Sýnir færslur með efnisorðinu tónlist. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu tónlist. Sýna allar færslur

16.4.12

These old geezers

It has been quite intresting to watch how some old guys and gals have been ploving through old music material as of late.
I have not covered this fully but allow my self to point out that this is a very old tradition. I mean the Ratpack material is essentially of this kind.
To kick of one "old" guy is Robbie Williams who dished out Swing while you are winning with lovely songs like Something stupid, Mack the knife, Did you evah and more and more. Great collection, truly good athmosphere.
Another was Bryan Ferry who put out As time goes by with songs likek - as time goes by and the way you look tonight and more. Quite reasonable and romantic in its longful way. Classy.
Then Rod Stewart made several called from the great american songbook, actually five in all I think and mother in law loves them!
Another mention goes to Eric Clapton who issued a CD of covers in 2010 aptly named Clapton.
Some cool lovely covers, my favourite being Rocking Chair even if he appears a bit bored on this video.
Another favourite is Autumn leaves nicely done but I prefer something like this or this or even this.
We can cite many more, Bette Midler and so on and so forth.
Then comes good old McCartney, brings along the wife of an old friend (Diana Crall) but her hubby and old sir Paul did a few albums together donkeys years ago. Kisses on the bottom is a rather surprising name but the collection is surprising and the athmosphere cool, warm, romantic and really comfy. Krall and her band are obviously really good for this project. I´m going to sit right down and My very good friend the milkman sound as if they were done live and relaxed.
All the above are great but Krall and Paul.
One level above.

14.3.12

Slade? Hvað var nú það?


Manst þú eftir Slade?
Slade var líklega eitthvert undarlegasta fyrirbæri pönksins sem varð að glitterrock bandi allra tíma. Hvað skildu þeir eftir sig?
T.d. þetta. Heyrist á hverju ári!
Slade komu fram í byrjun áttunda áratugarins með arfaeinfaldar melódíur en stuð dauðans. Háhælaðir skór, furðulegir hattar og stuð. Hvað var til betra! Ég man eftir sjónvarpsþáttum af tónleikum þeirra og ég græt enn í dag að hafa ekki farið þegar þeir komu til landsins til að syngja með þessu eða þessu eða þessu.
Smá bjór og góður stemmingshópur gerir þetta (sýnir að ellismelliir deyja aldrei) dásamlegt en þá eru Genesis eða Pink Floyd heldur ekki í sjónmáli. Þetta er allt eins en svo mikill hljómur. Ímyndaðu þér Slade í Eldborg -  ekki stóll eftir í salnum. Það situr enginn kyrr!
In for a penny er alveg eins og How does it feel... Það er ekkert original nema humorinn – Lock up your daughters – eða þetta og allir með því allir kunnu lögin eða lærðu þau á tveimur sekúndum. Rock með skosku Cailidh ívafi. Settu þetta hátt í alvöru tæki.(Dæmi um Cailidh frá Galashiels hér)
Og ef jólalagið góða hér fyrst í pistlinum dugir ekki til að halda þeim á stefgjöldum þá er klassi eins og þessi sem aldrei deyr!
Hver man Slade? Hver gleymir þeim?
 

6.3.12

A thought about Paul

From time to time I get really bored going through my collection of Paul McCartney´s records. But that is just when I grab the wrong albums.
When I grab the right ones I am in musical heaven.
Which ones?
To start with there is Ram. This album, his second I believe after the big B, has the happy mood of Abbey road, Medleys, rythm changes and recording techniques and innovations that tell me who was the experimental Beatle. Its not just Uncle Albert/Admiral Halsey. Listen to My Dog with your headphones on or Dear boy. Its a combination of wonderful ballads like Back seat of my car  and bluesy rythmic songs like Smiles away, Eat at home and statements like Too many people.
Ram is underrated and most  entertaining. A great album.
Band on the run is another terrific album. Its truly great and the thing about it and RAM is that he and the musicians took a long time recording, editing and working on the sound. The songs are quite complicated. Listen to Band on the run and the rythm changes. Or the in and outs of other songs dropping in on Picassos last words. Bluebird is one of Pauls absolute masterpieces and again there is this mood about the album that suggests people had fun being together and making music.
Again a complex recording and I am not sure everyone appreciates the work behind it.
Another underrated album is Give my regards to Broadstreet. Sure, the attached movie didn‘t deserve Oscars for acting but he gets together a lot of great musicians to make wonderful music. There is Gilmour and Paice and Rngo and on the list goes. And listen to his new version of Long and winding road. The voices after the solo. Man I still  get goosebumps and I know it by heart.
There is Tug of war, Flowers in the dirt, Off the ground, Flaming pie and Unplugged. All great albums. Then there is Chaos and creation.
Lets see. He started recording with The Beatles around 1960. Seriously I mean. His first solo album appeared in 1970. 35 years later and 45 years after recording his first songs with the Beatles he issues Chaos and creation! And its champion. Most of his contemporaries were issuing remakes and outtakes and he puts out a CD that as such would uphold many a name even if it was the only one.
And lets remember that he plays almost every instrument on Chaos, on McCartney, several on Band on the run and Ram and so on.
Then he has the nose for pseudonyms. Look up Percy Thrillington and The fireman and Twin freaks.
Quite a cat.
Classic lad McCartney, even if he supports Liverpool (and Everton).

11.2.12

Skyldleikar

Þá sjaldan að ég gef mér tíma til að setja Standup á fóninn (Jethro Tull 1969) þá kemur alltaf upp í hugann það sama þegar lag númer 3 á seinni hlið hljómar um húsið.
We used to know.
Veit ekki hvort þú heyrir það?

Hér er tónleikaútgáfa frá 1970 (og annað lag með).

Og ég bara verð að ná í Don Henley og Ernina og hlusta á þetta.

Heyrirðu núna?

Anderson hefur alla tíð sagt að ef Henley hafi bruggað Hotellagið upp úr We used to know þá sé hann stoltur af að vera sá sem hafði áhrif á það að svona glæsilegt lag hafi orðið til.

En hver voru tengslin?
Eagles voru að byrja ferilinn og áttu að hita upp fyrir Tull í USA 1970/1971. Eagles áttu smell með Take it easy rétt um það sem túrinn hófst og því voru þetta meira tvær stjörnusveitir saman. Anderson segir að Tull hafi fundist Eagles hallærislegir country gæjar en Eagles hafi litist iilla á þessa bresku furðufugla og því hafi samgangur verið lítill. En We used to know var hluti af sviðsprógrammi Tull þarna.

Þetta er gaman að skoða - nógu gaman til að menn hafi sett upp Oops - oh no they didn't og That song sounds like og Sounds just like og Songs that sound like the same!

Bara gaman!

17.1.12

The Moody Blues - sýrupopp eða sinfóníurokk?

Það er afskaplega gaman að plægja gegnum gamla vinyla og rifja upp plötur. Ég sat yfir safninu mínu um daginnn og tók bara úr geymslu það sem mér fannst mest um vert. Suma plötuna horfði ég á og reyndi að muna af hverju sú hefði verið keypt!
Þegar Seventh sojourn lá í hendi mér var ekki vafi og hún hefur fengið upprifjun, spegilhrein og rispulaus. Eins og  hún var spiluð.

Moody blues voru afar sérstæð hljómsveit. Í henni voru drengir með einbeittann vilja til að komast áfram og þeir eru víst enn að, sumir alla vega. Ræturnar eru í Birmingham þar sem þeir Ray Thomas, John Lodge og Mike Pinder komu saman.Lodge fór annað um tíma en hinir tveir tíndu saman músíkanta til að vinna með. Meðal fyrstu gítarleikara sveitarinnar var Denny Laine sem seinna var einn aðalburðarásinn í Wings. Hann átti verulegan hlut í fyrsta smellinum - Go now - sem Laine átti til að taka með Wings. Þetta lag mun reyndar eina lagið sem þeir hafa komið í fyrsta sæti í Bretlandi.
Seinna tók við þurrkatími en þetta voru árin 1964-7. Þeir þóttu ófrumlegir, sungu blúsa og Merseybí og þegar hallaði á 1966 var sveitin nánast að liðast upp. Denny Laine hvarf á braut og allt virtist búið.
Þá fengu þeir Lodge aftur í hópinn og gítarleikarann Justin Hayward, manninn með mjúku röddina. Eftir nokkurn barning ákváðu þeir að snúa blaðinu við og einbeita sér að frumsömdu efni. Á þessum tíma var sýrurokk vinsælt en þeir tóku það skrefnu lengra og lögðu grunn að ópusasveitum eins og Genesis og fleiri.

Til að bjarga þeim ákvað Decca útgáfan að nota þá til a bjarga nýu merki sem hét Deram og áttu þeir að gera útgáfu af Nýja heims sinfóníu Dvorsaks. Þeir gáfust upp á því en létu stjórnendur Deram fá í staðinn efni í plötu sem  átti aið heita Days of future past. Hún var svokölluð Concept plata og þeir sáu hana sem eitt tónverk. Þeir nýttu nýtt hljóðfæri, Mellotron auk gamalla sem voru handleikin af London Festival Orchestra. Þó platan sé eitt tónverk voru tvö lög tekin á smáskífur. Annað þeirra fylgir þeim að eilífu amen en það er Nights in white satin. og hér og hér.
Nú var björninn unninn og frá þeim streymdi hver platan af annarri (In the search of the lost chord 1968; On the threshold of a dream 1969; To our children's children´s children 1969; A question of balance 1970; Every good boy deserves a favour 1971 og loks meistarastykkið meðal frekar keimlíkra platna, Seventh sojourn.
Einkenni sveitarinnar var draumkennt rokk, yfirhlaðið af hljóðfærum (sagt var að þeir hefðu notað 33 gerðir hljóðfæra á seventh...) og draumkenndum textum sem voru svakalega flottir en, eins og segir einhversstaðar, meikuðu ekki sens.

Eftir gríðarlega frjósamt tímabil og miklar tónleikaferðir var gert hlé á framleiðslunni 1974 til 1978.
Þeir komu aftur saman og hafa haldið uppi fornri frægð með flottri spilamennsku, gefið út söku plötu þó Hayward hafi skorað hæst á plötu Jeff Wayne memð laginu Forever autumn.
Svo hafa þeir tínst burtu einn og einn en Hayward er sá sem heldur fánanum á lofti ásamt Lodge og Edge og þeir voru að spila bara í fyrra, 2011. Með tilkomu Norda Mullen á flautu og bakrödd Julie Ragins, aukatrommara o.s.frv. þá tekst þeim að fá góða dóma, áhorfendur og mikla stemmingu þó hallirnar séu minni og  meira fyrir hlutunum haft.
Elstu lögin eru farin að nálgast fimmtugt og hvers vegna eru þau þá kölluð dægurflugur?
Gleymum því ekki að sum lög Mozart. Lizt og Strauss voru kölluð dægurflugur og lifa enn. Sem sé meðan fólkið vill hlusta þá eru þeir til í að spila!

15.1.12

Hver er hann þessi Jethro Tull?

Jethro Tull var breskur landbúnaðarfrömuður á átjándu öld. punktur.

Á tuttugustu öld tók bresk blússveit upp þetta nafn, að sögn eftir að hafa spilað undir mörgum nöfnum, en bara einu sinni undir hverju um sig. Þegar þeir höfðu spilað undir þessu nafni eitt kvöld og voru beðnir að koma aftur varð það úr að þeir notuðu það aftur.
Fyrstu plötuna gáfu þeir út 1968 og fljótlega eftir það tók söngvari sveitarinnar öll völd. Aðalsprautan, Mick Abrahams hætti og stofnaði Blodwyn pig, sem enginn hefur heyrt um. Ian Anderson réði Martin Barre á gítar í staðinn og hefur starfað síðan undir merkjum Jethro Tull sem allir rokkunnendur kannast við.
Fyrsta platan hét This was, svo kom Standup og loks Benefit 1970. Þessar eru blúsaðar þó Benefit vísi á þyngra rokk sem nú var framundan. Næst koma þrjár concept plötur. Fyrsta er Aqualung sem Anderson kallar lagasafn og hefur oft látið í veðri vaka að hann hafi lítið dálæti á. Samt eru fleiri ög af þessari i venjulegu tónleikaprógrammi Tull en af nokkurri annarri plötu. Lög eins og Aqualung, Cross eyed Mary, Locomotive breath eru föst en að auki hafa Wind up, Hymn 43 og Mother Goose oft verið með. Næst kom Thick as a brick sem er tvö samfelld tónverk - hlið a og hlið b á vinylnum og síðan A passion play sem sama gildir um. Þarna fór Anderson nýjar brautir en erfiðleikarnir við að flytja verkin gerði að verkum að það var almennt ekki gert nema í túrunum sem voru farnir beint í kjölfarið. Thick as a brick og Aqualung standa upp úr af þessum verkum og næstu plötur voru mistækar, - góðar og nú var beygt úr hörðu rokki í meiri þjóðlagastefnu. War child (frekar hörð) var mistæk en Minstrel in the gallery er sterkari og betri. Too old to rock and roll er ein alfrægasta og mest selda platan og þykir frekar skotheld. Hún er flott en heillaði mig aldrei. Næstu tvær voru enn meiri þjóðlagaverk og leyna verulega á sér. Þetta eru Songs from the wood og Heavy horses. Afbagðs plötur.
Þegar hér var komið við sögu hafði Anderson skipt út úr bandinu flestum, nema Martin Barre gítarista.
Nú fór Anderson að þreyfa fyrir sér með raftækni og komu út fjórar misjafnar plötur. Þetta eru Stormwatch (1980), A (1982), Broadsword  (1983) og Under wraps (1984). Ekki meira um þær.
Mitt mat er að bandið hafi verið flottast frá 1970 til 1980 og skora á hvern sem er að hlusta t.d. á Bursting out hljómleikaplötuna sem kom út 1978 og sýnir þá í fantaformi. Eða hlusta á 25 ára útgáfuna og bera saman tímabilin.
Eftir Under wraps kom útgáfuhlé og biðin var þess virði. 1987 kom Crest of a Knave sem er snilld, þétt rokk og fullt af lögum. Næsta var lakari, Rock Island en Catfish rising og Roots to branches eru skolli góðar. Síðasta alvöru stúdíóplatan er J-Tull dot Com. Sosum ágæt í sjálfu sér.  Catfish kom 1991, Roots 1995 og J-Tull 1999. 21 stúdíóplata með fullt af góðri tónlist á þrjátíu árum. Ekki margir sem toppa það.  Eða kraftinn í karlinum. Djöflast á sviðinu fram og til baka.
Þegar þeir höfðu starfað í tuttugu ár fóru að streyma út söfn laga. Á tuttugu ára afmælinu kom út tvöfaldur safndiskur, Best of. Á 25 ára afmælin flottur kassi með tónleikaútgáfum frá ýmsum tímum, tónleikum frá 1969, æfingaupptökum o.fl. Þá kom út Night cap safnið með lögum sem aldrei komust alla leið, sem og frumvinnunni að því sem seinna hét A passion play. Þá hafa komið út nokkur tónleikasöfn. Nefndi Bursting out, svo er A little light music o.fl. Eitt skemmtilegasta safnið er raunar frá BBC  en þar eru upptökur frá því um það leiti sem fyrstu plöturnar komu út.
Loks má nefna jólalagasafnið sem er alveg brill.
Hins vegar hafa útgefendur Andersons og hann verið duglegir að gefa út endurútgáfur. Þannig er til 20 ára afmælisútgáfa af Standup. 25 ára afmælisútgáfa og ég held alla vega 40 ára útgáfa.
Og nú er að koma 40 ára útgáfa af Thick as a brick.

Og það er verið að auglýsa tónleika með Jethro Tull í Hörpu. Hjartað tekur kipp.
En ef það kostar frá 15 þúsund á Kiri te Kanawa, hvað kostar á þetta?

Svo fer maður á jethrotull.com og hvað stendur þar?
"Ian will perform the classic concept album in its entirety for the first time since 1972, going out for a world tour..."

Ian will perform. Ekki Jethro Tull.

Það er sosum allt í lagi. 
Mig langar - langar mig?

Veit það ekki. 
 
Ég þekki þessa útgáfu frá plötunni og finnst hún flott..
Og þessa frá 1978 og þarna finnst mér flottasta útgáfa sveitarinnar vera á ferð.
Og þessa frá 1973 á sviði.
Og þessa frá sviði 1972 og 1976
Svo sá ég Anderson á sviði með Luciu Micarelli og félögum úr sinfóníuhljómsveit Íslands og fleirum. Frábær kvöldstund. Þar heyrði ég þessa gerð, 2006.
 

Og þá er það spurningin - hvaða minningu vil ég eiga?

Ps - hér er internetútvarp Jethro Tull

11.10.11

Shine on you crazy diamond

I am often asked about favourite bands and favourite music.
It is a bad thing for me. Selection angst.
How ever a few bands really appeal to me and I have followed some of them for more than 40 years. The best examples being The Beatles and especially McCartney (see older blogs), Jethro Tull, Clapton and a few others.
One band I always return to is the Pink Floyd.
And in particular two records. Leave you thinking and coming back to this.
They are a crazy diamond.
Established as the Pink Floyd Blues band, The Pink Floyd Sound and several other interesting names, they were five, Syd Barrett, Roger Waters, Nick Mason, Rick Wright and Bob Klose. These guys joined hands in the 1960´s and soon became known for psychadelia, long soundexperiments and funny songs by Syd Barrett. Bob Klose left in 1966, before they did any serious recording. Barrett took over in the sense that his songs were seen as qurky, interesting and different. Barrett defined a musical road for the band and his music gathered fans that saw it as treason when Barrett was dropped from the band in 1968. Barrett was however badly ill with mental problems. He would vanish into a world of his own and stand inactive on the stage. To try and solve this the other members got an old mate of Barretts to join. He was/is a top class guitarist, good singer and a top musician. This was David Gilmour.
As Barretts illness became a greater problem the band saw no other way than to drop him.
I am often asked about favourite bands and favourite music.
It is a bad thing for me. Selection angst.
How ever a few bands really appeal to me and I have followed some of them for more than 40 years. The best examples being The Beatles and especially McCartney (see older blogs), Jethro Tull, Clapton and a few others.
One band I always return to is the Pink Floyd.
And in particular two records. Leave you thinking and coming back to this.
They are a crazy diamond.
Established as the Pink Floyd Blues band, The Pink Floyd Sound and several other interesting names, they were five, Syd Barrett, Roger Waters, Nick Mason, Rick Wright and Bob Klose. These guys joined hands in the 1960´s and soon became known for psychadelia, long soundexperiments and funny songs by Syd Barrett. Bob Klose left in 1966, before serious recordings had happened and Barrett took over in the sense that his songs were seen as qurky, interesting and different. Barrett defined a musical road for the band and his music gathered fans that saw it as treason when Barrett was dropped from the band in 1968 and it did change direction dramatically. Barrett was however badly ill with mental problems. He vanish into a world of his own and stand inactive on the stage. To try and solve this the other memebers got an old mate of Barretts to oin. He was a top class guitarist, good singer and a top musician. This was David Gilmour.
Piper at the gates of dawn.
As Barretts illness became a greater problem the band saw no other way than to drop him.
They had released "Piper at the gates of dawn."










A saucerful of secrets
The first album after Barrett was "A saucerful of secrets" and it contained songs by him. And more. They however were headed for problems by then. The diection was quite unclear and remained so for a while.






Ummagumma (1969) sounds like a possible last effort. Two vinyls. One is their live setlist and the other one was constructed so that each of the four had a half a side to write for. A bit restless and here and there.








Atom heart mother (1970) has certain leads to where they might head, especially in the way they use tape loops and recorded effects.









Meddle (1971) is very much a Gilmour/Waters thing. It has the song Fearless with the Liverpool crowd doing their "you never walk alone" and a few quite good songs but the masterpiece was Echoes. Thats a really good piece of work.







Then came Obscured by clouds, another movie soundtrack and it has some intresting music indeed.  They had done a few moviesoundtracks and probably could have turned that into a career but >>>>>=====>>>>








Just let the record show that I did not follow them at the time. I caught the bus with their next little thing...

21.8.11

Þarf nokkuð að vanda sig?

Ég er afskaplega mikill aðdáandi þeirrar helgar ársins sem menningarnótt í Reykjavík dettur á. Í fyrsta lagi er maraþonið sem ég tek fyrir sér. Í öðru lagi er öll sköpunargleðin sem leysist úr læðingi með opnum húsum, listviðburðum og öðru. Vera má að sumt þyki skrýtið en það er líka svo margt frábært. Í gær voru Magnús og Jóhann og fleiri í Hljómskálagarðinum, Magnús Eiríks og KK í Rosenberg og hundruð annarra viðburða. Svo nær þetta hámarki með stórtónleikum Rásar 2 og þeirra sem styrkja það og endar með flugeldunum.
Og á degi eins og í gær? Hvað er betra? (myndin er tekin um morgunin reyndar).
Ég reikna með að lesandinn sé farinn að sjá að það hangir eitt stykki EN í loftinu.
Stórtónleikarnir voru án efa flottir. Ég sá The White Soxs sem ásamt Jónsa voru bara svalir. Mugison með Adda Gísla og co var líka alveg frábær.
En svo kom kallgreyið hann Bubbi.
Ég er mjög hrifinn af Sólskuggunum. Þeir eru alveg svakalega flottir.
En Bubbi? Með allan sinn lagalista? Þarna voru tugir þúsunda, börn og fullorðnir. Fjölskyldur.
Fyrst kom Ísbjarnarblús sem endar á pælingu um kíló af grasi og að fíla náttúruna.
Flljótlega þar á eftir fór hann yfr hvernig Svartur afgan varð til og stuttu síðar kom blammering á Hörpu, sem átti að vígja fáeinum mínútum síðar. Endalaus Yei og yæ og komment á stúlku sem væri í stuði. ,,Hún er í stuði", sagði Bubbi. ,,Veit ekki hvort hún er á efnum en hún er i stuði..."
Og svo var lagaúrvalið ekki stærra en svo að það þurfti að taka afar sýrukennda (en flott spilaða) útgáfu af Ísbjarnarblús aftur.
Mér finnst að á þessum punkti ætti að hafa mann sem hægt er að treysta til að láta ekki eins og Bubbi lét í gær. Þetta tók alveg úr mér gleðina um tíma.
Bubbi spilaði með Egó minnir mig á hafnarbakkanum fyrir mörgum árum síðan í svipuðu veðri og var þá flottur. Í gær var hann ekki flottur. Allt hitt var flott.
Samt hlakka ég til næsta árs.

2.7.11

sjöundi áratugurinn í tónlist - ágrip

Á flakki um youtube á dögunum rakst ég á nokkra gamla og góða frá sjöunda og áttunda  áratugnum. Kveikjan var Gilbert O'Sullivan sem byrjaði svona og varð svo svona  með diskóinu og er enn svolítið beggja blands.
Sumir finna sér formúlu. Eins og t.d. America gerði eins og sjá má hér...
Þeir voru raunar svo flottir að þeir fengu George Martin til að þróa stíl sem ekki var sá sami og Bítlanna.
Svo eru svona One hit wonders eins og Marmalade en frægasta lag þeirra var svona Weltsmerz í anda Kristjáns fjallaskálds og Jóhanns Sigurjónssonar - sem sé þetta. Enn flottara var þó þetta hér. Svo komu Hollies með bræðralagið og Amen Corner með paradísarlagið og loks Animals með húsasóttina.
Og bara fyrir þá nákvæmu - þetta er nánast öfug röð!
The Animals er ansi flott band með Eric Burdon fremstan og Alan Price á hljómborðið. En þeir voru hins vegar líka uppteknir af því að njóta frægðarinnar og þegar þeir stóðu við dyr heimsfrægðarinnar 1965 hætti Alan Price og The Animals náðu sér aldrei vel eftir það. Eftir þá liggur nokkuð safn af lögum en flest eru ábreiður - en fjári flottar.
Mér finnst gaman að nefna sum þessara hljómeykja því þau eru frekar gleymd.
Marmalade voru aldeilis flottir í tauinu á tíðum og áttu hvert gulllagið af öðru þó fæst standist tímans tönn - nema kannski Rainbow. Þeir byrjuðu sem The Gaylords upp úr 1960 en áttu lykiltíma sinn sitthvoru megin við 1970. Glasgow gæjar eins og Lulu (nema hún er pæja) og voru með melodíur til að dansa við og fá á heilann eins og þessa um Mary  Ann. Þeir ku víst enn vera að...
Ein sú algleymdasta er þó Amen Corner, bandið hans Andy Fairweather Low sem spilar m.a. með Clapton. Amen Corner átti eitt algleymanlegasta lag allra tíma (Paradísarlagið). Þeir eru eitt það albesta sem kemur frá Wales fyrir utan Katrínu Z Jóns. Þeir voru ábyggilega eitt fyrsta fönk/soul bandið breska með gríðarlega flotta uppstillingu og spiluðu flottan blús. Þeir áttu þetta og þetta og þetta og mér finnst þetta ofsalega flott þó það sér frá The Band.
Sem sé nokkrir hálfgleymdir hápunktar, sem enn eru flottir!

2.6.11

Eagles - or if you got good music, who cares about the words!

I´ve got a ticket for the Eagles!
So has my wife and a couple of great friends!
I got them as a gift from my favourite daughter...
I've always had a soft spot for them. Lots of guitars, really cool music, my kinda band.
A bit to country for my liking though so I suppose thats why I never put them alongside my big favourites. They really were a superband from the start, great session musicians that supported Linda Ronstad. Glenn Frey and Don Henley became the bands main writing team and man were they good!
I had a few of their albums and my favourite was On the border which is one of these albums that hardly have a weakness throughout. I mean. Already Gone, You Never Cry Like a Lover, Midnight Flyer, My Man, On the Border, James Dean, Ol' 55, Is It True?, Good Day in Hell, ... Any band would have killed for any one of these songs and to demonstrate the strength of the album they put Best of My Love as the last song!!!
They also had to have some humour as they put three versions of Doolin Dalton on the second album (Desperato 1973).
They did run out of steam in the late seventies and broke up for 14 years and made individual careers for that time. I followed Don Henley who made a lot of good music and I thought the Eagles would simply live through their songs.
This was partly due to Henleys comment that Eagles would get back together when Hell freezes over.
So Hell did and they did in 1994 and from then on they reunited every now and then. They even did a farewell tour (like the Shadows, Cher, Dylan, ) as well as issuing compilations until 2007 when they released Long road out of Eden the first studio album for nigh on 28 years. They did 6 studio albums from 1972 to 1979 plus one in 2007. But they´ve got nine compilations (one being four discs and a few two) so from the seven albums you have at least twice the number of discs compiling songs. Talk about squeezing.

And now they are coming to Iceland. June 9th. And no doubt they will play their best of and play it more or less the way we heard them for decades and it will take a lot to disappoint me.

And by the way...
The title of this blog is not to offend. Its a fact.

How's
"A runaway team of horses,
Ain't enough to make me stay"
or
"When we're hungry... love will keep us alive"
or
"And I found out a long time ago /
what a woman can do to your soul /
All that she can take you anyway /
You don't already know how to go"
 
Who cares - the music is too cool. (first quote - Midnight flyer; second - Love will keep us alive; third - Peaceful easy feeling (which makes no sense at all)).
 
The immense strength of the Eagles is the Frey/Henley partnership. Its like some such partnerships, totally remarkable and leaves behind a chain of music. To name but three - The Last resort from 1976, a true masterpiece; Desperado from their second album in 1973 and obviously Hotel California no doubt the most famous of them all. The Last Resort and Hotel California are from the same album, their last really good one. The Hotel song is a bit like Stairway to heaven - long intro and grand finale.
 
So lets just relax and look forward to June 9th. Whatever else - the music will be great, the company too, life is good.

5.5.11

Djúpbláir straumar

Arfagott dæmi um efnafræði rokksveitar er Deep Purple. Ég man enn þegar Deep Purple in Rock fór á fóninn. Það var þungarokk í lagi. Svo sá ég þá í Höllinni 1971 og heyrði ofboðslega spilaglaða náunga sem tóku lögin sín og léku sér með þau fram og til baka. Kjarni sveitarinnar voru tveir menn, Lord og Blackmore, sem báðir eru frst og síðast tónlistarmenn sem sjá tónlist sem tónlist en ekki sem klassík, jass, blús o.s.frv. Með þeim kom einhver arfasnjallasti trommari allra tíma Ian Paice. Elsta útgáfan gerði þrjár plötur sem vöktu mátulega athygli en eru einmitt eins og bland í poka hvað tónlistarstíla varðar.
Þegar hins vegar Roger Glover og Ian Gillian komu til liðs við hópinn fór efnaverkunin af stað.
Fyrsta vísbendingin um að eitthvað væri vændum var samstarfsverkefni við Konunglegu fílharmóníuna þar sem Jon Lord samdi konsert fyrir sveitirnar en að auki frumfluttu þeir m.a. Child in time. Stuttu síðar tóku þeir upp annað ,,klassískt" verk eftir Lord, Gemini Suite.
Svo kom In rock... og þar á eftir öflug plata en lakari sem hét Fireball og þar næst einhver besta þungarokksplata samtímans - Machine head. Hver vill ekki eiga Smoke on the water á plötu eftir sig? Eða Lazy? eða Highway star? En öll á sömu plötu? Svo kom Made in Japan sem er einhver öflugasta hljómleikaplata rokksins.
Þessi uppstilling átti eftir eina plötu til viðbótar og svo liðaðist hún í sundur. Í stað Gillians og Glover komu Glenn Hughes, ágætur bassaleikari og David Coverdale ágætur söngvari og þeir gáfu út m.a. breiðskífuna Burn sem er ágætis plata en samt var eitthvað ekki að gera sig. Svo kom Stormbringer og þá fór Blackmore.
Eftir hliðarspor eins og Rainbow, Whitesnake o.fl. náðu menn að sameina Lord, Blackmore, Gillian, Glover og Paice og viti menn það var markaður, kannski ekki fyrir ný lög og plötur úr stúdíóum en tónleika sem hvorki þeir eða aðdáendur virtust þreytast á.
Og leyndarmálið?
Spilagleði og sífelldar uppákomur þar sem menn leyfðu sér að gera eitthvað annað en síðast. Hlustaðu á endalausar útgáfur t.d. af Lazy á bootleggum og tónleikaplötum, trommusólóum, orgelsólóum, spileríi og meira spileríi.
Óþreytandi spilarar sem fyrst og síðast hafa tök á tónlist og er sama hver höfundurinn er eða útsetningin.
En tónninn var lagður af Lord, Blackmore, Gillian, Paice og Glover. Nú eru Lord og Blackmore hættir en arftakarnir eru með nóturnar og geta fetað í spor þeirra.
Þrusuband.

3.5.11

Efnafræði hljómsveita

Skrýtinn titill en mig langar að nefna örfá lítil dæmi um það hvernig hljómsveitir geta algjörlega snúist um það hverjir skipa þær.

Það fyrsta er Jethro Tull en frá því Ian Andersson tók hana yfir í kjölfar þess að Mick Abrahams hætti hefur í raun engu skipt hverjir voru með honum. Sveitin og tónlist hennar snýst um hann og Anderson ræður og rekur þá sem skipa Jethro Tull svona eins og stjórn Sinfóníunnar gerir. Aðalmálið er að þeir falli að því sem hann hefur stefnt að.
Algjör andstaða er Led Zeppelin, sem þó hóf tilveru sína í kringum Jimmy Page, sem raunar var alla tíð primus motor sveitarinnar. Hann kallaði saman þá Plant, Bonham og Jones til að halda úti hljómleikaferð sem Yardbirds höfðu átt að fara í en hann var einn eftir. Sveitin kom saman og gaf fyrst út plötuna Led Zeppelin 1969. Hún er ærið oft séð sem lykilplata í þróun þungarokks, en er meira blús og þjóðlagatónlist. Af lögunum eru þrjú (Babe I'm Gonna Leave You, Your Time Is Gonna Come, og Black Mountain Side) popp/þjóðlagatónlist  og blúsarnir eru fjórír (You Shook Me, Dazed and Confused, I Can't Quit You Baby og How Many More Times). Næsta plata sem hét Led Zeppelin (II) er meira leiðandi í þungarokki - og þó.
Hún sýnir hins vegar vel þróunarkraft hópsins því það er ekki margt sem tengir I og II tónlistarlega. Nema kannski það að þær eru blöndur margra tónlistarstíla. Framsækið rokk? Whole Lotta Love, Heartbreaker, Living Loving Maid, The Lemon Song
...Folk/pop? Thank You
trommusóló? Moby Dick
o.s.frv.
Og þegar næsta plata kom sem hét Led Zeppelin (III) var gengið enn lengra í að hrúga saman lögum ólíkrar gerðar. Allskonar tilraunir og folk (Hangman), blús (Since I´ve been loving you), Íslandsrokk (Immigrant song). Meira að segja á heilsteypta listaverkinu sem var fjórða platan og hét ekki neitt (en er kölluð IV) eru lög héðan og þaðan.
Popp - rokk - þunga eitthvað? Black Dog, Rock and Roll, Misty Mountain Hop og Four Sticks.
Sætt kassagítarlag - Going to California og flókið sætt kassagítarlag The Battle of evermore.
Sætt kassagítarlag með óskiljanlegum texta og harðklassarokkendi og gítargangi sem allir verða að læra - Stairway to heaven og
Rosablús When the Levee Breaks.

Og svo framvegis. Jimmy Page ætlaði að tína saman súperband með Jeff Beck, Keith Moon o.fl. en fékk súperband allra tíma með náungum sem kalla má No names. Og fékk rétta blöndu. En frá mínum bæjardyrum séð er það formleysan frá I - IV sem var mest spennandi. Stílar? Þetta var allt tónlist!

Hver annar hugsaði svo?
Margir. Peter Gabriel, Paul Simon o.fl. eru harðduglegir að ná í músikanta hvaðan sem er og láta allt blandast. En það var John Lord sem tók mig á löpp.
Það er næsti pistill!

26.4.11

Zappa?

Ég er nú svo vitlaus að ég náði aldrei Frank Zappa. Reyndi þó nokkrum sinnum. Einhvern veginn heillaði mig hvernig hann setti saman texta, ataðist í samfélaginu, gaf sk*t í alla siðsemi og gerði lög eins og Don‘t eat the yellow snow, My guitar wants to kill your mama o.fl. Alltaf hrifinn af súrealisma.

En ég náði aldrei tónllistinni.

Eitt lag heillaði mig – Bobby Brown goes down. Nóg.

Tek ofan fyrir Zappa sem starfaði í áratugi sem utangarðs-mainstream eitthvað og gaf út tugi hljómplatna.

Ég bara skil þetta ekki.

15.1.11

Gerry Rafferty RIP

Sometimes one is reminded of something which belongs to days gone by and finds out that the thing that once appeared so great, no longer is.
Then things reappear and its like meeting a blast from the past.
Recently I heard that Gerry Rafferty died. I dove into my vinyl-days memories and there it was. One of the best records I´ve ever bought.
Many of those who write about him see him as a one hit wonder and the writer of Baker street.
Bu there was more. So much more.
Gerry Rafferty was a Glaswegian and had a fairly rough childhood. He soon turned to music and formed a Glasgow band called The Mavericks with friend Joe Egan. They later went to London, formed a band called The Fifth Column. This band issued a couple of songs now long forgotten. He then joined Billy Connolly in a popular Glasgow band called The Humblebums. That band issued two LP´s that received a great deal of attention.
They're closest thing to a hit was Shoeshine boy. Here are two more - here and here! After a while Rafferty encouraged Connolly to go on the road as a standup artist and they parted ways.
His next task was an acclaimed solo album that didn't sell. It was called Can I have my money back. One song here and another here.
In 1972 Rafferty and Egan formed a band they called Stealers wheel. They toured a lot, received respect and promises of fame and fortune. They recorded three LP's and amongst several relatively famous songs the most famous is Stuck in the middle with you. It has been covered many a time and this is my favourite. Stealers were promised fame and fortune but realised they were being cheated. Rafferty left in 1975 and wowed not to record until everything was settled. It took three years.
So one day he turned up at the doorstep of UA with demos of songs recorded on a four track. UA soon realized what they had. This was in 1978. On the four track he had recorded several songs, on his own, and they souned good.
It was the single Baker street that dominated the album he called City to City. The magnificent saxophone, the huge sound, the cool songline. How ever many never listened to the rest of the album. The album was to me like Sgt. Pepper or Dark side of the moon or Aqualung. Not a dead beat, not a dull moment. Not a flaw. For some strange reason Rafferty fell off my wagon and I did not play this album for years.
So how does it sound?
The thing is that City to City is as good as it was and I´ve yet to find the weak spot. It gave two singles, Baker street that never reached first place but outlives most other songs, and Right down the line that made first on the US easy listening chart.
The rest of it could have made singles too. To name a few lets think of City to City (song) a masterpiece. As is Stealin' Time, Mattie's Rag and particularly Whatever's Written in Your Heart.
Rafferty wrote more songs with mild success and earned a great deal of respect. He unfortunately was a recluse and a drunk and very slowly drank himself to death.
But he was a top class musician and City to  City rocked. It still does.

16.3.10

Cat Stevens og Yusuf Islam.

Steven Demetre Georgiou fæddist í London 21. júlí 1948. Það var fyrsta nafn hans og drengurinn, sem átti sænska móður en grískan föður ólst upp í næsta nágrenni við Denmark Street sem var þá Mekka heimsins í tónlist - alla vega Mekka Londonar.
Steven eignaðist ungur gítar og sýndi fljótt mikla hæfileika við að spila og semja lög. Árið 1965 fór hann að spila í Hammersmith undir nafninu Steve Adams og sama ár gerði hann útgáfusamning m.a. um lagið The first cut is the deepest sem er einn af ógnarsmellum og yfirábreiðum sögunnar.
Hann tók upp nafnið Cat Stevens og fór að vinna við lagasmíðar m.a. fyrir aðra. Hann rúllaði út hverjum smellinum af öðrum. I Love My Dog, Matthew and Son, I'm Gonna Get Me a Gun og loks Tremeloes lagið Here Comes My Baby. Hann ferðaðist um og varð verulega þekktur lagahöfundur.
Allt þetta gerðist mjög hratt og árin 1966-7. Um það leiti fékk hann Berkla og varð að leggjast á spítala. Þar hugsaði hann feril sinn upp á nýtt og í kjölfar fyrstu stóru platanna (1967 Matthew & Son og New Masters) kom plata árið 1970 sem var boðberi mikilla breytinga en það hefur síðan þá verið einkenni hans að taka miklar kúvendingar með a.m.k. sumum plötunum.
Nýja platan kom árið 1970 og hét Mona Bone Jakon. Ólíkt hinum plötunum er hún með gítar-þjóðlagatónlist, mjög innhverf og þung á köflum. Alla vega textarnir sem eru tregafullir. Platan féll þó í góðan jarðveg og seldist hratt.
Fullur af kjarki settist Cat við aðra plötu sína og gaf út aðra af tveimur ofurplötum sínum. Hún kom út árið 1970 og hét Tea for the Tillerman. Hún rann út og er raunar góð söluplata enn í dag. Á henni er vart veikan punkt að finna og innan um ljúf lög er að finna harða þjóðfélagsádeilu eins og Wild World, Where do the children play og Father and son sem er annar ofursmellur og yfirábreiða. Ári síðar kom hin ofurplatan en hún heitir Teaser and the Firecat. Á henni eru líka mörg afburðalög en frægast er þó án efa Morning has broken. Besta? How can I tell you. Vinsælast? Peace Train.
Og nú tók hann beygju.
Næsta plata er ein af mínum algjöru uppáhaldsplötum en aðdáendur aðrir voru ekki allir sammála mér. Hún kom árið 1972 og heitir Catch Bull at Four. Hún er sterk blanda af hipparómantík, Zen búddisma (the boy with the moon and star), persónulegri líðan (house of freezing steel) og umhverfisvakningu (Oh karitas). Eina smáskífan var Sitting en þrátt fyrir deilur seldist hún gríðarlega og sat um hríð efst á breiðskífulistum í Bretlandi og Bandaríkjunum.
Og aftur kom beygja.
Árið 1973 kom Foreigner en öðru megin er The Foreigner Suite, samfellt verk, sem hefst á orðunum There are no words, I can use / Because the meaning still leaves for you to choose / And I couldn't stand to let them be abused, by you...
Það var ekki einungis andi plötunnar sem var svolítið afturvarf til sjöunda áratugarins því hljóðfærin voru allt önnur. Hann hvíldi m.a. snillinginn Alun Davies sem annars var alltaf með.
Næst kom Buddha and the Chocolate Box (1974) með afturhvarfi til platanna frá 1970/1 og smásmellinum Oh very young. Þar næst kom Numbers (1975) sem er platan til að gleyma og loks Izitso  (1977) og Back to earth (1978) en með henni lauk útgáfuferli Cat Stevens.
Sögunni um hvarf hans til Islam  verður sleppt hér en nú tók við nokkur þurrkur hjá aðdáaendum hans. Einhverjar endurútgáfur og heiðurstónleikar en ekkert nýtt þannig.
Til eru tvær hljómleikaplötur 1974 Saturnight og 2004 Majikat.
Safnplötur eru 1975 Greatest Hits, 1984 Footsteps in the Dark: Greatest Hits, Vol. 2, 1987 Classics, Volume 24, 1989 The Best of Cat Stevens, 1989 Remember Cat Stevens - The Ultimate Collection,  2000 The Very Best of Cat Stevens, 2001 Cat Stevens - The Box Yet, 2005 Gold og 2007 Harold and Maude Soundtrack by Cat Stevens. Á einhverju varð mamðurinn að lifa! Hann rak m.a. islamska skóla í London!

Frá 1995 birtust svo plötur undir nafni Yusuf Islam, en þær eru flestar barnaplötur eða/og trúarlegar plötur sem höfðuðu ekki til hins almenna neytanda. Nefnum þær: 1995: The Life of the Last Prophet, 1998: I Have No Cannons that Roar, 1999: Prayers of the Last Prophet, 2000: A Is for Allah, 2001: Bismillah, 2002: In Praise of the Last Prophet, 2003: I Look I See, 2003: Night of Remembrance, 2005: Indian Ocean, 2006: Footsteps in the Light, 2008: I Look, I See 2.

Árið 2006 steig hann svo fram með gítar að vopni, nokkur gömul lög og önur ný og gaf út plötuna An Other Cup. Hún vakti verulega athygli enda nokkur afbragðslög auk þess sem sá gamli steig á svið á ný. Lög eins og Midday, Heaven/Where True Love Goes, Maybe There's a World,  ábreiðan Don't Let Me Be Misunderstood, og endurgerð I Think I See the Light. Masterclass. Rámari, mýkri, einlægur eins og alltaf og ráðinn í að sýna heiminum að Islam þýddi ekki hætta framundan. Til merkis um það eru þær gefnar út undir nafninu Yusuf (ekki Yusuf Islam).
Platan er mögnuð og eins og þreifing til að kanna jarðveginn. Og gekk vel.
Næsta plata varð ekki síðri og meira original. Hún kom 2009  og heitir Roadsinger. Hún er skotheld og líklega besta platan frá1971. Á henni er röð frábærra laga og hugsana og trúarbrögðin vafin inn á eins kurteisan hátt og hægt er. Welcome Home, Thinking 'Bout You, Be What You Must og snilldarstykkið Roadsinger. Á sumum útgáfum er að auki lagið Boots and sand þar sem Paul McCartney og Dolly Parton eru með!
Hvaða nafni sem gaurinn nefnist þá er hann friðarboðandi með gott nef fyrir markaðnum og ansi flottur músíkant.
Hvað viltu meir?

12.2.10

Og þá er það Paul

Byrjum á byrjuninni.
Já, mér finnst Paul flottur. Já, ég held meira upp á hann en aðra bítla og já, ég held að hann sé í hópi mest skapandi tónlistarmanna 20. aldar.
En þegar ég er spurður hvor hafi skipt meira máli í bítlunum segi ég pass. Bítlarnir voru það sem þeir voru af því að þessir fjórir komu saman með George Martin. Aðrir menn = önnur útkoma.
Búið.

Paul McCartney er frekar sérstakur listamaður. Fyrir það fyrsta á hann gríðarlegt safn af lögum sem allir kunna og vilja fá að heyra. Hann fyllir leikvanga af fólki og feeling og sendir fólk frá sér í hamingjusælu af stemmingunni einni saman.
Eftir hann munu liggja 55 hljómplötur í eigin nafni og hljómsveita, 75 smáskífur, þrjú plötusöfn og á sjötta tug myndbanda með lögum. Hann hefur túrað linnulítið frá því að bítlarnir hættu 1971. Um hann er sagt m.a. á Wikipedia að hann sé enskur söngvari og lagahöfundur, ljóðskáld, tónskáld, hljóðfæraleikari á fjölda hljóðfæra, frumkvöðull, útgefandi tónlistar og kvikmynda, listmálari, baráttumaður vegna umhverfis- og friðarmála. Hann teljist stofnandi The Beatles og Wings, sem hvor um sig hafi sett ný viðmið í vinsældum. Hann teljist "the most successful songwriter in the history of popular music." Þessi fullyrðing sé staðfest í Guinness World Records. Hann eigi 60 gullplötur og hafi selt yfir 100 milljón smáskífur. "Yesterday" lagið sem Paul samdi og hljóðritaði einn fyrir Help plötuna hefur verið ábreiðulag meira en 3,500 listamanna á plötum og er mest "covered" lag sögunnar. Það hefur verið spilað yfir 7,000,000 sinnum í bandarísku útvarpi og sjónvarpi. "Mull of Kintyre", lag sem hann samdi fyrir Wings 1977, varð fyrsta smáskífan sem seldist í meira en tveimur milljónum eintaka í Bretlandi einu saman og er enn mest selda smáskífan sem ekki tengist góðgerðarmálum. Enginn skákar honum í Bretlandi hvað smáskífur varðar. Hann hefur átt 32 smáskífur sem náð hafa fyrsta sæti bandaríska listans. Hann hefur verið að frá því fyrir 1960 en það telst stofnár Beatles.
Helstu útgáfur karlsins eru (NB sumar voru fleiri en ein skífa):
↙Hljóðversplötur 22
↙Tónleikaútgáfur 8
↙Safnplötur 3
↙Smáskífur 75
↙Kvikmyndaplötur 12
↙Tónlistarmyndbönd einstakra laga 55
↙Kvikmyndatónlist 1
↙"Klassískar plötur" 5
↙Annars konar plötur 7

Eins og áður er sagt er Paul hljóðfæraleikari í fleirtölu. A.m.k. þrjár plötur liggja eftir hann, í hans nafni, þar sem hann leikur á öll hljóðfærin og þær eru raunar fleiri. Ef hann hefði ekki tekið að sér bassann af Stu Sutcliffe hefði heimurinn líklega séð gítarleikara. Sjáið þessi vídeó:
Callico skies, Blackbird, tveir puttar og Jenny Wren.
Góður gítarleikari, mér vel kunnugur, segir að það erfiðasta við lög Paul sé hversu nákvæmur maður þurfi að vera.
Hvað hljómleikastemmingu varðar bendi ég á þetta.

Hér á eftir er listi yfir plöturnar með athugasemdum um sumar.

Hljóðversplötur:
1970 McCartney - einföld og öll spiluð af Páli sjálfum. Ekki merkileg en næsta var betri!
1971 Ram er dæmigerð plata eftir karlinn og hlaðinn góðum lögum, s.s. Back seat of my car og Uncle Albert sem er eitt af mörgum tilraunalögum Pauls.
1971 Wild Life fyrsta platan undir nafni Wings.
1973 Red Rose Speedway var líka Wings. Ofurvinsæl m.a. vegna My love. en full af smálögum og skemmtilegum stubbum.
1973 Band on the Run líklega besta plata Wings og jafnan talinn einn af hápunktum Pauls. Á henni eru fjölmörg afbragðslög s.s. Band on the Run, Jet, Bluebird, Mrs Vandebilt, Let Me Roll It (Skot á Lennon), Mamunia, og Picasso's Last Words (Drink to Me).
1975 Venus and Mars (Wings) og nú voru þeir á siglingu þar sem þeir seldu tónleikamiða í bílförmum. Ágæt plata en gloppóttari en næsta á undan. Bæði Band on the run og Venus and Mars sátu í fyrstu sætum lista víða um heim. Góð lög t.d. Rock Show, You Gave Me the Answer, Call Me Back Again og Listen to What the Man Said.
1976 Wings at the Speed of Sound (Wings) frábær tónleikaplata.
1978 London Town (Wings) Ágæt með t.d. samnefndu titillagi.
1979 Back to the Egg (Wings) þykir jafnan með þeim lakari. Þó eru afbragðslög s.s Baby's request.
1980 McCartney II sólóplata - hann leikur allt sjálfur!
1982 Tug of War var sólóplata og er samfelld sæla. Frábær lög hvert af öðru. Þarna er lag með Ringo og George Martin, annað með Stevie Wonder og lagið Here today sem er tileinkað minningu Lennon.
1983 Pipes of Peace aðallega fræg vegna samstarfs við Michael Jackson og hið ógnarvinsæla Say, say, say.
1984 Give My Regards to Broad Street sem er hljóðrás samnefndrar kvikmyndar. Nokkur tilraunaverkefni og allt í góðu. Uppáhald? Breytt útgáfa af Long and winding road.
1986 Press to Play frekar gleymanleg
1988 Снова в СССР rokkstandardar útgefnir fyrir Sovétríkin.
1989 Flowers in the Dirt afbragðsplata unnin með Elvis Costello.
1991 Unplugged (The official bootleg) er lagasafn tekið upp fyrir MTV. Hann var sá fyrsti sem gaf sig í þetta síðar geysivinsæla verkefni þannig að plata var gefin út. Nokkrir slíkir konsertar höfðu verið sendir út (Jethro Tull voru fyrstir) en ekki gefnir út. Hann var nýkominn úr stórum túr og var alveg til í að prufa gömul lög, m.a. af McCartney plötunni fyrstu, alveg án rafmagns. Öll hljóðfæri órafmögnuð og allt tekið upp í gegnum utanáliggjandi hljóðnema. Skotheld plata en ekki nýtt efni.
1993 Off the Ground ágæt plata með nokkrum úrvalslögum.
1997 Flaming Pie ein sú albesta unnin m.a. með Jeff Lynne og mörgum gestum. Nánast skotheld.
1999 Run Devil Run - ekki hlustað á hana eða næstu!
2001 Driving Rain
2005 Chaos and Creation in the Backyard enn einn gullmolinn, unnin með Nigel Godrich, pródúsent Radiohead og Beck. Topplagasafn og sólóverk Paul. Hann fær örlitla aðstoð hljóðfæraleikara.
2007 Memory Almost Full líklega síðasta sólóplata karlsins eða hvað?

Lifandi plötur: 1976 Wings over America, 1990 Tripping the Live Fantastic, 1990 Tripping the Live Fantastic: Highlights!, 1991 Unplugged (The Official Bootleg), 1993 Paul Is Live, 2002 Back in the U.S., 2003 Back in the World, 2009 Good Evening New York City.
Af þeim eru unplugged platan og Wings platan flottastar. Hinar eru góðar...

Safnplötur: 1978 Wings Greatest, 1987 All the Best!, 2001 Wingspan: Hits and History.  (gott safn)

Klassík(?): 1991 Paul McCartney's Liverpool Oratorio (with Carl Davis),
1997 Standing Stone, 1999 Working Classical (dægurlög í nýjum búningi), 2000 A Garland for Linda (Various Artists) (minningarplata), 2006 Ecce Cor Meum (einkennisorð skjaldar sir Pauls (á ensku Behold my heart)).

Hljóðrásarplata (Kvikmynd): 1967 The Family Way.

Aðrar plötur (t.d.):
1977 Thrillington "(Percy ""Thrills"" Thrillington)"
1993 Strawberries Oceans Ships Forest (The Fireman)
1998 Rushes (The Fireman)
2005 Twin Freaks (with The Freelance Hellraiser)
2008 Electric Arguments (The Fireman) => þessar fimm plötur eru tilraunakennd verkefni. Á þeirri síðustu voru settar fram hugmyndir um stef og efni texta og síðan átti karlinn að láta vaða.

Er meira að segja um Paul? Það er sama hvað gagnrýnendur segja. Sala platna, vinsældir laga, tilraunaverkefnin, margar framsæknar hugmyndir... Sýnið mér annan sem hefur verið jafnfjölbreyttur og afkastamikill síðustu 50 ár...

7.2.10

John Lennon (og nú fer að hitna í kolunum)

Lennon er óvéfengjanleg frumsprauta bítlanna. Hann og McCartney unnu frábærlega saman og voru báðir mjög áfram um að leita nýjunga. Sólóferill hans var hins vegar stuttur (hann var myrtur 1980) og var satt að segja flekkóttur. Í raun hafa menn upphafið hann á þann hátt sem hann sjálfur hefði ekki viljað og ekkja hans Yoko Ono hefur gefið út hvert bestu laga safnið af öðru til að halda nafni hans (og tekjum sínum) á lofti.

Þrátt fyrir gríðarleg afköst framan af þá urðu vímuefni til þess að listræn dómgreind hans beið verulegan hnekki. Þannig var ferillinn kannski merktur jaðarlifnaði, lönguninni til að ögra og litríkri stjórnmálabaráttu fremur en listrænni gæðasköpun.

Fyrstu sólóplöturnar voru ekki tónlistarlega merkilegar. Þær voru þrjár og heita fyrstu tvær Unfinished music 1 og 2 en sú fyrri er líka kölluð Two virgins og 2 er nefnd Life with the Lions. Sú þriðja er kölluð The wedding album. Þetta eru undarlegar smíðar og er lesandinn einfaldlega hvattur til að reyna. Ekki veit ég marga sem hafa lúshlustað á þær eða hvað þá heldur tvisvar. Two virgins er satt að segja frægust fyrir að þau John og Yoko eru berrössuð á slíðrinu. Þegar litið er á ferilinn mætti ætla að um afköst væri að ræða því ein kom 1968 en þrjár komu 1969. Af þeim er ein tónlistarlega merkileg en það er Live Peace In Toronto (with Plastic Ono Band) (1969). Eric Clapton lýsir þeirri ferð sem undarlegu fylleríi og platan mun hafa verið gefin út vegna ótalmargra bootleg platna sem voru á leið á markað af misjöfnum gæðum. Fyrsta alvöru platan er John Lennon/Plastic Ono Band (1970). Hún fékk miklar móttökur og seldist vel. Á henni eru tvö merkileg lög - Mother og Working class hero. Næst kom Imagine (1971) en hún var mun poppaðri og fékk mun mildari viðtökur gagnrýnenda en seldist þeim mun betur. Hún er frekar þétt og full af gæðatónlist þó lagið Imagine standi upp úr. Einnig er þar að finna Jelous guy, Crippled inside og Oh my love. Þá er þar How do you sleep at night þar sem hann hraunar yfir Paul.

Hann fékk þó miklar kárínur fyrir að það væri ekki nóg að tala heldur væru það verkin sem töluðu. Í Imagine er talað um heim án peninga en Yoko þótti öflug í að fara vel með peninga og í að markaðssetja.

Næst kom Some Time in New York City (with Yoko Ono) (1972). Hún fékk blendnar mótttökur enda rammpólítísk og frekar hrátt unnin. Hann bætti því aðeins um betur og gerði Mind Games (1973). Hún ber listamanninum ekki gott vitni enda var ruglið mikið. Hann var í opinberu stríði við Paul, á nippinu með landvistarleyfi í Bandaríkjunum og verulega mikil bytta. Hjónabandið var á bláþræði og sagan segir að þegar platan hafi komið út hafi ástarsambandið við May Peng hafist og The lost weekend sem stóð í um sextán mánuði.

Tímabilið einkenndist af fylleríi með hirð af fólki og fréttum af skandölum en einnig tók hann sér átta vikur í að vinna af fullri hörku og gaf þá út plötuna Walls and Bridges (1974) sem líklega var best af því sem komið var út. Platan er klassa-Lennon hlaðin flottum lögum (og rugli) en bestu lögin s.s. #9 dream og Whatever gets you through the night eru klasssssssar. Platan rokseldist og varð til þess að plötuútgefandinn dustaði rykið af gömlum upptökum að mestu frá 1973 en það er Rock 'n' Roll (1975) safn af gömlum rokkábreiðum.

Nú hermir sagan að Ono hafi sótt karl sinn aftur og rúmum níu mánuðum síðar fæddist Sean Lennon. Karlinn settist í helgan stein - lék pabba og húsföður í fimm ár meðan frúin ávaxtaði fé þeirra.

Síðan tók hann sig til og tók upp nokkur lög sín og frúarinnar og lagði grunn að endurkomu og tveimur plötum. Sú fyrri, Double Fantasy (with Yoko Ono) (1980) kom út í nóvember og aðeins þremur vikum síðar var hann myrtur á götu í New York. Seinni platan heitir Milk and Honey (with Yoko Ono) (1984). Ef maður tekur lög Lennons af báðum þessum og sleppir lögum Ono er þetta afskaplega þétt plata. Af Double fantasy komu (Just Like) Starting Over, Cleanup Time, I'm Losing You, Beautiful Boy (Darling Boy), Watching the Wheels, Woman og Dear Yoko en Milk and honey sem var gefin út fjórum árum síðar koma I'm Stepping Out, Nobody Told Me, Borrowed Time og Grow Old With Me.
Double fantasy rokseldist, bæði vegna morðsins en einnig vegna góðrar tónlistar. Annað gilti um Milk and honey sem fékk mildari mótttökur.
Satt að segja var mikil sigling á Lennon þarna en satt að segja eru lögin á seinni plötunni háfkaraðar demo upptökur,- sum alla vega.
Eftir dauða Lennons hefur ekkjan Ono gætt hagsmuna minningar hans með hóflegri plötuútgáfu. Fyrst kom The John Lennon Collection 1982. Árið 1986 kom Menlove Ave. sem eru úrköst frá plötuupptökum frá 1973-74.
Árið 1988 plata með lögum úr kvikmynd sem hét Imagine: John Lennon.
Árið 1990 kom Lennon sem er kassi með fjölda laga.
Árið 1997 kom Lennon Legend: The Very Best of John Lennon og ári síðar John Lennon Anthology full af óútgefnu efni en ekki hágæða. Út frá henni kom Wonsaponatime (sama ár) með úrvali af Anthology safninu.
2002 kom Instant Karma: All-Time Greatest Hits og 2004 kom Acoustic að mestu áður útgefið. 2005 kom Peace, Love & Truth og svo kom Working Class Hero: The Definitive Lennon sama ár.
Mér telst til að hann hafi gefið út 9 plötur lifandi, auk hljómleikaplötu og safnplötu. Eftir andlát hans hafa komið út 13 diskasöfn misstór auk hljóðrása US v Lennon og Starbucks plötu.
Hún er ekki gráðug hún Yoko.

1.2.10

George Harrison

George átti við sama vanda að stríða og Ringo, að eiga erfitt uppdráttar eftir að bítlinu lauk. Til er frægt viðtal við George, tekið um það leiti sem fárið var að byrja þar sem hann taldi þá vonandi duga í fjögur ár. Þetta var 1963. Bæði Paul og John töluðu um hversu flinkur George væri á gítar. Hins vegar voru þeir ekkert áfram um að lofa honum að setja lög á plötur. Áhrifanna gætir samt bak við tjöldin. Þannig kom hann með sterk frá Dylan og þjóðlagarokki ekki síst á Rubber Soul og Revolver plötunum, - sem mér þykja langbestu plötur safnsins þeirra. Hann færði þeim indversk áhrif og víða má heyra hárfínan gítarleik hans s.s. í lögum eins og Nowhere man og Till there was you.
Engu að síður átti hann líklega flottasta lag þeirra sem er Something.
Eftir að bítli lauk gaf hann út tvöfalda plötu, - All things must pass, svona eins og til að undirstrika hvernig hann var sniðgenginn. Sú plata er ekki mjög þétt eða myndar ekki góða heild. Þar eru engu að síður lög eins og My sweet lord og lag Dylans If not for you.
George lagði hönd á margt næstu ár en gekk illa að fóta sig sem sólólistamaður. Þrátt fyrir nokkur góð lög voru þau fleiri sem ekki skoruðu hátt. Merkustu afrekin eru t.d. tengd kvikmyndaútgáfu en Monty Python tókst víst nánast að gera hann gjaldþrota.
Lang merkasta framtakið var þó að skipuleggja tónleikana fyrir Bangla Desh en þeir voru settir upp með stuttum fyrirvara og tókust mjög vel.
Plöturnar hans voru þessar:
1968 Wonderwall Music
1969 Electronic Sound
1970 All Things Must Pass
1971 The Concert for Bangladesh
1973 Living in the Material World
1974 Dark Horse
1975 Extra Texture (Read All About It)
1976 Thirty Three & 1/3
1976 The Best of George Harrison
1979 George Harrison
1981 Somewhere in England
1982 Gone Troppo
1987 Cloud Nine
1989 Best of Dark Horse 1976–1989
1992 Live in Japan

Sérstæður luti ferilsins var þegar hann gekk til liðs við Jeff Lynne, Roy Orbison, Tom Petty og Bob Dylan og stofnaði bandið Traveling Wilburys. Þeir hljóðrituðu tvær plötur. "Wilburys" var afbökun af orðalagi sem Harrison and Lynne notuðu við upptökur á Cloud Nine.Þeir sögðu, þegar eitthvað bilaði: "We'll bury 'em in the mix". Bandið var fyrst og síðast léttur sprettur og lagavalið var blendið. Þó eru þar skemmtilegir bútar. Plöturnar tvær heita:
1988 Traveling Wilburys Vol. 1
1990 Traveling Wilburys Vol. 3

George Harrison lést úr krabbameini 29. nóvember 2001. Ári síðar voru haldnir stórtónleikar til minningar um hann sem fjallað er um annars staðar. Minning hans lifir í friðsælu lífsviðhorfi, baráttu fyrir góðum málum og mörgum góðum lögum. Síðast en ekki síst þó í þeim þáttum þar sem hann var maðurinn bak við tjöldin á plötum The Beatles.

30.10.09

Ringo Starr eftir Bítlana

Ringo er í miklu uppáhaldi hjá mér. Hann var líklega eini bítillinn sem setti bítlana til hliðar og snéri sér að allt öðrum hlutum í raun.

Ringo hefur alltaf yfir sér ákveðna helgi. Hann var þekktur fyrir vinnulag sitt sem trommari og varð mörgum fyrirmynd. Hann varð trommarinn sem var mikilvægur hluti af hljómsveit - fullgildur meðlimur. Sem dæmi má nefna að The Kinks töldu sig varla þurfa trommara, hvað þá fastan trommara um tíma.

Ringoismi var svo orð yfir orðfæri kallsins en upp úr honum ultu frasar eins og Its been an Hard Days Night og Tomorrow Never Knows sem urðu lagaheiti. Fleiri dæmi má nefna.

Þegar Beatles lögðu upp laupana reyndi Ringo fyrst fyrir sér með plötuútgáfu og gekk vel. Alls eru plöturnar 14 frá 1970 til 2008. Á þeim má heyra allskonar tónlist en almennt þó gleðitónlist.
Sú fyrsta var gerð strax í kjölfar Abbey Road og George Martin hjálpaði við upptökurnar. Platan átti að vera nostalgía með tónlist frá yngri árum foreldra hans. Platan fékk góða dóma en litla sölu. Beucoups of Blues kom sama ár (1970) en það er country plata tekin upp í Nashville. Aftur voru aðdáendur Ringos kátir með plötuna en hún seldist illa og Ringo snéri sér að kvikmyndaleik.
1973 kom ný plata með Ringo sem heitir Ringo. Þetta er almennt talin besta platan hans en stóri gambíturinn var að hann fékk félaga sína úr Bítlunum með sér. Í fyrsta laginu - I´m the greatest - er öll áhöfnin af Let it Be nema McCartney. Lennon samdi lagið, spilar með Harrison og Billy Preston. Í næsta lagi var Marc Bolan og þar næst var stóri slagarinn Photograph sem Harrison samdi með Ringo.
Harrison samdi annað til og McCartney eitt og söng í öðru.
Platan er samansafn af gleðipunktum og ég man vel hvað hún var skemmtileg.
Á næstu plötum lék hann sama leikinn og á þeim spila, auk Bítlanna (alltaf hver í sínu lagi), Elton John, Eric Clapton og fleiri og fleiri. Af öðrum slögurum er No no song en í heild gengu þessar plötur mátulega en Ringo fékk aðra hugmynd sem verður fjallað um á eftir.
Ringo var samt svolítið hvass á stundum. sem dæmi má taka B-hlið It dont come easy frá 1971 en þar er að finna Early 1970. Þar sendir hann félögum sínum, sérlega þó John og Paul föst skot vegna uppgjörs Bítlanna.
Árið 2003 kvaddi hann George í laginu Never Without you. Það er einmitt flott að sjá sambandið milli hans og Paul á minningartónleikunum um George 2002.
Ringo hætti fljótlega að keyra á plötuútgáfu en helgaði sig um tíma kvikmyndaleik og átti sínar stundir í fjölmörgum kvikmyndum.
Einna magnaðasta framtak Ringos er þó hvernig hann setti saman stjörnusveit sem hefur troðið upp í tíu útgáfum frá 1989. Þarna er stjörnufans og margir gamlir. Nefnum Joe Walsh, Dr. John, Billy Preston, Todd Rundgren, John Entwhistle, Mark Rivera, Gary Brooker, Jack Bruce, Simon Kirke, Timmy Cappello, Roger Hodgson, Ian Hunter, Greg Lake, Sheila E., Rod Argent, Hamish Stuart, Edgar Winter, Gary Wright og eru þá einungis fáir nefndir. Ef þú þekkir ekki nafnið þá er það google og wikipedia!
Ringo var merkilegur músíkant fyrir það að koma trommuleik í lykilsæti í rokkinu. Margir fylgdu eftir og upp kom hópur ofurtrommara s.s. Greg Palmer, Bill Bruford, Phil Collins o.fl. Hann sagði hins vegar um sig að það væri hans mál að sjá til þess að halda takti og á Liverpool 8 plötunni segir: I never missed a beat. Þess vegna tók á að fá hann til að taka trommusóló í laginu The End á Abbey Road.
Hann birtist alltaf sem jákvæður kraftur og er enn frekar glaðlyndur kall þó hann halli í sjötugt. Hann er fæddur 1940. Hann var elstur og yngstur Bítlanna. Flottur kall.

29.10.09

The Beatles endurútgáfan?

Bítlarnir eru einhver ofmetnasta og vanmetnasta sveit rokksögunnar. Ofmetin vegna þess að útgáfuferill hennar var óskaplega stuttur í hljómplötuárum en vanmetin vegna þeirra tónlistarlegu og hugmyndafræðilegu áhrifa sem hún hafði á tónlist. Ég ætla ekki að fara að skrifa sögu þeirra heldur í nokkrm pistlum að fjalla stuttlega um plötur þeirra og síðar sólóferil hvers og eins.
Útgáfuferill Bítlanna hefst ekki fyrr en 1963 en þá höfðu þeir starfað m.a. í Hamborg í tvö ár. Þar léku þeir reyndar nokkur lög á plötu með Tony Sheridan við frumstæð skilyrði. The Quarrymen, upphaflega bandið var skiffle hljómsveit sem er svolítið sérstök blanda af jass, blús og þjóðlagamúsík en breska útgáfan var einskonar pönk síns tíma. Bítlarnir voru því ruddalegir gallabuxna leðurjakkagæjar þar til Brian Epstein tók þá í uppeldi í mannasiðum og fatasamsetningu.
Fyrsta platan í Bretlandi var Please please me og frægast á henni varð líklega I saw her standing there sem raunar birtist fyrst sem smáskífa. Á henni eru 6 ábreiðulög og átta lög eftir Lennon og McCartney. Hún er flott byrjun en ekkert sérlega eftirminnileg nema vegna þess sem hún gerði á sinni tíð. Þessi birtist ári seinna í Bandaríkjunum sem Introducing the Beatles. Þetta var 1963. Seinna það ár kom metslagarinn She loves you og sló öll met. Lagið fór samt ekki á breskar LP plötur nema safnplötur en þegar With the Beatles var gefin út um haustið 1963 voru fyrirframpantanir gríðarlegar. Á henni eru átta bítlalög, þar af eitt eftir Harrison en sex ábreiður. Þessi plata er skemmtilegri en fyrsta og það besta við báðar er að enn eimir eftir af skifflespilinu og ruddarokkinu sem einkenndi þá fyrst. Frægast er líklega All my loving en fyrstu tvö lögin, It wont be long og All I´ve got to do sýna fyrstu stóru skrefin í átt að alvarlegri lagasmíðum og upptökuháttum.
Árið 1964 koma enn tvær plötur. Fyrst kemur líklega hápunktur Lennon platnanna eða Hard Days Night sem er skothelt lagasafn. Hún fylgir samnefndri mynd og á henni eru öll lögin frá þeim. Lennon á flest, Harrison eitt og McCartney nokkur. Lögin eru hrá og fáguð í senn og þarna eru nokkrar perlur í eyrum mínum s.s. If I fell, And I love her og gullmolinn Things we said today. En þessi plata er í miklu uppáhaldi enda líklega ein fyrsta plata þeirra sem ég kynntist hjá Kristjáni bróður mínum.
Sama ár kom Beatles for Sale, lagasafn sett saman í hasti vegna samninga en ekki mjög þétt plata. Hún er samt skrambi góð og hress er hún. Þarna eru fimm ábreiður og nokkur eftirminnileg lög en í heildina var þessi plata redding og betra í vændum.
Árið 1965 kom fyrst út stórplatan Help. Á henni gefur Lennon nokkuð eftir þó hann ætti góð lög. Á henni eru tvær ábreiður og McCartney kom með Yesterday. Þarna eru lög eins og Youve got to hide your love away, Its only love og Ive just seen a face.
Seinni plata ársins var svo fyrsta platan af þremur í hápunktiferils þeirra, Rubber Soul. Hér var ég farinn að hlusta þétt og ég man ekki eftir dauðum punkti á plötunni. Mér finnst hún frábær og nú sést hvert stefnir. Árið 1966 kom svo Revolver sem er líklega magnaðasta plata fyrri hluta ferilsins og lokapunktur hans. Hér tóku Bítlarnir beygju. Hvar byrjar maður? Taxman, Elenor Rigby, Im only sleeping, Here, there and everywhere, Good day sunshine... Hér stígur Paul fram sem leiðtogi og smáskífutímabilinu lýkur.
Það var ár í næstu plötu. Sgt. Peppers Lonely Hearts Club Band er svakalega fín plata. Hún er að mörgu leiti mjög heilsteypt en svolítið súr og dópuð. Upptökufiffin á Revolver eru flottari en Pepper er risi í vitund manna og hlaðin flottri tónlist. Efst á lista fram að þessu? Revolver, Rubber Soul, Help og Hard days er fjórða.
Nú kemur sérstakt hliðarspor. Enn ein myndin og Magical Mystery Tour. Sem heild eru myndin og platan frekar gleymanleg en þarna eru mörg glæsileg lög,- Penny Lane, All you need is love, Fool on the Hill, I am the walrus... Nægir þetta? Band sem ætti tvö svona lög á sömu plötu gæti verið harla sátt.
Næsta er að margra mati tóm vitleysa og vissulega er hún skrýtin. "Hvíta albúmið" spurði Paul einhvern spyrjanda. "Mistök? Er þetta ekki ein frægasta plata sögunnar? F*** off." Og ég er sammála. Þarna eru allskonar slagarar og léttmeti, allskonar vitleysa s.s. Revolution 9 en líka snilldar samsetningar s.s. Helter Skelter, Back in the USSR, Mother Natures Son, Glass Onion, I will, Julia, Blackbird og hápunkturinn sem er While my guitar gently weeps. Flott plata.
Árið 1969 komu tvær ólíkar plötur. Fyrst kom Yellow Submarine. Hún er frekar gleymanleg og á sama tíma tóku þeir upp Let it be. Hún var geymd og í millitíðinni kom út Abbey Road sem er gegnusúrruð snilld og gleði. Þarna er fjöldi flottra laga, kannski frægust lagasyrpan þar sem Paul og George Martin sýna ótrúlega útsjónarsemi í samsetningu laga. Teldu t.d. hversu margir lagbútar mynda You never give me your money. Frægustu lögin eru þó líklega Come together, Because og svo eru að auki Here Comes the Sun og BESTA lagið Something. Mér finnst þessi plata vera í mestu uppáhaldi og mestri spilun hjá mér. Síðasta platan þeirra féll milli skips og bryggju hjá mér. Mér fannst hún vond plata. Samt eru þarna gullmolar. Flottasta lag Lennons - Across the universe, Get back, The long and winding, Let it be. Þegar Spector var búin að níðast á upptökunum kom bara út vond plata. Maður heyrði það best þegar Let it be Naked kom út. Ég er sammála því að hún er miklu betri og meiri bítlaplata.
Útáfusafn Bítlanna er stórt miðað við að það kemur út frá 1963 til 1970 og þegar til þess er horft að raunverulegur upptökutími stóð frá 1963 til 1969. Frá því Hvíta albúmið kom út þar til síðasta upptakan var gerð tóku þeir upp þrjár plötu. Hvíta kom út í nóvember 1968 og fram til ágúst 1969 er lokið við Yellow Submarine, Let it be og Abbey road...
Sem sé þrettán plötur teknar upp frá ársbyrjun 1963 til sumarloka 1969 og þar af ein tvöföld. Útgáfuferillinn er ári lengri. Segja má svo að ferillinn skiptist í slagaratímann 1963-6, sýrutímann 1967-8 og lokasprettinn 1969. Allavega flottur ferill. Það eru víst engar fréttir.