta sig? Á tímabili gat þetta ekki versnað. Kári stóð sig ekki lakar en Róbert o.s.frv.
Norskur þulur sagði dönskum dómurum að fara til h****** og allt varð vitlaust. Eins og það sé eitthvað nýtt að slíkt gerist - að Nojari segi Dana að fara norður og niður. En kannski ekki í beinni. Hann var lítt skárri íslenski þulurinn á Rás 2 í leik Slóvena og okkar manna. Hann talaði um Íslendinga eins og hann væri sjálfur ekki af þeirri sortinni, vildi að markmenn söfnuðu markvörslum en ekki að þeir verðu skot eða markið, og bullaði út og suður af miklum tilfinningahita, réðst gegn einstaklingum í liðinu með hæðni og sleggjudómum og er þá fátt nefnt.
Sá norski baðst afsökunar. Bara svona nefni það...

3.10.11

Flensborgarhlaup

Gamall draumur rættist á laugardag þegar fyrsta Flensborgarhlaupið var ræst. Ég er búinn að ganga með þetta í maganum frá því ég hljóp áheitahlaup í Newcastle líkl. 2006. En það vantaði stemminguna. Forsendur breyttust með heilsueflandi skóla verkefninu og þegar þessu var varpað fram á liðnu  vori var ég staðráðinn í að leggja mitt af mörkum.
Og það tókst!
Sjá hér!
Og hér!
Og hér!
Og hér
Og hér!
Takk allir sem lögðu okkur lið í stóru sem smáu!

Hér er smá myndafrétt af deginum
Takk!
Fyrsti vinningur var forláta hjól frá Hjólaspretti en að auki var fjöldi annarra vinninga sem eftirfarandi gáfu: Bingó, Eggert Kristjánsson og co, Fríða skart, Heilsuver, HRESS, Icelandair, Kjötkompaní, Músík og sport, O Johnsen og Kaaber, Pipar og salt, Rafmiðlun, Rekstrarvörur, Rio Tinto alcan, Sigga og Tímó, Sportís, Súfistinn, Smart motion. Kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.

Líkamsræktarstöðin HRESS sá um upphitun fyrir hlaupið. Að auki þökkum við fjölda fólks sem kom að þessu verkefni, starfsmönnum skólans, mökum þeirra, öflugum kunnáttumönnum og hjálparfólki úr Skokkhópi Hauka og Hlaupahópi FH, Sendibílastöðinni, Atlantsolíu, Hafnarfjarðarbæ (sem bauð í sund), lögreglunni, hlaup.com, Hafsteini og Kristni fyrir tækniaðstoð og fleirum og fleirum sem sjálfsagt gleymist að nefna.



7.9.11

Svakalega öflugir

FH var að koma frá Ísrael þar sem þeir léku í Evrópuforkeppni um sæti í Meistaradeildinni annars vegar og Evrópubikar hins vegar.
Mér er spurn hvort menn hafi áttað sig á styrk þessa liðs?
Þeir léku við norska liðið Haslum HK sem hefur ítrekað spilað í Evrópukeppni og er titlað atvinnumannalið á vef sínum sem og Maccabi Srugo Rishon Lezion sem skv. vef ehf hefur spilað á ymsum stigum Evrópukeppni á hverju ári síðustu ár.
Og lið FH?
Af fjórtán leikmönnum eru fjórir aðkomumenn, þar af tveir sem hafa verið í Krikanum um nokkurt skeið.
Sá fimmti aðkomni telst uppalinn FH-ingur þó hann hafi verið hjá Fram um hríð.
Það eru tíu uppaldir leikmenn  í þessu liði FH. Andri er er aldursforseti þeirra, svo kemur Ari en allir hinna eru fæddir 1989 eða síðar. Danni og Óli 1989, Sigurðarnir tveir, Kalli og Dóri 1990, Ísak og Magnús 1992.
Að auki eru Örn Ingi og Raggi fæddir 1990. Sem sé 10 af 14 eru rétt liðlega tvítugir eða yngri.
Þeir eru ríkir FH-ngar því svo er nóg af fólki á leiðinni.
Vel gert!

21.8.11

Eintóm ánægja og smá verkir

Í fyrsta lagi. Takk allir sem studdu okkur hjónin og þar með Parkinsonsamtökin í Reykjavíkurmaraþoni 2011. Takk Íslandsbanki fyrir það að hvetja fólk til áheitasöfnunar og að standa svona vel að þessu verkefni. Það er mjög ánægjulegt að fá að vera með í þessu hlaupi, vitandi að maður fær að hafa jákvæð áhrif á góð málefni og skiptir máli.






Og ekki spillti veðrið fyrir. Þessi mynd var tekin við Tjörnina um kl. 9 um morguninn.
og þessi líka. Þær eru báðar teknar á símann minn svo gæðin eru ekki til að hrópa húrra yfir.
 Þarna er hópurinn fyrir framan mig...
 og þessi voru fyrir aftan mig!
 Hér erum við komin út á Fríkirkjuveg. Röðin er komin upp Skothúsveg. Þetta eru um 4000 manns!
 Og hér er ég að horfa upp Skothúsveginn.
 Hérna er ég kominn út á Norðurströnd og var búinn að týna frúnni en hafið þið séð bugtina svona?
Þessir þrír voru hluti af amerísku Boot camp gengi og skemmtu sér stórvel með allskonar æfingum á leiðinni.

 
 Þetta er önnur af bugtinni.










Hér er makríll að skemmta sér í yfirborðinu.

Fáninn á Iðnó hékk en blakti aðeins þegar ég tók myndina. Þarna fann ég frúnna og fleiri til en það eru vitni að því að ég valhoppaði síðustu metrana!
Ég síðan tek ofan fyrir þeim foreldrum, sem hlupu um  morguninn, en fóru samt með krakkana sína í Latabæjarhlaup síðdegis. Á næstu mynd er hópurinn að safnast saman í Sóleyjargötu, - eða hluti hans.
Í öllu falli var dagurinn frábær og ég efa ekki að menningarnótt var frábær þar á eftir þar, til fylleríið á landanum hófst. Þá var ég feginn að vera heima. En enn og aftur kærar þakkir!

31.1.10

Algjört æði!

Glæsi-legt hjá íslenska landsliðinu!
Flottir menn og mikill stuðningur!
Bara svona til gamans þá er hér ljósmynd tekin, líklega í janúar 2002, sem sýnir Einar Andra, núverandi þjálfara mfl. FH ka., að segja drengjum til í leik á Seltjarnarnesi. Mig minnir við Gróttu...


Ólafur A. Guðmundsson er lengst til vinstri en Aron Pálmarsson er nr. 69 aftan við bekkinn til hægri. Skyldu draumarnir hafa verið farnir að hrærast í brjóstum þeirra þarna? Allir þeir sem þekkjast á myndinni eru enn að. Við hlið Óla eru Benni og Siggi Ágústar og aftan við eru Kalli og Dóri. Í rauðri treyju er markmaðurinn Siggi Örn en hann spilar með Fram. Aron er með Kiel en hinir með FH.


Gott uppeldi þar.

25.10.09

Hvers vegna finnst mér gott að fara út á Hvaleyri í golf?

Hér kemur eitt tilefni! Þessar myndir eru teknar sunnudaginn 25. ágúst 2009.

3.10.09

Er að batna?

Í morgun var fallegur dagur, bjartur en kaldur. Undarlega kaldur. Veðrið að undanförnu hefur verið rosalegt. Rok, rigning og tóm leiðindi. Ég fór því lítið á golfvöllinnn og fann illa fyrir því í dag þegar ég lagði af stað á litla völlinn. Ég náði mér á strik og í fyrsta sinn lengi lækkaði forgjöfin (úr 26,5 í 26). Vonandi gefur á morgun og þá ætla ég að fara áður en við förum til Helgu Drafnar afmælisbarns í grjónagraut...
Ég er númer 878 í Keili en um 8500 á landsvísu. Hversu margir ætli séu í Keili? 880? 8800? Skiptir máli!

15.6.09

Hingað og þangað

Þetta eru búnir að vera harla ruglingslegir dagar. Ég er að undirbúa mig undir að taka við stjórn þessa gamla skóla, Flensborgarskólans. Ég viðurkenni að ég er svolítið stressaður, mjög spenntur og satt að segja verulega lotlegur undir byrði sögu þessa merka skóla og þeirra sem hann hafa leitt. Ég finn afar sterkt fyrir þeirri hugsun sem Þórarinn Böðvarsson lagði upp með og setti í hendur syni sínum Jóni, að byggja upp skóla sem þjónaði öllum og kannski ekki síst þeim sem áttu síst kost á öðru.
Saga skólans er stórmerkileg og Jón Torfi Jónasson hefur sagt að tímabilið í kringum aldamótin 1900 hafi verið réttnefnt Flensborgartíminn í sögu landsins. Svo sterk var forysta Jóns.
Við þennan skóla einan hér á landi var Kjarval við nám ásamt aragrúa fólks sem bæði er þjóðþekkt, jafnvel heimsþekkt, sem og þeirra sem fóru í gegn án þess að skrifa nafn sitt í aðrar bækur en sinna nánustu. Þarna lærði Sigurður Þórðarson frá Laugabóli, sá góði og yndislegi maður. Það var göfgandi að kynnast honum og henni Ástu!
Skólinn var í forystu með þeim sem þróuðu áfangakerfið og hann var í hópi þeirra sem mótuðu námskrá fyrir framhaldsskóla 1981-86. Og nú held ég að við séum aftur að skora hátt. Við sjáum allskonar riddara berja brjóst sitt með hlutum sem við kenndum þeim. Þannig voru vinir mínir í IH á Flatahrauni að segja frá því í Skólavörðunni hvernig þeir virkja nemendur í sjálfsmati með aðferð sem við höfum beitt í fjölda ára undir nafninu Hlýtt á nemendur. Njóti þeir vel!
Ég held við séum að vinna í anda þess að bjóða breiðum hópi nemenda góðan undirbúning undir líf, nám og störf. Ég held við séum að leita leiða til að byggja upp stoðkerfi sem aðrir mættu skoða og taka sér til fyrirmyndar. Og ég held að samtöl við foreldra og nemendur sýni mér að við séum alla vega á réttri leið. Hvert sem hún nú liggur!
Og ég held að forysta skólameistara skipti máli ásamt samhentum hópi fagmanna sem vilja leysa þau verkefni sem fyrir þeim liggja með hagsmuni nemenda að leiðarljósi. Þannig að það er ekki skrýtið að ég fyllist ákveðinni lotningu að horfa á þessa miklu sögu sem og þennan sterka og öfluga hóp sem ég á að leiða.
Annað sem segir mér að við séum á réttri leið er aðsóknin núna í vor. Það er ljóst að við fyllum skólann af þeim sem völdu okkur sem fyrsta val, koma úr 10. bekk og/eða eru undir 18 ára aldri. Við þurfum að vísa stórum hópi frá og erum að fá til okkar mikið safn af viljugu fólki sem vonandi stendur sig vel.
Flensborgarskólinn er skólinn. Við viljum sinna nemendum okkar og treystum því að þau fari ánægð frá okkur,- og að báðir verði reynslunni ríkari.
Og hvernig undirbýr maður sig?
Golf snemma morguns, átök niðri í Sjúkraþjálfara þar sem hún Hulda leggur sitt af mörkum til að gera dagana betri og svo hlaup. Hvernig sem viðrar (eins og sjá má á meðfylgjandi mynd).
Hvað annað sem verður sagt - þá er maður alla vega vatnsekta!

13.4.09

Fósturjörðin tekin í frjálsu falli

Sigga mín kann að setja inn myndir en ekki hann ég. Það er eins gott því þá myndi verða sett fram krafa um að sýna kíkinn minn nýja.
Í albúmi á Melhaga 8 er til mynd af mér ca. 12 ára með feykna glæsilegt glóðarauga og undir stendur að ég sé með kíki. Ég náði mér í annan kíki í gær - þann fyrsta í 40 ár.
Þannig var að ég var að hlaupa á páskadag, rétt lagður af stað, búinn að hlaupa út í gegnum Krikann, út á Keflavíkurveg og yfir og svo út á stíginn við Álfaskeið. Þokkalegur skriður á karlinun, undan brekku og kominn niður fyrir undirgöngin við Risann. Þá lá á vegi mínum plastbandshringur, svona flatt, hvítt band og ég þurfti vitaskuld að reka tánna í hringinn, sem sporðreistist. Vinstri tá á bandi, hringur upp, hægri fótur krækir í hring og viti menn hlaupakóngurinn hraðskreiði breyttist í fljúgandi furðuhlut, tókst á loft, lagðist láréttur og lenti með höfuðið á undan á Íslandi, farsælda Fróni. Sem betur fer fór ég á fluginu út af gangstígnum svo ég rann eftir mel/grastói samsíða stígnum. Sjálfsagt rak ég upp gól, eitthvert bland af neyðarópi og karlmennskulegu stuðhrópi, en lokaði munninum áður en hann fylltist af fósturjörðinni. Ég lenti á gleraugunum vinstra meginn, setti fyrir mig hægri hönd og fannst ég lenda fagmannlega á maganum. Ég reikna reyndar með að ef einhver áhorfandi hafi verið þá hafi viðkomandi séð hlussu hlunkast á nefið.
Það varð ekki stórslys. Gleraugun skáru kinnina og í morgun, annan í páskum, sá ég varla fram fyrir mig fyrir bólgunni sem myndar kíkinn. Lófinn rispaður og sálin kramin.
Það er þó þakkarvert að konan mín, heittelskuð, en við fögnum 31 árs brúðkaupsafmæli 15. apríl næstkomandi, hné niður af hlátri,- þegar hún, að sögn, var búin að ganga úr skugga um að ég væri ekki stórslasaður. Bara smá.
En ég fór 7 km í dag - og datt ekkert! Var almættinu illa við að ég hlypi á Páskadag? Setur það mig láréttan á upprisuhátiðinni?
Bara segi svona...

24.2.09

Ég var að hugsa...

Ég var að hugsa um nemendur skólans míns og hvernig við lítum á þá. Þetta eru liðlega 750 krakkar, öflugir og flottir upp til hópa, samviskusöm með skólasókn og skil og allt það.
Þau eru mörg hins vegar svolítið hirðulaus um dótið sitt, mötuneytið og fleira slíkt en örfá eru óttalegir dónar hvort sem er í umgengni eða hirðusemi.
Svona orð nemendur, - nemendur grunnskóla, nemendur í Setbergsskóla, nemendur í framhaldsskóla, háskóla, ensku í Hafnarfirði. Hvað merkir þetta og hvað eiga þeir sameiginlegt sem gerir okkur mögulegt að stimpla þá sem heild?
Sama gildir s.s. um Reykvíkinga, Hafnfirðinga, múslima, hindúa, FH-inga, Valsara.
Samt eru þess hugtök okkur harla frjáls á tungu og við tilbúin að stimpla þessa KR inga sem óttalegt lið. Ég man að verstu hrekkjusvínin á Melunum í den voru KR ingar. Vitaskuld.
Víkingar réðu Fossvoginum og voru væntanlega hrekkjusvínin þar, Framarar í Hlíðunum og Þróttarar í Vogunum. Þannig að ef maður hafði vit og þroska til að vera ekki KRingur þá var maður fórnarlamb í Vesturbænum. Sama gilti væntanlega í öðrum hverfum á annan hátt. Sú saga gengur fjöllum hærra hér í Hafnarfirði um Vesturbæinga hér að þeir hafi verið flugsynd kvikindi sem gerðu ítrekaðar tilraunir til að drekkja aðkomufólki, s.s. ofan af Hrauni, Holti eða maður tali ekki um Garðbæinga.
Stimplar eru mjög erfiðir og einhæfir. Maður þarf að passa sig verulega þó þeir séu þægilegir. Vitaskuld er voðalega gott á stóru sundmóti að flokka menn eftir félögum og búningum.
Kannski væri það ráð á þingi? Að setja menn í júniform. Myndi það efla samstöðuna eða er það óþarfi?
Mér dettur raunar í hug þegar ég er á leik í Krikanum og horfi á t.d. FH inga í hvítu búningunum að heimskúltúristinn Billy Connolly sagði að maður ætti aldrei að vera í einkennisbúningi því sá sem væri í búningi hefði alltaf tilhneigingu til að kúga þá sem ekki væru í búningi. Athyglisvert.
En svona er það líklega.

23.2.09

Lífshlaup og langtíburtistan

Á morgun, þriðjudag, lýkur Lífshlaupinu. Ekki fyrir alla og vonandi ekki mínu en þessari árlegu keppni ÍSÍ, sem kemur hreyfingu og stemmingu á kennarstofur og vinnustaði. Sem stendur er Flensborg búin að vera í einu af fjórum efstu sætunum og er þegar þetta er ritað í þriðja sæti. Það er kappsmál að vera fyrir ofan Menntamálaráðuneytið og vonandi fór bollukaffið vel í þau i dag - svo vel að þau eru ekki með stress á morgun... sjálfan sprengidag!
Hitt er svo annað að ég var að tala við morgunfagra fröken hinu megin á hnettinum. Það merkilega er að netsambandið er betra við hana þangað en það var til Edinborgar. Hvernig sem það má vera. Hún er langt í burtu en mikið á hún gott að upplifa þessa ferð.